Færslur: 2013 Janúar30.01.2013 21:30Gaman að byrja á reiðnámskeiðiHöllin fylltist í dag af börnum, hestum og foreldrum en ekkert er eins skemmtilegt og þegar litlu krakkarnir mæta á námskeið. Það er svo gaman hjá þeim. Byrjendur eru 11 en þar eru þau yngstu 4 ára og hér er foreldrar mætt með þau. Skrifað af selma 30.01.2013 09:36Ísmót á Gauksmýrartjörn
Keppt verður í tölti í 3 flokkum: 1. 1.flokki 2. 2.flokki 3. Barna og unglingaflokki.
5 keppendur í úrslit i öllum flokkum. Einnig verður keppt í unghrossaflokki ef næg þátttaka næst, en það eru hross fædd á árunum 2008 og 2009 sem eiga þátttökurétt. Þetta verður 4 ferðir (2 fram og til baka), frjáls reið.
Nánari upplýsingar hjá Jóa í síma 869-7992 eða Kollu í síma 863-7786 Hægt að koma hestum í hús á Gauksmýri meðan húsrúm leyfir. Veitingasala verður í veitingasalnum á Gauksmýri.
Sveitasetrið Gauksmýri og Hestamannafélagið Þytur Skrifað af selma 28.01.2013 21:00Frábært námskeið og skemmtileg TöltfimikeppniFrábæru reiðnámskeiði hjá Trausta Þór lauk um miðjan dag á sunnudag með töltfimikeppni en þar vann Ragnhildur Harladsdóttir naumlega Magnús Ólafsson. Hún keppti sem gestur þar sem hún var ekki á námskeiðinu og fékk þar að leiðandi ekki verðlaun. Námskeiðið var mjög vel heppnað, 18 manns á aldrinum 10 til 67 ára sóttu það og var gaman að sjá hve miklum framförum hestar og menn tóku á aðeins 2 dögum. Trausti kom á föstudag þar sem þátttaka var meiri en ráð var fyrir gert og vann hann með einn nemandahóp á föstudag og annan á laugardag og síðan alla á sunnudag. Hestar og knapar voru undirbúnir þessa daga fyrir töltfimi og að keppa í töltfimi. Í keppninni lýsti Trausti öllum því sem fyrir augu áhorfandans bar og kom því vel til skila hvað væri verið að biðja um, hvar og hvenær. Það var mjög skemmtilegt og fróðlegt og áhorfendur ánægðir með það. Úrslit urðu þau að Magnús Ólafsson varð í 1. sæti, Guðmundur Sigfússon í 2. sæti og Eline Schrijver í 3. sæti. Flottar sýningar hjá þeim. Eline, Guðmundur og Magnús ásamt Trausta Þór að loknu námskeiði. Sigurbjörg Jónsdóttir í Litladal gaf verðlaun í fyrsta sætið en það var þessi fallegi hestshaus sem hún skar út. Kærar þakkir fyrir það. Myndir komnar í albúm. Skrifað af selma 26.01.2013 17:42Töltfimi - keppniÞeir nemendur sem hafa verið á námskeiði hjá Trausta Þór um helgina munu ljúka námskeiðinu á morgun með keppni í Töltfiminni. Sjá má upplýsingar um töltfimi hér. Mótið hefst um kl. 15 á morgun sunnudag. Allir velkomnir að koma og horfa á. Skrifað af selma 26.01.2013 14:32Fundur mótanefndarFundur var haldinn í mótanefnd Neista miðvikudaginn 23.01.2013 1. Mótaröð Neista 2013. Rætt var um mótaröðina og framkvæmd hennar, reglur, dagssetningar og fl. Eftirfarandi var ákveðið varðandi komandi keppnir. Mótaröðin heitir "Mótaröð Hestamannafélagsins