Færslur: 2009 Nóvember30.11.2009 21:19Stelpur þá er komið að því ....Knapamerki 1 fyrir konur, á öllum aldri, verður í boði eftir áramót og mun Ólafur Magnússon sjá um kennslu. Áhugasamar vinsamlegast skrái sig á netfang Neista eða hafi samband við Selmu í síma 661 9961. Upplýsingar um knapamerkin má lesa hér. Skrifað af selma 30.11.2009 21:06Frá Æskulýðsnefnd NeistaÍ vetur mun æskulýðsnefnd Neista standa fyrir námskeiðum fyrir börn og unglinga eins og undanfarin ár ef næg þátttaka fæst. Fyrirhugað er að þau verði með svipuðu sniði og í fyrra, þ.e. fyrir byrjendur og lengra komna og knapamerki 1, 2 og 3 (3 tekið á tveim vetrum). Það væri gott ef áhugasamir myndu skrá sig á netfang Neista, hjá Sillu í síma 6918228 eða hjá Selmu í síma 6619961 til að hægt sé að fara að skipuleggja vetrarstarfið. Fram þarf að koma nafn og aldur viðkomandi, einnig í hvaða hóp hann vill skrá sig í. Aldurstakmark í knapamerki 1 er 12 ára og forkröfur í knapamerki 2 er að hafa lokið knapamerki 1 og það sama gildir um knapamerki 3, forkröfur að hafa lokið knapamerki 2. Æskulýðsnefnd Neista Skrifað af selma 24.11.2009 08:14Lotning frá ÞúfumÞau leiðu mistök urðu við verðlaunaveitingu kynbótahrossa á uppskeruhátíð að Klóra frá Hofi, 10 v., var sögð hæst í flokki 7. vetra og eldri með aðaleinkunn 8,06. Hið rétta er að Lotning frá Þúfum, 8 v., er aðeins hærri, eða með aðaleinkunina 8,08. Hefur þetta verið leiðrétt við Ragnar og Söndru á Efri-Mýrum eigendur Lotningar. Lotning frá Þúfum F: Hróður frá Refsstöðum M: Rósamunda frá Kleifum B: 8,14 H: 8,03 A: 8,08 Ræktandi Gísli Gíslason. Eigendur Ragnar Stefánsson og Sandra Marin Sýnandi Mette Mannseth Lotning og Raggi á Félagsmóti Neista í júní 2009 Skrifað af selma 22.11.2009 23:08Góð uppskeruhátíðUppskeruhátíð bænda og hestamann var í gærkvöldi og tókst vel í alla staði. Borðin svignuðu undan verðlaunum fyrir hesta, kýr og kindur.... Knapi ársins 2009 hjá Hestamannafélaginu Neista er Ólafur Magnússon. Hann gerði það afar gott á keppnisvellinum í ár ........ hann varð í 1. sæti í tölti í KS-Deildinni á Gáska frá Sveinsstöðum með 7,72 í 4. sæti í fjórgangi í KS-Deildinni á Gáska með 7.00 í 4. sæti í tölti á Ís-Landsmóti á Svínavatni á Gáska með 7,67 í 2. stæti í Stjörnutölti 2009 á Gáska með 7,54 í 4. sæti í A-flokki í Húnvetnsku liðakeppninni á Fregn frá Gýgjarhóli með 5,3 í 1. sæti í tölti á Félagsmóti Neista á Gleði frá Sveinsstöðum með 6,44 í 3. sæti í A-flokki á Félagsmóti Neista á Fregn með 8,33 í 1. sæti í B-flokki á Félagsmóti Neista á Gáska með 8,70 Hann var valinn knapi Félagsmóts Neista og Gáski glæsilegasti hesturinn enda afar flott par þar á ferð. Á Fjórðungsmóti á Kaldármelum varð hann í 5. sæti í B-flokki á Gáska með 8,61 Viðurkenningar kynbótahrossa: Hryssur 4 vetra Smáralind frá Skagaströnd F: Smári frá Skagaströnd M: Sól frá Litla Kambi B; 8,00 H; 8,06 A 8,04 Ræktandi og eigandi Sveinn Ingi Grímsson Sýnandi Erlingur Erlingsson 5 vetra Gangskör frá Geitaskarði F: Gustur frá Hóli M: Bylgja frá Svignaskarði B: 8,09 H: 8.08 A: 8.09 Ræktendur og eigendur Sigurður Ágústsson og Sigurður Levy Sýnandi Daníel Jónsson 6 vetra Sif frá Brekku F: