Fyrirhugað
er að stofna heimasíðu fyrir söluhross á Norðurlandi vestra.
Hrossaræktarsamtökin á Norðurlandi vestra hafa samið við Elku
Guðmundsdóttur um að sjá um og reka síðuna www.icehorse.is
Elka verður stödd í Húnavatnssýslun sunnudaginn 22.apríl nk. til að taka upp söluhross á myndbönd og taka ljósmyndir.
Félagar í hrossaræktarsamtökunum geta mætt til myndatöku á eftirtöldum stöðum og tíma:
Blönduósi kl. 10:00-14:00
Hvammstanga kl 15:00-19:00
Nánari upplýsingar gefa formenn samtakana Jóhann Albertsson s 869-7992 og Magnús Jósefsson s.897-3486.