14.11.2008 14:41

Skaflajárn hækka í verði


Skaflajárn hækka í verði
www.lhhestar.is


Skaflaskeifur hafa hækkað umtalsvert í verði og kosta nú á bilinu 2000 til 3000 krónur gangurinn með sköflum. Þess skal getið að til langs tíma hafa skeifur verið fremur ódýrar og ekki hækkað í verði í samræmi við aðrar hestavörur. Eða þar til á þessu og síðasta ári.



Ef borin eru saman verð á 8 mm skeifum þá eru ódýrustu skeifurnar sem LH Hestar fundu í þeim verslunum sem haft var samband við á höfuðborgarsvæðinu svokallaðar Sæluskeifur í versluninni Ástund í Austurveri á 300 krónur stykkið. Skaflar í Ástund kosta 100 krónur stykkið. Ástund er einnig með dýrustu skeifurnar, en það er innpakkaður heill gangur, pottaður með sköflum, á 2999 krónur. Einnig er Ástund með skeifur með eigin nafni á 495 krónur parið, eða 1980 krónur gangurinn fyrir utan skafla. Með sköflum 2780 krónur.

Í Hestagallerýi kostar gangurinn 1690 og skaflarnir 50 krónur. Gangurinn kemur því út á 2190 krónur. Í Líflandi eru þrjár gerðir skeifna: Líflandsskeifur á 830 - 950 parið, eftir því hvort um er að ræða pottaðar, ópottaðar eða með uppslætti. Gangur er því á 1860 og upp í 1900 krónur fyrir utan skafla. Kerckhaert skeifur á 900 krónur parið og Mustad á 900 krónur parið, sem gerir 1800 krónur gangurinn fyrir utan skafla. Skaflar í Líflandi kosta frá 40 og upp í 90 krónur eftir tegund.

Í Hestum og mönnum kostar gangurinn af 8 mm Mustad skeifum 1860 krónur og átta skaflar 720 krónur, sem gerir samtals 2580 krónur. Í versluninni TopReiter kostar gangur af 8 mm Mustad 1980 krónur, átta skaflar 760 krónur, sem gerir samtals 2740 krónur.


Flettingar í dag: 605
Gestir í dag: 176
Flettingar í gær: 841
Gestir í gær: 362
Samtals flettingar: 441428
Samtals gestir: 52431
Tölur uppfærðar: 6.5.2024 12:14:38

Vafraðu um

Eldra efni

Um hestamannafélagið Neista

Nafn:

Hestamannafélagið Neisti

Afmælisdagur:

1943

Heimilisfang:

540 Blönduós

Staðsetning:

Blönduós

Um:

Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.

Kennitala:

480269-7139

Tenglar

clockhere