Kveikur frá Miðsitju M: Laufa frá Brekku B: 7.90 H: 8,30 A: 8,14 Ræktandi og eigandi Haukur Magnússon Sýnandi Jakob Sigurðsson 7 vetra og eldri Klóra frá Hofi F: Kormákur frá Flugumýri M: Flóra frá Hofi B: 8,16 H: 7,99 A: 8,06 Ræktendur og eigendur Jón Gíslason og Eline Schrijver Sýnandi Sigurður Sigurðarson Stóðhestar 4 vetra Dofri frá Steinnesi F: Gígjar frá Auðsholtshjáleigu M: Dáð frá Steinnesi B: 8,16 H: 8,26 A: 8,22 Ræktandi og eigandi Magnús Jósefsson Sýnandi Agnar Þór Magnússon 5 vetra Tryggvi Geir frá Steinnesi F: Parker frá Sólheimum M: Dimma frá Sigríðarstöðum B: 7,93 H: 8,10 A: 8,03 Ræktandi Magnús Jósefsson. Eigendur Tryggvi Björnsson og Ásgeir Blöndal Sýnandi Artemisia Bertus 6 vetra Prímus frá Brekkukoti F: Parker frá Sólheimum M: Drottning frá Hemlu B: 8,11 H: 7,95 A: 8,02 Eigendur Pétur Snær Sæmundsson og Magnús Ágústsson Sýnandi Þórður Þorgeirsson 7 vetra og eldri Grásteinn frá Brekku í Fljótsdal F: Gustur frá Hóli M: Skuggsjá frá Brimnesi B: 8,33 H: 8,68 A: 8,54 Ræktandi Hallgrímur Þórhallsson. Eigendur Hallgrímur Þórhallsson og Tryggvi Björnsson Sýnandi Tryggvi Björnsson Farandbikarar eru fyrir hæst dæmdu hross á Héraðssýningu í Húnaþingi í eigu heimamanns. Sölufélagsbikarinn fékk hæst dæmda hryssa á héraðssýningu Lotning frá Þúfum F: Hróður frá Refsstöðum M: Rósamunda frá Kleifum B: 8,14 H: 8,03 A: 8,08 Ræktandi Gísli Gíslason. Eigendur Ragnar Stefánsson og Sandra Marin Sýnandi Mette Mannseth. Búnaðarbankabikarinn fékk hæst dæmdi stóðhestur á héraðssýningu. Grásteinn frá Brekku í Fljótsdal F: Gustur frá Hóli M: Skuggsjá frá Brimnesi B: 8,33 H: 8,68 A: 8,54 Ræktandi Hallgrímur Þórhallsson. Eigendur Hallgrímur Þórhallsson og Tryggvi Björnsson Sýnandi Tryggvi Björnsson Fengsbikarinn - bikar sem gefinn var til minningar um Guðmund Sigfússon frá Eiríksstöðum og veittur er hæst dæmda kynbótahrossi í eigu heimamanns en sama hvar það er sýnt. Grásteinn frá Brekku í Fljótsdal F: Gustur frá Hóli M: Skuggsjá frá Brimnesi B: 8,33 H: 8,68 A: 8,54 Ræktandi Hallgrímur Þórhallsson. Eigendur Hallgrímur Þórhallsson og Tryggvi Björnsson Sýnandi Tryggvi Björnsson Nýr farandbikar var gefinn af Sveini Inga Grímssyni og fjölskyldu til minningar um Magnús Blöndal. Er hann veittur hæst dæmda 4 vetra stóðhesti í Austur-Húnavatnssýslu. Dofri frá Steinnesi F: Gígjar frá Auðsholtshjáleigu M: Dáð frá Steinnesi B: 8,16 H: 8,23 A: 8,22 Ræktandi og eigandi Magnús Jósefsson Sýnandi Agnar Þór Magnússon Ræktunarbú ársins 2009 er Steinnes Frá Steinnesi voru sýndir 5 stóðhestar og fóru 4 þeirra í 1. verðlaun Glettingur 8.v. A: 8,26 Tryggvi Geir 5.v. A: 8,03 Kiljan 5. v. A: 8,59 Dofri 4.v. A: 8,22 Gleypnir 4.v. A: 7.71 Sýndar voru 9 hryssur frá Steinnesi og þar af fóru 4 í 1. verðlaun. Skrifað af selma 19.11.2009 16:09KS-Deildin byrjar á þorraDeildin, verður haldin í þriðja sinn í vetur. Mótaröðin fer að venju fram í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkóki. Eyþór Jónasson, framkvæmdastjóri Svaðastaðahallarinnar og einn af eigendum KS-Deildarinnar, segir að hvergi verði slakað á í vetur. Kaupfélag Skagfirðinga standi sterkt að baki deildarinnar og fullur byr sé í seglunum. Eyþór