Íslandsmótið verður haldið 13-16 júlí nk. á Brávöllum á Selfossi.
Breyting var gerð á lögum um Íslandsmót á síðasta þingi LH á þá leið
að hestamannafélagið sem heldur mótið tekur við skráningu keppenda en
ekki aðildarfélag eins og fram kom í síðustu frétt um mótið.
Skráning mun fara fram í síma eða í Hliðskjáf félagsheimili Sleipnis
dagana 5 - 7 júlí nk. milli kl. 18 og 21 alla dagana. Við biðjum
keppendur að fylgjast vel með á www.sleipnir.is þar sem allar frekari upplýsingar verða birtar. Drög að dagskrá er á www.sleipnir.is Skráningargjöld kr. 5.000- greiðast við skráningu.