Færslur: 2009 Júní29.06.2009 12:51Barna- og unglingamótBarna- og unglingamót æskulýðsnefndar Neista verður á Blönduósvelli 25. júlí nk. Nánar auglýst síðar ![]() Skrifað af selma 28.06.2009 22:06Frábær ferð yfir HópiðYfir 30 konur á öllum aldri og af ýmsum þjóðernum og alls staðar af á landinu mættu við Stóru-Borg um kl. 17.00 föstudaginn 26. júní. Tilefnið var að koma saman og ríða yfir Hópið að Þingeyrum. Jóhanna á Reykjum og Sonja í Hvammi II sáu um skipulagningu þessarar ferðar og voru fararstjórar ![]() Riðið var út að Hópi og áð þar. Þar voru þeir Helgi H. Jónsson og Haukur Suska mættir með ýmiss konar góðgæti handa okkur konunum, kakó og kleinur sem og margt fleira. Alveg frábært ![]() ![]() Ferðin yfir Hóp var frábær og gekk í alla staði afskaplega vel og beið okkar veisluborð í hesthúsinu á Þingeyrum þegar þangað var komið. Þar stóð áðurnefndur Helgi og Grímur á Reykjum og grilluðu sem mest þeir máttu ofan í okkur ![]() Þökkum við þeim Sonju og Jóhönnu fyrir skipulagningu og góða ferð. Einnig þökkum við strákunum fyrir að grilla og bera í okkur veitingar ![]() Myndir komnar í albúmið Skrifað af selma 28.06.2009 15:26Reiðnámskeið á Þingeyrum fyrir börn og unglingaReiðnámskeið fyrir börn og unglinga ![]() Dagana 7 til og með 10 júlí verður haldið reiðnámskeið ætlað börnum og unglingum hér á Þingeyrum (aldurstakmark 8 ára). Kennt verður frá kl. 13:00 - 15:00 og kennarar eru Helga Thoroddsen, reiðkennari og Christína Mai, þjálfari og tamningamaður. Alls
komast 10 þátttakendur að á námskeiðinu sem verður sambland af leikjum
og æfingum í reiðhöll og frjálsum útreiðum. Hestar og reiðtygi er á
staðnum en þátttakendur þurfa helst að hafa með sér eigin hjálm. Einnig
er leyfilegt að koma með eigin hest ef hann er þægur í reið og góður í
umgengni við aðra hesta og menn. Námskeiðsgjald er kr. 12.000. Skráning
fer fram í gegn um síma: Skrifað af selma 27.06.2009 13:09Bragi og GrásteinnBragi frá Kópavogi M; Álfadís frá Kópavogi Bragi tekur á móti hryssum á Þingeyrum eftir Fjórðungsmót. Bragi er með 8,18 í aðaleinkunn í kynbótadómi, þar af 8,41 fyrir hæfileika. Bragi hefur verið farsæll keppnishestur frá 5v aldri í tölti, fjórgangi og B-flokki. Verð 75.000 m/vsk á fengna hryssu. Upplýsingar hjá Magga í síma Grásteinn frá Brekku
Hann er með 8,46 í aðaleinkunn í kynbótadómi, 8,54 fyrir hæfileika og 8,33 fyrir sköpulag. Einnig hefur hann staðið sig vel í A-flokki gæðinga. F;Gustur frá Hóli M; Skuggsjá frá Brimnesi sem er fyrstu verðlauna hryssa undan Hrafni frá Holtsmúla. Verð á fengna hryssu er 70.000- með vsk. Upplýsingar hjá Tryggva í síma Gunnari í síma ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() Skrifað af selma 26.06.2009 13:04Steinnes með ræktunarbússýningu á FMÁtta ræktunarbúRæktunarbússýningar gefa stórmótum alltaf skemmtilegan blæ og á fjórðungsmóti munu átta bú koma fram og skarta sínu besta á laugardeginum kl. 16.Allt eru þetta hörku sterk bú og þau sem staðsett eru á Vesturlandi hafa öll komið fram á fyrri fjórðungsmótum á Kaldármelum en hin eru nýliðar á FM.Hrossaræktunarbúin sýna hvert 5 hross og er það í traustum höndum, Ágústar Sigurðssonar, rektors Háskólans á Hvanneyri að velja sigurvegara. Eftirtalin átta bú taka þátt í ræktunarbússýningu á FM 2009: - Álftarós, Borgarbyggð 24.06.2009 18:16Íslandsmót fullorðinna í hestaíþróttum 2009 skráning hafinÍslandsmót í hestaíþróttum fyrir fullorðna verður haldið 16-18 júlí 2009 á Hlíðarholtsvelli á Akureyri.