segir að mikill áhugi sé á meðal knapa á svæðinu og býst við töluvert meiri þátttöku í úrtöku en í fyrra. Úrtakan fer fram í janúar á nýju ári og fyrsta mótið seinni partinn í febrúar. Árni Gunnarsson hjá kvikmyndagerðinni Skottu ehf. mun gera sjónvarpsþætti um mótaröðina eins og í fyrra. heimild: www.vb.is Skrifað af selma 19.11.2009 16:06Dagskrá LandsmótsDagskrá Landsmótsins komin á netið! Hana má finna á heimasíðu okkar Landsmót.is undir dagskrárhlutanum. Athugul augu taka eflaust eftir því að dagskrá mótsins hefur verið lengd um einn dag, en keppni hefst nú á sunnudegi en ekki mánudegi eins og fyrri ár. Það er því meira af móti í boði fyrir alla sanna hestaunnendur! Netmiðasala fer í gang í janúar og það er vel hægt að láta sér hlakka til þess að tryggja sér miða á mótið. Við setjum markið hátt og hlökkum til stórkostlegrar fjölskylduhátíðar með söng, gleði og bestu gæðingum landsins. Skrifað af selma 18.11.2009 08:23Dagskrá vetrarinsDagskrá vetrarins er í fullum undirbúningi og verður sett hér inn á vefinn fljótlega. Búið er að funda með Skagfirðingum og V-Húnvetningum um skipulag vetrarins og má segja að mót vetrarins á svæðinu byrji 27. janúar með úrtöku fyrir KS-deildina á Sauðárkróki. Í gærkvöldi var fundur með Æskulýðsnefndunum úr Skagafirði og V-Hún um fyrirhuguð Grunnskólamót, Grunnskólamót Hestamannafélaganna, þ.e. hestamannafélögin standa að þessum mótum en krakkarnir safna stigum fyrir sinn skóla. Sama stigafyrirkomulag og í fyrra ![]() Ákveðið var að keppt yrði í einni grein, pollaflokki og skeiði á hverjum stað. Grunnskólamót Hestamannafélaganna verða: 21. febrúar á Blönduósi. Keppt verður í smala, pollaflokki og skeiði. 7. mars á Hvammstanga. Keppt verður í þrígangi - fjórgangi, pollaflokki og skeiði. 18. apríl á Sauðárkróki. Keppt veður í tölti, pollaflokki og skeiði. Mót Húnvetnsku liðakeppninnar verða: 5. febrúar - Fjórgangur 19. febrúar - Smali 12. mars - Fimmgangur 9. apríl - Tölt Ís-landsmótið á Svínavatni verður 6. mars Skrifað af selma 15.11.2009 21:38Reiðhallarnotendur - Viljamenn og konurÞann 1. nóvember hófst nýtt tímabil hjá okkur notendum reiðhallar. Allir eru hvattir til að nýta sér höllina eins og kostur er. Nýir leigjendur eru nú í höllinni þau Raggi og Sandra og vonum við að samstarfið við þau verði farsælt fyrir alla. Fyrirkomulagið er með svipuðu sniði og verið hefur þ.e. þau hafa höllina alveg út af fyrir sig til kl. 13:00 en þá hefst okkar tími. Þeim Ragga og Söndru er þó heimil notkun eftir hádegi ef fátt er í höllinni og að höfðu góðu samráði við aðra. Við ætlum að muna að hirða upp skítinn eftir hestana okkar og hafa hurðir lokaðar svo við missum ekki þann lága hita sem í höllinni er út í buskann. Við sýnum hvert öðru tillitsemi og slökkvum ljósið ef við teljum að við séum síðust út úr höllinni. Ef eitthvað er sem þarf að ræða eða benda á sem betur má fara þá skal tala um það við Hödda (8940081) sem hefur umsjón í höllinni þangað til annað verður auglýst. Í stjórn Reiðhallarinnar Arnargerðis ehf. eru þeir Guðmundur Sigfússon, Jón Gíslason og Magnús Jósefsson og má einnig snúa sér til þeirra. Næstum allir hafa nú greitt eða