Nú styttist í Ís-Landsmótið á Svínavatni laugardaginn 7. mars. Vegleg verðlaun verða í boði m.a. 100.000. kr. fyrir 1. sæti í öllum greinum. Þar sem horfur eru á mikilli þátttöku áskilja mótshaldarar sér rétt til að takmarka skráningafjölda ef á þarf að halda og ræður þá reglan, fyrstur kemur fyrstur fær.
Skráningar berist á netfangið [email protected]) í síðasta lagi þriðjudaginn 3. mars. Eftirtalið þarf að koma fram: Keppnisgrein, nafn knapa, nafn, uppruni og litur hests. Keppnisgreinar eru A-flokkur, B-flokkur og tölt. Skráningargjald eru 3.000. kr. á grein. Greiðist inn á reikning 0307 - 13 - 110496, kt. 480269-7139 um leið og skráð er.
Í boði er gisting fyrir menn og hross víða í héraðinu. Einnig verður sérstök tilboð um helgina á Pottinum og pönnunni á Blönduósi og þar verður kráarstemming bæði föstudags og laugardagskvöld.
Minnum á að fylgjast með heimasíðum Hestamannafélaganna Neista og Þyts og http://svinavatn-2009.blog.is þar sem fram koma allar nánari upplýsingar og rásröð keppenda þegar líður að móti.
Aðalfundur Samtaka Hrossabænda í A-Hún verður haldinn í Reiðhöllinni Arnargerði miðvikudaginn 25. febrúar 2009 og hefst kl. 20:30. Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf. Erindi flytur Sveinn Ragnarsson, kennari á Hólum, og ræðir um fóðrun hrossa, hönnun hesthúsa ofl. Önnur mál svo sem stóðhestahald, kynbótasýningar, Reiðhallarmál, ofl.
Næsta mót verður á Blönduósi í Húnvetnsku liðakeppninni eins og áður hefur komið fram og mun Neisti sjá um mótið. Mótið verður auglýst nánar síðar en skráning er á mail: [email protected] og verður að vera búið að skrá á miðnætti þriðjudagsins 24.02.
Þær breytingar sem verða á stigasöfnun frá og með næsta móti eru að í B-úrslitum í 1. flokki fær 6. sætið 5 stig, 7. sætið 4 stig, 8. sætið 3 stig og 9. sætið 2 stig.
Síðan verða unglingar með í stigasöfnuninni og þá fær 1. sætið 3 stig, 2. sætið 2 stig, 3. - 5. sætið fá 1. stig. Þessum reglum var breytt í samráði við liðstjóra liðanna fjögurra.
Það sem koma þarf fram er knapi, hestur og upp á hvora hönd þið viljið ríða
Skráningargjald er 1.000.- fyrir fullorðna en 500 fyrir börn og unglinga.
Félag um hestatengda þjónusta á Norðurlandi vestra.
Nýlega voru stofnuð samtök um hestatengda þjónustu á Norðurlandi vestra. Hafa samtökin hlotið nafnið Hýruspor. Markmið samtakana er að fjölga ferðamönnum sem sækja hestatengda ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra (Skagafirði og Húnavatnssýslum) og efla um leið afleidda þjónustu, gistingu, veitingar.
* Að fjölga störfum tengdum íslenska hestinum, á Norðurlandi vestra * Að auka samstöðu meðal aðila í hestatengdri ferðaþjónustu sem og annarri hestatengdri atvinnustarfsemi á Norðurlandi vestra * Að auka gæði og fagmennsku hestatengdrar ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra * Að efla ímynd Norðurlands vestra, með tilliti til íslenska hestsins * Að fjölga möguleikum/auka fjölbreytni í hestatengdri ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra, m. a. með það fyrir augum að lengja hið hefðbundna ferðamannatímabil
Öllum þeim sem hafa atvinnu að einhverju leyti af hestum eða hestatengdri þjónustu var boðið að gerast félagar og eru flest fyrirtæki sem byggja afkomu sína á hestinum á Norðurlandi vestra þátttakendur sem og margir hrossaræktendur á svæðinu. Samtökin eru byggð á hugmyndinni um klasa. Hýruspor er grasrótarsamtök þar sem þátttakendur vinna í hinum ýmsu vinnuhópum til að gera veg hestamennskunnar á Norðurlandi vestra sem mestan og atvinnugreinina sem öflugasta. Ekki síst er horft til þess að nýta þau tækifæri sem felast í þessari starfsemi yfir vetrarmánuðina. Verkefnið hefur þegar hlotið nokkra styrki til starfseminnar svo sem frá Vaxtarsamningi Norðurlands vestra, Menningarráði Norðurlands vesta og Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Búið er að ráða Jón Þór Bjarnason, ferðamálafræðing í hlutastarf. Hefur hann aðsetur á Sauðárkróki.