Skrifað af selma 22.06.2009 20:04Lokaverkefni í HÍ um LH og LMGuðný Ívarsdóttir og Hjörný Snorradóttir, sem báðar eru
hestamönnum að góðu kunnar, eru að vinna að lokaverkefnum í HÍ í tengslum við LH
og LM og vilja hitta okkur í Reiðhöllinni Arnargerði 23. júní kl. 20.00. Hjörný mun í sínu
verkefni fjalla um hlutverk og markmið Landsmóta, framtíðarsýn og hvort ástæða
sé til að gera breytingar á fyrirkomulaginu og þá hvaða. Fyrirkomulag
fundanna er þannig að þær kynna verkefni sín lítillega og leggja síðan
spurningarlista fyrir fundargesti. Að því loknu eru málin reifuð og rædd, allar
hugmyndir og sjónarmið eru skráð niður. Þær hafa ásamt
forsvarsmönnum LH og LM fundar í Reykjavík og á Suðurlandi og nú er komið að
Norðurlandi.
Skrifað af selma 22.06.2009 16:37Kvennareið 2009Jæja stelpur, þá er komið að því! Föstudaginn 26. júní n.k. verður riðið frá Stóru-Borg, yfir Hópið og að Þingeyrum. Mæting kl. 17:00 við Stóru-Borg, með góða skapið. Ekki er svo verra að punta sig og sína í tilefni dagsins. Nánari upplýsingar og skráning hjá undirrituðum fyrir kl. 10:00, fimmtudagskvöldið 25. júní. Skráið ykkur endilega sem fyrst (svo við höfum einhverja hugmynd um fjöldann fljótlega). Jóhanna á Reykjum, s: 452 4012 / 868 1331 Sonja í Hvammi II, s: 452 7174 / 616 7449 Skrifað af selma 17.06.2009 23:0517. júníEins og í fyrra hafði Neisti umsjón
með 17. júní hátíðarhöldunum á Blönduósi og var það bara skemmtilegt þótt veðrið hefði mátt vera eins og sl. 3 vikur en það var logn og alveg hið ágætasta veður. Margt var í boði en dagurinn byrjaði á því að Óli Magg og Raggi Stef mættu eldsnemma á dráttarvélinni til að setja fánana upp en ekki náðust myndir af því þar sem myndasmiðir voru enn sofandi ![]() Börnum var boðið á hestbak í Reiðhöllinni og var alveg ágætis þátttaka. Að venju var "blásið" í blöðrur og skrúðganga var farin frá SAH eins og í fyrra. Þar var andlitsmálun og ýmiss 17. júní varningur til sölu og var bara góð mæting og skemmtileg stemming á planinu. ![]() Á torginu stjórnaði Jón Kr. Sigmarsson dagskrá og var hún nokkuð hefðbundin. Sr. Úrsúla Árnadóttir, sóknarprestur á Skagaströnd, flutti hugvekju, Arnar Þór Sævarsson bæjarstjóri flutti hátíðarræðuna, Guðlaug Ingibjörg Þorsteinsdóttir söng lag úr Fame og Írena Ösp Sigurðardóttir söng lag úr Grease, Magdalena Berglind Björnsdóttir var í hlutverki fjallkonunnar og í lokin sá þær systur frá Hnjúki þær Steinunn Hulda og Jóhanna Guðrún um leiki á Þríhyrnunni. Kaffi og vöfflubakstur var í höndum Neistafélaga og þar sló Óli Magg