Að öllu óbreyttu er stefnt að því að halda
kynbótasýningu á Blönduósi fimmtudaginn 3. júní og yfirlitssýningu að morgni
föstudags 4. júní.
Tekið er á móti skráningum hjá Búnaðarsambandinu
á Blönduósi á netfanginu [email protected] eða í síma 451-2602 /
895-4365.
Síðasti skráningardagur er mánudagur 31.
maí.
Sýningargjald er 14.500 kr en 10.000 ef bara er
annað hvort byggingadómur eða reiðdómur og þarf að greiðast samhliða skráningu
inn á reikning 307-26-2650 á kt: 471101-2650 og senda kvittun á netfangið
[email protected] með upplýsingum um fyrir hvaða hross er verið að greiða.
Munið að kynna ykkur reglur um
einstaklingsmerkingar, járningar, blóðsýni, dna-sýni og spattmyndir.
Nánari upplýsingar um tímasetningar verða á
heimasíðu Búnaðarsambandsins www.rhs.is
Búnaðarsamband Húnaþings og
Stranda