Töltmót sem vera átti í Reiðhöllinni á Blönduósi 6. feb. verður í Reiðhöllinni á Hvammstanga 13. febrúar nk. og er það Húnvetnsk liðakeppni. Keppt verður í tölti í 1. flokki, 2. flokki og flokki 16 ára og yngri. Liðstjóri A-Hún er Óli Magg s: 8690705 og eru áhugasamir vinsamlegast beðnir um að hafa samband við hann. Sjá nánar Húnvetnska liðakeppnin hér á síðunni dags. 14. janúar.
Kaffimorgunn sem vera átti 7. feb. fellur niður vegna fundahalda í Reiðhöllinni.
Reiðnámskeið fyrir konur er fyrirhugað og verður fyrsti tíminn í Reiðhöllinni á Blönduósi 9. feb. kl. 19:30. Áhugasamar hafi samband við Selmu í síma 661-9961 eða á e-mail: [email protected]