Færslur: 2023 Nóvember17.11.2023 05:50Viðurkenningar 2023Uppskeruhátíð 2023
Uppskeruhátíð húnvetnskra bænda og hestamanna var haldin 11. nóvember sl.
Hestamannafélagið tilkynnti á hátíðinni hverjir hlutu viðurkenningarnar knapar ársins og sjálfboðaliði ársins.
Ásdís Brynja Jónsdóttir er knapi ársins í eldri flokkum.
Ásdís Brynja gerði það virkilega gott á keppnisvellinum á árinu. Hún var staðsett á suðurlandi og keppti því aðallega þar sem félagi Neista. Hún keppti á Hátíð frá Söðulsholti en hryssan er í eigu Ásdísar.
Þær stöllur voru duglegar að keppa og tóku þátt í mörgum WR mótum. Þær kepptu t.d. í gæðingaskeiði PP1 í 1 flokk á WR Suðurlandsmóti Geysis og enduðu í 3 sæti. Á WR móti Sleipnis kepptu þær í fimmgangi F2 og lentu í 8 sæti og á WR íþróttamóti Geysis kepptu þær í fimmgangi F2 og enduðu í 10 sæti. Einnig tóku þær þátt í Parafimi í suðurlandsdeildinni og enduðu í 7. sæti.
Þetta er aðeins brot af keppnis árangri þeirra Hátíðar en þær stóðu sig virkilega vel á síðasta keppnisári og verður gaman að fylgjast með þeim í framtíðinni.
Innilega til hamingju með flottan árangur!
Salka Kristín Ólafsdóttir er knapi ársins í yngri flokkum.
Salka gerði það gott í keppni á síðastliðnu ári en má þar helst nefna að hún keppti á Unglingalandsmótinu á Sauðárkróki og stóð sig virkilega vel. Salka keppti í fjórgangi V2 og tölti T3 á merinni Gleði frá Skagaströnd og enduðu þær í 7. sæti í fjórgangi með einkunnina 5,53 og 4. sæti í tölti með einkunnina 5,78
Salka var dugleg að keppa en hún tók þátt í Skagfirsku mótaröðinni, mótaröð Þyts, kvennatölti Líflands auk þess sem hún tók þátt í öllum mótum sem Neisti hélt síðastliðinn vetur og stóð hún sig vel allstaðar þar sem hún keppti.
Salka Kristín hefur verið dugleg að sækja námskeið á vegum félagsins og núna síðast tók hún Knapamerki 2 og lauk því prófi í vor. Salka stundar hestamennskuna af miklum áhuga og sjáum við miklar framfarir hjá henni frá ári til árs, bæði á námskeiðum og í keppnisbrautinni.
Innilega til hamingju með flottan árangur.
Sonja Suska er sjálfboðarliði ársins.
Skrifað af Selma 15.11.2023 18:07Reiðnámskeið veturinn 2024
Námskeiðin eru auglýst með fyrirvara um næga þátttöku. Hópaskiptingar verða auglýstar að loknum síðasta skráningardegi á heimasíðu Neista, www.neisti.net. Kennarar: Guðrún Rut Hreiðarsdóttir, Sigríður Vaka Víkingsdóttir Skráning fer fram hér https://forms.gle/wkU5MqbXnmfuQpGt6 fyrir 01.12.2022. Almennt reiðnámskeið fyrir börn - 1x í viku Áhersla lögð á ásetu og stjórnun hestsins og aukið sjálfstæði í umgengni við hestinn og að nemandi nái góðu og traustu sambandi við hestinn sinn. Þátttakendum kennt að greina mun á gangtegundum. Leikir og þrautir á hestbaki. Þátttakendum verður skipt í hópa eftir aldri og getu. Námskeiðið hefst í lok janúar og lýkur í lok apríl. Verð: 15.000kr __________________________________________________________________________ Almennt reiðnámskeið fyrir fullorðna - 1 x í viku Almenn reiðnámskeið fyrir fullorðin sem eru að byrja í hestamennsku eða hafa misst kjarkinn. Áhersla lögð á ásetu og stjórnun hestsins og aukið sjálfstæði í umgengni við hestinn og að nemandi nái góðu og traustu sambandi við hestinn sinn. Þátttakendum kennt að greina mun á gangtegundum. Þátttakendum verður skipt í hópa eftir getu. Námskeið hefst í lok janúar og lýkur í lok apríl. Verð: 20.000 kr. Utan félags, verð: 25.000 kr. ___________________________________________________________________________ Pollanámskeið - 3 skipti í mánuði Ætlað fyrir yngri börn. Lögð verður áhersla á jafnvægi á hestbaki og grunnstjórnun hestsins í gegnum leiki og þrautir. Þátttakendum verður skipt í hópa eftir aldri og getu. Foreldrar/aðstoðarmenn teyma undir þeim börnum sem ekki eru tilbúin að stjórna sjálf. Kennt verður 1 sinni í viku, þrisvar í mánuði. Námskeið hefst í byrjun febrúar og lýkur í lok apríl . Verð: 10.000 kr _________________________________________________________________________ Námskeið fyrir lengra komna - 1x í viku Almennt reiðnámskeið þar sem farið er í æfingar til að bæta hestinn. Bæta samspil knapa og hests. Þjálfa gangtegundir og undirbúningur fyrir keppni. Námskeið hefst í miðjan janúar og lýkur í lok apríl . Verð fyrir félagsmenn Neista börn: kr. 20.000 fullorðin: kr. 30.000 Knapamerki 1 Fyrirkomulag:
Sjá má frekari upplýsingar um knapamerki á síðunni www.knapamerki.is Verð fyrir félagsmenn Neista börn: kr. 25.000 fullorðin: kr. 35.000 ___________________________________________________________________________ Knapamerki 2 Fyrirkomulag:
Sjá má frekari upplýsingar um knapamerki á síðunni www.knapamerki.is Verð fyrir félagsmenn Neista börn: kr. 30.000 fullorðin: kr. 40.000 ___________________________________________________________________________ Knapamerki 3 Fyrirkomulag:
Sjá má frekari upplýsingar um knapamerki á síðunni www.knapamerki.is Verð fyrir félagsmenn Neista börn: kr. 35.000 fullorðin: kr. 45.000
Skrifað af Selma
Flettingar í dag: 955 Gestir í dag: 60 Flettingar í gær: 325 Gestir í gær: 18 Samtals flettingar: 926188 Samtals gestir: 88431 Tölur uppfærðar: 31.3.2025 17:19:32 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is