mömmu sína út í bakstri, hann bakaði í fjórum vöfflujárnum á meðan mamma hans bakaði bara í tveim. Spurning hver vinnur á næsta ári Bíósýning var um miðjan dag og var hún vel sótt. Maggi Ó bauð að venju uppá útsýnisflug og var það mjög vel sótt og frábærlega skemmtileg þar sem sú er þetta ritar fór einmitt í slíkt flug. Í kvöld sáu Svörtu sauðirnir um fjölskyldudansleik í Félagsheimilinu og þeir eru frábærir eins og alltaf. Neisti þakkar öllum kærlega fyrir hjálpina í dag sem og þeim sem komu á hátíðahöldin og í kaffið ![]() Myndir eru komnar inn í myndaalbúm. Skrifað af selma 17.06.2009 22:47Uppskeruhátíð hjá konunumKonurnar sem voru á námskeiði hjá Sibbu í vetur gerðu sér glaðan dag í gær. Þær fóru, ásamt Sibbu, í góðan reiðtúr upp í Kúagirðingu og enduðu í frábærum mat heima hjá Önnu Margréti. Námskeiðið byrjuði í febrúar og var síðasti tíminn um miðjan maí. Hópurinn samanstóð af 10 konum, misvönum sem lærðu heilan helling og er stefnan tekin á Knapamerki 1 næsta vetur. Bestu þakkir Sibba fyrir frábæran vetur. Skrifað af selma 16.06.2009 08:15Austur húnvetnsk kynbótahross á FjórðungsmótIS2002256258 Djásn frá Hnjúki B: 8.13 H: 8,31 A: 8,24 IS2005156292 Dofri frá Steinnesi B: 8.16 H: 8,25 A: 8,22 IS2004256820 Gangskör frá Geitaskarði B: 8.09 H: 8,08 A: 8,09 IS2001156297 Glettingur frá Steinnesi B: 7.93 H: 8,48 A: 8,26 IS2005256510 Hildur frá Blönduósi B: 8.16 H: 7,67 A: 7,86 IS2004256500 Hylling frá Blönduósi B: 7.96 H: 8,19 A: 8,10 IS2004156286 Kiljan frá Steinnesi B: 8.21 H: 8,54 A: 8,41 IS2004256287 Ólga frá Steinnesi B: 8.29 H: 7,80 A: 8,0 IS2003256207 Sif frá Brekku B: 7.9 H: 8,30 A: 8,14 IS2004256392 Stefna frá Sauðanesi B: 8.19 H: 7,91 A: 8,03 IS2000256258 Trópí frá Hnjúki B:7.72 H: 8,80 A: 8,37 Skrifað af selma 16.06.2009 08:06Fulltrúar Neista á FjórðungsmótFulltrúar Neista á Fjórðungsmót eru: Barnaflokkur: Aron Orri Tryggvason og Þróttur frá Húsavík Unglingaflokkur: Elín Hulda Harðardóttir og Móheiður frá Helguhvammi II Harpa Birgisdóttir og Tvinni frá Sveinsstöðum Karen Ósk Guðmundsdóttir og Kjarkur frá Flögu Agnar Logi Eiríksson og Njörður frá Blönduósi A-flokkur: Tryggvi Björnsson og Viola frá Steinnesi Ólafur Magnússon og Fregn frá Gýgjarhóli Sandra Marin og Iða frá Hvammi II Ólafur Magnússon og Gletta frá Sveinsstöðum B-flokkur: Ólafur Magnússon og Gáski frá Sveinsstöðum Ísólfur Líndal Þórisson og Sindri frá Leysingjastöðum Ragnar Stefánsson og Lotning frá Þúfum Tryggvi Björnsson og Dögg frá Steinnesi Skrifað af selma 15.06.2009 23:47Úrslit á félagsmóti