04.05.2009 09:38Frábært á AkureyriÆskan og hesturinn á Akureyri.
Krakkarnir úr Neista, ásamt foreldrum og fjölskyldum lögðu land undir fót, ýmist í gær eða í dag, til Akureyrar á sýninguna Æskan og hesturinn. Mættu þau til æfinga í Reiðhöllinni uppúr 10 í morgun en fyrri sýningin byrjaði kl. 13 og sú seinni kl. 16. Um 180 börn tóku þátt í þessari sýningu frá 10 hestamannafélögum. Sýning var stórskemmtileg í alla staði og heppnaðist mjög vel. Sýningin hjá krökkunum okkar tókst frábærlega vel og stóðu þau sig með stakri prýði og megum við öll vera stolt og glöð með svona flotta krakka. Takk takk fyrir frábæra sýningu og frábæran dag ![]() ![]() Einnig viljum við þakka öllum þeim sem tóku þátt í að koma þessum atriðum norður. Heilmikil vinna liggur að baki í pælingum, æfingum, saumaskap, flutningi á hrossum, sérstakar þakkir til Birgis í Uppsölum fyrir að lána hestaflutningabílinn og Himma fyrir að keyra hann fram og til baka. Bestu þakkir allir. Myndir eru komnar inn á síðuna, ekki náðust myndir af atriðunum sjálfum en ef einhver á þær þá má gjarna senda þær á netfang Neista en líka mætti kíkja á heimasíðu Léttis, www.lettir.is á myndasíðuna hjá þeim og sjá hvort eitthvað skemmtilegt kemur þar inn Skrifað af selma Flettingar í dag: 659 Gestir í dag: 17 Flettingar í gær: 2989 Gestir í gær: 102 Samtals flettingar: 930254 Samtals gestir: 88577 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 05:36:03 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is