12.03.2012 17:49Grunnskólamót 18. mars - skráning!Sunnudaginn 18. mars verður Grunnskólamót hestamannafélaganna á Norðurlandi vestra haldið í reiðhöllinni Svaðastaðir á Sauðárkróki og hefst mótið klukkan 13:00 Þar verður keppt í: 1. - 3. bekkur fegurðarreið 4. - 7. bekkur tví- eða þrígangur (sjá grein nr. 6. í reglum) 8. - 10. bekkur fjórgangur 8. - 10. bekkur skeið (ef veður og aðstæður leyfa) Æskilegt er að skráningar berist fyrir miðnætti á miðvikudag, 14. mars á netfangið [email protected] Við skráningu skal koma fram: Nafn, bekkur og skóli knapa - - nafn hests og uppruni, aldur og litur - - keppnisgrein og upp á hvora hönd skal riðið. Taka skal skýrt fram hjá 4. - 7. bekk hvort keppa á í tví- eða þrígangi. Skráningargjald er 1000 krónur fyrir fyrstu skráningu og 500 krónur fyrir næstu skráningar og skal greiða (með peningum - kort ekki tekin) áður en mót hefst. Fegurðarreið 1. - 3. bekkur. Þar eru riðnir 2 hringir og látið fara fallega dæmt skal eftir stjórnun og þokka. 2 - 3 keppendur inná í einu. Tvígangur 4. - 7. bekkur. Riðnir tveir hringir á annað hvort á brokki eða tölti og fet ½ hringur. Áseta ogstjórnun dæmd. Þrígangur 4. - 7. bekkur. Riðið einn hringur brokk, einn hringur tölt og fet ½ hringur. Áseta ogstjórnun dæmd. Fjórgangur 8. - 10. bekkur. Venjuleg íþróttakeppni, riðnir fjórir og hálfur hringur. Einn hringur hægt tölt,einn hringur yfirferðar tölt, ½ hringur fet , einn hringur brokk og einn hringur stökk. Skrifað af selma Flettingar í dag: 972 Gestir í dag: 18 Flettingar í gær: 2989 Gestir í gær: 102 Samtals flettingar: 930567 Samtals gestir: 88578 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 05:57:48 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is