samið vegna árgjalda 2009 en reikningurinn er 307-26-106506, kt. 650699-2979. Gjaldið er 14.000 kr. ATH. fáeinir greiðsluþjónustuaðilar eiga eftir að breyta upphæðum sínum. Lifið heil. Skrifað af selma 06.11.2009 14:02UppskeruhátíðUppskeruhátíð húnvetnskra bænda og hestamanna verður haldin laugardaginn 21. nóvember Hátíðin hefst kl:20:30 með fordrykk í boði SAH-Afurða. Matseðill Forréttur: Grafinn lax, Reyktur lax, Sjávarréttapaté, Sveitapaté og Pastarami piparskinka með tilheyrandi meðlæti. Aðalréttur: Kryddaður Lambavöðvi, Murg Afghani Kjúklingabringa ogRoast Nautalund með tilheyrandi meðlæti og sósum. Eftirréttur: Kaffi og konfekt. Hátíðarstjórn verður í höndum Gríms Atlasonar, Danshljómsveit Friðjóns Jóhannssonar sér um Verð kr:4500. -miðinn gildir sem happadrættismiði, stórglæsilegir vinningar- Tryggið ykkur miða hjá eftirtöldum aðilum eigi síðar en þriðjudaginn 17.nóvember n.k. Ingibjörg og Páll, s:452-4353 Silla og Hilmar, s:452-4644 Sigurbjörg og Svavar, s:452-7128 Jóna Fanney og Hjörtur, s:452-4416. Fjölmennum og tökum með okkur gesti. Sérstakar þakkir fá: SAH-Afurðir, Lífland , Sorphreinsun Vilhelms Harðar, KS, MS/Auðhumla, Dregill, SS ,Drifkraftur, Léttitækni, Vélsmiðja Alla, N1 píparinn, Kjalfell, Ístex, Jötunn vélar, Bændaþj.Eymundar, Vís, Blönduvirkjun, Landsbankinn Skagaströnd, Fisk Seafood, Húnavatnshreppur, Hársnyrtistofan Flix, Hárgreiðustofa Bryndísar Braga, Bæjarblómið, Samkaup/Úrval, Vilkó, Hótel Blönduós, Lyfja Blönduósi, Búnaðarfélag Svínavatnshrepps. Skrifað af selma 04.11.2009 21:09Líf að færast í hesthúsahverfiðÞau Sandra Marin og Ragnar Stefánsson á Efri Mýrum hafa tekið hesthúsið við Reiðhöllina í Arnargerði á leigu og verða með starfsemi sína, tamningar, þjálfun og kennslu, þar í vetur. Ragnar var að flytja hross í hesthúsið þegar fréttaritari var á ferð í hverfinu sl. sunnudag og var búinn að hitta Hörð, umsjónarmann Reiðhallarinnar og ganga frá pappírunum. Hann teymdi hvert hrossið á fætur öðru í hesthúsið og var búinn að fara 3 ferðir þann daginn að ferja hross niður eftir. Hér er hann með Dís frá Kýrholti en hún er merkt Skjá einum Þau hjón fengu góðar mótttökur þegar þau mættu í vinnuna á mánudagsmorgunn en þá beið þessi flotta skúffukaka handa þeim ![]() Þau eru ánægð með aðstöðuna og hlakka til vetrarins. Mörg spennandi hross eru komin og koma inn í tamningu og þjálfun. Inn eru komnir 3 graðhestar, þeir Maur frá Fornhaga sem er á 6. vetur og Smyrill frá Oddssstöðum, á 5. vetur undan Sæ frá Bakkakoti. Einnig spennandi foli á 4 vetur, Áfangi frá Sauðanesi sem er undan Hágangi frá Narfastöðum og Slæðu frá Sauðanesi. Úr þeirra rætun eru komnar inn þær Fruma og Frökk frá Akureyri og Smáradóttirin Stikla frá Efri-Mýrum. Lotning frá Þúfum er væntanleg inn mjög fljólega. Svo virkilega spennandi vetur framundan hjá þeim en ásamt því að temja og þjálfa mun Sandra kenna í æskulýðsstarfinu í vetur eins og í fyrra. Skrifað af selma
Flettingar í dag: 843 Gestir í dag: 56 Flettingar í gær: 325 Gestir í gær: 18 Samtals flettingar: 926076 Samtals gestir: 88427 Tölur uppfærðar: 31.3.2025 16:56:28 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is