Fyrstu stjórn samtakana skipa: Páll Dagbjartsson, Varmahlíð , formaður Jón Gíslason Ferðaþjónustunni Hofi í Vatnsdal, gjaldkeri Jóhann Albertsson Sveitasetrinu Gauksmýri , ritari Arna Björk Bjarnadóttir Sögusetri Íslenska hestsins, meðstjórnandi Hjörtur Karl Einarsson Hestamiðstöðinni Hnjúkahlíð, meðstjórnandi.
Ef einhverjir eru ennþá utan samtakanna en hefðu hug á að vera með er þeim bent á að hafa samband við einhvern stjórnarmanna. Segja má að með stofnun þessara samtaka hafi þeir sem vinna við hestamennsku í Húnavatnssýslum og Skagafirði tekið höndum saman og ákveðið að lyfta Grettistaki og gera þetta svæði að " hestasvæðinu á Íslandi."
Mette Mannseth, Þórarinn Eymundsson og Sölvi Sigurðsson
Fyrsta keppnin í KS Deildinni fór fram í kvöld í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki. Keppt var í fjórgangi og voru 18 keppendur sem börðust um sigur. Eftir jafna og spennandi keppni stóð Þórarinn Eymundsson uppi sem sigurvegari á Skáta frá Skáney.
Ólafur Magnússon á Gáska frá Sveinsstöðum sigraði í B-úrslitum og öðlaðist þar með þátttökurétt í A-úrslitum og endaði í 4. sæti.
Fyrsta keppniskvöld KS deildarinnar verður n.k. miðvikudagskvöld og hefst kl. 20.00.
Keppt verður í fjórgangi. Mikil spenna er að myndast og hafa knapar verið að æfa í Svaðastaðahöllinni. Þar hafa sést glæsileg tilþrif og ljóst er að margir knapar koma mjög vel undirbúnir til leiks.
Knapar eru minntir á fund kl. 18:30 sama dag.
Rásröð er eftirfarandi:
1. Magnús B. Magnússon Hrannar frá Íbishóli
2. Ísólfur Líndal Ögri frá Hólum
3. Bjarni Jónasson Komma frá Garði
4. Ragnar Stefánsson Lotning frá Þúfum
5. Mette Mannseth Happadís frá Stangarholti
6. Stefán Friðgeirsson Svanur Baldur frá Litla-Hóli
Keppni í frumtamningu verður haldin á TEKIÐ TIL KOSTANNA 23.-25. apríl. Þetta er í fyrsta sinn sem keppni af þessu tagi er haldin hér á landi. Það er Hólaskóli sem stendur fyrir keppninni. Höfundur hennar er Eyjólfur Ísólfsson.
Eyjólfur segir að það hafi lengi verið draumur sinn að halda keppni af þessu tagi. Enda sé frumtamningin sá grunnur sem allt byggist á.
"Þetta er frumraun," segir Eyjólfur. "Keppnin hefur þegar fengið nafn, sem lýsir inntaki hennar: "Það snýst um traust". Það eru verknámsnemar skólans sem munu taka þátt í keppninni að þessu sinni. Framhaldið ræðst svo af því hversu vel þetta heppnast og hvernig fólki líst á. Ég er viss um að þetta verður spennandi og skemmtileg keppni, sem reynir á þolinmæði, nákvæmni og útsjónarsemi tamningamannsins. Hún byggist að hluta á þeim verkefnum sem nemendurnir eru að læra hér við skólann og í verknáminu. Hugsanlega verða lagðar fyrir þá nýjar þrautir, og síðan mega keppendur sýna frjáls atriði til að undirstrika það sem keppnin snýst um - traustið milli manns og hests!
Nánari útlistun á keppninni verður birt innan tíðar á www.holar.is
Unglingar: 1. Elín Hulda Harðardóttir og Móheiður frá Helguhvammi II, eink. 6,0 / 7,0 2. Harpa Birgisdóttir og Kládíus frá Kollaleiru, eink. 4,5 / 6,2 3. Jónína Lilja Pálmadóttir og Oliver frá Syðri-Völlum, eink. 5,5 / 6,0 4. Karen Ósk Guðmundsdóttir og Kjarkur, eink. 4,5 / 6,0 5. Fríða Marý Halldórsdóttir og Gósi frá Miðhópi, eink. 4,66 / 5,8 6. Rakel Rún Garðarsdóttir og Lander frá Bergsstöðum, eink. 4,5 / 5,8
Varpað var hlutkesti um sætin sem voru jöfn.