NeistaFélagsmót Neista sem og úrtaka fyrir Fjórðungsmót var haldið á Blönduósvelli sl. laugardag og tókst með ágætum. Þökkum við öllum þeim sem að því stóðu sem og keppendum og áhorfendum kærlega fyrir daginn ![]() Úrslit urðu þessi: Barnaflokkur: ![]() 1. Hanna Ægisdóttir og Skeifa frá Stekkjardal 7,79 / 8,17 2. Aron Orri Tryggvason og Þróttur frá Húsavík 8,09 / 8,15 3. Hákon Ari Grímsson og Glæsir frá Steinnesi 7,65 / 7,89 4. Jón Ægir Skagfjörð og Perla frá Móbergi 7,59 / 7,71 5. Sólrún Tinna Grímsdóttir og Rifa frá Efri-Mýrum 7,44 / 7,48 Unglingaflokkur ![]() 1. Elín Hulda Harðardóttir og Móheiður frá Helguhvammi II 8,37 / 8,44 2. Harpa Birgisdóttir og Tvinni frá Sveinsstöðum 8,01 / 8,28 3. Karen Ósk Guðmundsdóttir og Kjarkur frá Flögu 8,12 / 8,10 4. Agnar Logi Eiríksson og Njörður frá Blönduósi 7,70 / 8,07 5. Stefán Logi Grímsson og Hvöt frá Miðsitju 7,74 / 7,97 Tölt ![]() 1. Ólafur Magnússon og Gleði frá Sveinsstöðum 5,90 / 6,44 2. Hörður Ríkharðsson og Knár frá Steinnesi 5,17 / 6,17 3. Ragnar Stefánsson og Maur frá Fornhaga II 5,40 / 5,89 4. Þórður Pálsson og Nóta frá Sauðanesi 4,73 / 4,89 5. Karen Ósk Guðmundsdóttir 5,07 / 3,11 A-flokkur ![]() 1. Jakob Víðir Kristjánsson og Ægir frá Móbergi 8,21 / 8.36 2. Valur Valsson og Viola frá Steinnesi 8,33 / 8,34 3. Ólafur Magnússon og Fregn frá Gýgjarhóli 8,01 / 8,33 4. Ragnar Stefánsson og Maur frá Fornhaga II 8,11 / 8,20 5. Sandra Marin og Iða frá Hvammi II 8,00 / 8,02 B-flokkur ![]() 1. Ólafur Magnússon og Gáski frá Sveinsstöðum 8,48 / 8,70 2. Ragnar Stefánsson og Lotning frá Þúfum 8,31 / 8,45 3. Valur Valsson og Eðall frá Orrastöðum 8,16 / 8,33 Óli var knapi í forkeppni 4. Jelena Ohm og Sirkus frá Þingeyrum 8,19 / 8,25 5. Þorgils Magnússon og Dynur frá Sveinsstöðum 8,13 / 8,13 Óli var knapi í forkeppni 6. Heimir Þór Guðmundsson og Sveinn frá Sveinsstöðum 8,13 / 8,07 Ólfur Magnússon var valinn knapi mótsins og Gáski glæsilegasti hesturinn enda afar flott par þar á ferð ![]() ![]() ![]() Skrifað af selma 15.06.2009 23:01Tilkynning frá HrossaræktarráðunautiÉg hef nú lokið við að skrá inn í sýningarskrá
væntanlegs fjórðungsmóts á Vesturlandi þau kynbótahross sem ég tel að
eigi rétt til þátttöku á mótinu. Sýningarskrána má nálgast hér. Bestu kveðjur, Skrifað af selma 12.06.2009 08:21Röð keppenda
Skrifað af selma
Flettingar í dag: 955 Gestir í dag: 60 Flettingar í gær: 325 Gestir í gær: 18 Samtals flettingar: 926188 Samtals gestir: 88431 Tölur uppfærðar: 31.3.2025 17:19:32 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is