17.06.2009 23:0517. júníEins og í fyrra hafði Neisti umsjón
með 17. júní hátíðarhöldunum á Blönduósi og var það bara skemmtilegt þótt veðrið hefði mátt vera eins og sl. 3 vikur en það var logn og alveg hið ágætasta veður. Margt var í boði en dagurinn byrjaði á því að Óli Magg og Raggi Stef mættu eldsnemma á dráttarvélinni til að setja fánana upp en ekki náðust myndir af því þar sem myndasmiðir voru enn sofandi ![]() Börnum var boðið á hestbak í Reiðhöllinni og var alveg ágætis þátttaka. Að venju var "blásið" í blöðrur og skrúðganga var farin frá SAH eins og í fyrra. Þar var andlitsmálun og ýmiss 17. júní varningur til sölu og var bara góð mæting og skemmtileg stemming á planinu. ![]() Á torginu stjórnaði Jón Kr. Sigmarsson dagskrá og var hún nokkuð hefðbundin. Sr. Úrsúla Árnadóttir, sóknarprestur á Skagaströnd, flutti hugvekju, Arnar Þór Sævarsson bæjarstjóri flutti hátíðarræðuna, Guðlaug Ingibjörg Þorsteinsdóttir söng lag úr Fame og Írena Ösp Sigurðardóttir söng lag úr Grease, Magdalena Berglind Björnsdóttir var í hlutverki fjallkonunnar og í lokin sá þær systur frá Hnjúki þær Steinunn Hulda og Jóhanna Guðrún um leiki á Þríhyrnunni. Kaffi og vöfflubakstur var í höndum Neistafélaga og þar sló Óli Magg mömmu sína út í bakstri, hann bakaði í fjórum vöfflujárnum á meðan mamma hans bakaði bara í tveim. Spurning hver vinnur á næsta ári Bíósýning var um miðjan dag og var hún vel sótt. Maggi Ó bauð að venju uppá útsýnisflug og var það mjög vel sótt og frábærlega skemmtileg þar sem sú er þetta ritar fór einmitt í slíkt flug. Í kvöld sáu Svörtu sauðirnir um fjölskyldudansleik í Félagsheimilinu og þeir eru frábærir eins og alltaf. Neisti þakkar öllum kærlega fyrir hjálpina í dag sem og þeim sem komu á hátíðahöldin og í kaffið ![]() Myndir eru komnar inn í myndaalbúm. Skrifað af selma Flettingar í dag: 659 Gestir í dag: 17 Flettingar í gær: 2989 Gestir í gær: 102 Samtals flettingar: 930254 Samtals gestir: 88577 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 05:36:03 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is