05.05.2011 08:14Námskeiðahaldi vetrarins lokiðÞá er námskeiðahaldi vetrarins lokið en í gær mætti Arndís Brynjólfsdóttir og tók út 17 nemendur í knapamerkjum 1, 2 og 3. Auðvitað var fólk misstressað þegar í próf var komið en allt gekk þetta vel og stóðust allir prófin. Innilega til hamingju með það. Í vetur voru 23 fullorðnir sem luku prófum í knapamerki 1 og 2 og 14 krakkar sem luku prófum í 1, 2 og 3. Knapamerki 3 er kennt á 2 vetrum og byrjuðu þrjú í vetur en þau taka þá ekki próf fyrr en næsta vor. Á almennum námskeiðum voru 16 börn á aldrinum 4-11 ára en aldurstakmark í knapamerkin er 12 ára svo þessi hópur mun halda áfram á skemmtilegum námskeiðum fram að þeim aldri. Kennarar í vetur voru Petronella Hannula, Barbara Dittmar, Sigurbjörg Sigurbjörnsdóttir og Hafdís Arnardóttir. Þökkum við þeim kærlega fyrir frábært og skemmtilegt starf í vetur. Þá er bara að fara að huga að Æskan og hesturinn sem verður á Sauðárkróki laugardaginn 7. maí og síðan verða uppskeruhátíðir fyrir námskeiðshópa í lok maí - byrjun júní. Skrifað af selma Flettingar í dag: 793 Gestir í dag: 243 Flettingar í gær: 1234 Gestir í gær: 398 Samtals flettingar: 444273 Samtals gestir: 53474 Tölur uppfærðar: 9.5.2024 12:48:30 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is