2. flokkur A-úrslit: 1. Kolbrún Stella Indriðadóttir og Skinna frá Grafarkoti, lið 2, eink. 5,83 / 6,67 2. Hjördís Ósk Óskarsdóttir og Þróttur frá Húsavík, lið 3, eink. 5,67 / 6,5 3. Aðalheiður Einarsdóttir og Slaufa frá Reykjun, lið 1, eink. 5,67 / 6,3 4. Ninni Kulberg og Hörður frá Reykjavík, eink. lið 3, 6,17 / 6,3 5. Hörður Ríkharðsson og Knár frá Steinnesi, lið 4, eink. 6,0 / 6,2
B-úrslit: (það fóru 2 keppendur upp í a-úrslit) 4. Hjördís Ósk Óskarsdóttir og Þróttur frá Húsavík, lið 3, eink. 5,67 / 6,67 5. Aðalheiður Einarsdóttir og Slaufa frá Reykjum, lið 1, eink. 5,67 / 6,33 6. Gunnar Þorgeirsson og Eldur frá Sauðadalsá, lið 3, eink. 5,67 / 6,2 7. Þórólfur Óli Andergaard og Þokki frá Blönduósi, lið 4, eink. 5,5 / 6,2 8. Halldór Sigfússon og Seiður frá Breið, lið 1, eink. 5,67 / 5,8 9. Steinbjörn Tryggvason og Kostur frá Breið, lið 1, eink. 5,33 / 5,3
1. flokkur A-úrslit Tryggvi Björnsson og Bragi frá Kópavogi, lið 3, eink. 7,5 / 8,33 Reynir Aðalsteinsson og Sikill frá Sigmundarstöðum, lið 2, eink. 7,83 / 8,16 Herdís Einarsdóttir og Grettir frá Grafarkoti, lið 2, eink. 7,33 / 7,83 Jóhann Albertsson og Mynt frá Gauksmýri, lið 2, eink. 7 / 7,33 Aðalsteinn Reynisson og Kveikur frá Sigmundarstöðum, lið 2, eink. 7 / 7,2 Jakob Víðir Kristjánsson og Ægir frá Móbergi, lið 4, eink. 6,5 / 7,2
B-úrslit 6. Jakob Víðir Kristjánsson og Ægir frá Móbergi, lið 4 eink. 6,5 / 7,2 7. Jóhann Magnússon og Lávarður frá Þóreyjarnúpi, lið 1, eink. 6,5 / 6,8 8. Elvar Logi Friðriksson og Stimpill frá N-Vindheimum, lið 3, eink. 6,5 / 6,5 9. Magnús Ásgeir Elíasson og Bliki frá Stóru Ásgeirsá, lið 3, eink. 6,5 / 6,2
LIÐAKEPPNIN STENDUR ÞANNIG:
1. sæti LIÐ 2 með 34,5 stig 2. sæti LIÐ 3 með 23,5 stig 3. - 4. sæti LIÐ 1 með 6,5 stig 3. - 4. sæti LIÐ 4 með 6,5 stig
Jörðin Þingeyrar í Húnaþingi var lengi þekktust af bónda sínum og frægum hestamanni, Jóni Ásgeirssyni. Sonur hans var Ásgeir Jónsson á Gottorp, sem ritaði bækurnar Horfnir góðhestar. Nú eru Þingeyrar aftur komnar í hóp virðulegustu hrossabúa landsins.
Þingeyrar eru í eigu Ingimundar Sigfússonar, sendiherra, og konu hans Valgerðar Valsdóttur. Jörðin hefur verið í eigu fjölskyldunnar frá því 1943. Ábúendur og ráðsmenn frá 1995 eru Helga Thoroddsen og Gunnar Ríkaharðsson. Í samstarfi hafa þessar fjölskyldur byggt upp hrossa- og ferðaþjónustubú, sem hefur skipað sér veglegan sess.
Fyrir ári síðan var tekið í notkun nýtt og glæsilegt hesthús á Þingeyrum. Til viðbótar við eldra hesthús og reiðhöll. Aðstaða til tamninga og útreiða er því eins góð og hún getur orðið. Flestir hestamenn hafa heyrt um hinar rómuðu útreiðaleiðir á Þingeyrum, bæði að vetri og sumri.
Helga Thoroddsen er hestamönnum vel kunn. Jafnframt því að byggja upp hrossabúið á Þingeyrum hefur hún verið ötul í félagsmálum, ástamt því að mennta sig í hrossafræðum. Hún lauk þjálfara- og reiðkennaraprófi frá Hólaskóla 2001. Hún er afar ötull tamningamaður og reiðkennari. Eitt mesta afrek hennar á sviði hestamennskunnar er þó sennilega verkstjórn knapamerkjakerfisins, sem hefur slegið í gegn á sviði reiðkennslu.
Myndir:
Á efri myndinni eru Helga ásamt Magnúsi Jósepssyni á Steinnesi. Magnús er með "gamla" hesthúsið á Þingeyrum á leigu og hefur þar tamningamen í seli.
Á neðri myndinni er Helga á gæðingi sínum Fylki frá Þingeyrum, syni Glaðs frá Hólabaki. Spölkorn er frá hesthúsinu út á ísi lagðar víðáttur Hóps og Húnavatns.
"Knapamerkjakerfið er hvetjandi," segir Sigurbjörg Sigurbjörnsdóttir reiðkennari á Blönduósi. Nú eru fimmtíu börn og unglingar á reiðnámskeiðum á félagssvæði Neista. Sami fjöldi er á reiðnámskeiðum á svæði Þyts á Hvammstanga.
"Það er engin spurning að þetta fyrirkomulag hefur hvetjandi áhrif, bæði á börn og fullorðna," segir Sigurbjörg. "Fólk upplifir að það sé á einhverri leið. Áður kom það alltof oft fyrir að fólk hjakkaði í sama farinu. Það var kannski munur á milli reiðkennara en það var engin mörkuð stefna í kennslunni. Nú tekur fólk próf og útskrifast stig af stigi."
Sigurbjörg er með reiðkennararéttindi frá Hólaskóla, hefur lokið þriggja ára námi þar. Hún er einnig með tamningastöð á Blönduósi og er með verknámsnema frá Hólaskóla sér til aðstoðar. Sigurbjörg er frá Gilsárteigi á Héraði. "Ég hef búið hér á Blönduósi í nokkur misseri, en ég er víst ennþá í Freyfaxa," segir Sigurbjörg að lokum og brosir kankvíslega.
Fyrsta frumtammningakeppni á Íslandi verður haldin í apríl á vegum Hólaskóla. Keppnin fer fram á sýningunni Tekið til kostanna 23.-25. apríl á Sauðárkróki.
Tamninganemendur skólans sem nú eru í verknámi leiða saman trippi sem þeir eru að temja. Allt bendir til að keppnin verði bæði frumleg og spennandi og búast má við góðri skemmtun. feykir.is
Knapar og hestar í Meistaradeild VÍS fengu heltur betur kalt bað við setningu deildarinnar, sem fram fór á Tjörninni í Reykjavík. Tíu til fimmtán hestar lentu í vök þegar ísinn brotnaði undan þeim.
Sýning keppenda í Meistaradeildinni var lokaatriði á blaðamannafundi sem var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur. Fljótlega þegar hestar og áhorfendur voru komnir út á ísinn varð ljóst að hann var ekki vel traustur. Hann dúaði og brast við hátt. Í hita leiksins uggðu knaparnir ekki að sér og fylktu liði í breiðfylkingu með þeim afleiðingu að ísinn gaf sig.
Að vonum varð uppi fótur og fit. Vatnið náði hestunum upp fyrir miðjar síður. Þeir sukku í leirdrulluna í botninum og áttu því erfitt með að spyrna sér upp á ísskörina, sem brotnaði undan þeim jafnóðum. Nokkrir vaskir sveinar með Fjölni Þorgeirsson í fararbroddi létu sig vaða niður í kalt vatnið, settu löng bönd aftur fyrir hestana þannig tókst að tosa þá upp á ísinn. Engin alvarleg slys urðu á hestum og mönnum en nokkrir hestanna voru kaldir eftir volkið.
Stjórn LH heldur vinnufund á Blönduósi um næstu helgi. Í tengslum við fundinn er hestamönnum í Húnaþingi, Skagafirði og Siglufirði boðið til almenns fundar næstkomandi föstudag, 6. febrúar, í reiðhöllinni Arnargerði á Blönduósi.
Stjórnum Glæsis, Léttfeta, Stíganda, Neista, Þyts, Snarfara og Svaða hefur verið boðið formlega á fundinn. Það skal þó sérstaklega tekið fram að allir hestamenn eru velkomnir. Til umræðu verður verkefnastaða LH: Landsmót 2008 og Landsmót framtíðarinnar, æskulýðsmálin, keppnismál, tölvumál, WorldFengur og samstarfið við FEIF svo einhver atriði séu nefnd.
Tilgangur fundarins að hlýða á rödd hins almenna félagsmanns í viðkomandi félögum. Þess vegna eru allir sem láta sig málefni hestamanna varða hvattir til að mæta og láta í sér heyra. Og að sjálfssögðu verður heitt á könnunni.