Neista 2013". Mótaröðin hefst 14 febrúar eins og áður hefur komið fram á tölti T7 í opnum flokki, áhugamannaflokki og flokki 16 ára og yngri. Þannig verða flokkarnir út mótaröðina. Veitt verða verðlaun fyrir stigahæstu knapana í þessum flokkum í lok mótaraðarinnar. Verðlaun verða veitt fyrir 1-3 sæti í samanlögðum stigafjölda í hverjum flokki fyrir sig. Stigagjöf verður þannig: 1 sæti gefur 10 stig, 2 sæti 8 stig, 3 sætið 6 stig, 4 sætið 5 stig, 5 sætið 4 stig og svo koll af kolli niður í 8 sætið sem gefur 1 stig. Mótið verður þá svohljóðandi: · 14 febrúar tölt T7 opinn flokkur, áhugamannaflokkur og 16 ára og yngri. · 24 febrúar verður ístölt (sjá breytingu á dagssetningu) opinn flokkur, áhugamannaflokkur og 16 ára og yngri. · 7 mars fjórgangur opinn flokkur, áhugamannaflokkur og 16 ára og yngri. · 21 mars Tölt T1 opinn flokkur, áhugamannaflokkur og 16 ára og yngri. · 6 apríl fimmgangur opinn fyrir alla (Sjá breytingu á dags.) Tölt T1 opinn flokkur, áhugamannaflokkur og 16 ára og yngri. Skoðað verður hvort að hægt sé að nota keppnisvöll, ef ekki þá verður höllin notuð. Ákveðið var að fimmgangurinn yrði opinn fyrir alla flokkana og stigagjöfin yrði þannig að fyrir 1 sætið yrði 5 stig, 2 sætið 4 stig, og svo koll af kolli niður í 1 stig fyrir 5 sæti.
2. Önnur mál. · Verkefnum var skipt á milli stjórnarmanna varðandi mótaröðina og framkvæmd mótanna.
Víðir Kristjánsson, Ólafur Magnússon, Raghildur Haraldsdóttir,Pétur Snær Sæmundsson, Höskuldur B.Erlingsson 25.01.2013 12:29Töltfimi![]() Úr Hestablaðinu í dag 25.01.2013 Fyrsta kynningarmótið í Töltfimi á Íslandi verður haldið á Blönduósi sunnudaginn 27. janúar.Fyrsta kynningarmótið í Töltfimi á Íslandi verður haldið á Blönduósi sunnudaginn 27. janúar. Mótið er haldið í tengslum við reiðnámskeið sem Trausti Þór Guðmundsson, tamningamaður og reiðkennari, heldur þar um helgina. 25.01.2013 08:32Námskeið í ReiðhöllinniNámskeið verða í Reiðhöllinni frá k. 10. í dag föstudag til sunnudagskvölds eða eitthvað fram yfir miðjan dag á sunnudeginum. Gera má ráð fyrir því að hún sé samt laus eftir kvöldmat alla dagana. Skrifað af selma 21.01.2013 15:52Folaldasýning úrslitGóð þátttaka var á folaldasýningu, bæði hvað varðar folöld og áhorfendur. Helstu ræktendur á svæðinu voru mættir með yfir 30 folöld og gekk sýningin vel. Dómarinn Eyþór Einarsson valdi bestu folöldin og áhorfendur einnig í hvorum flokki. Áhorfendur voru sammála dómara um efsta sætið í báðum flokkum. Úrslit urðu þessi: Hestar: 1. Ljósvíkingur frá Steinnesi, leirljós F: Óskasteinn frá Íbishóli M: Djörfung frá Steinnesi Rækt. og eig.: Magnús Jósefsson 2. Leiknir frá Blönduósi , brúnn F: Viti frá Kagaðarhóli M: Sandra frá Hólabaki Rækt.: Björn Magnússon og Hrímahestar ehf Eig.: Hrímahestar ehf 3. Fannar frá Blönduósi, brúnskjóttur F: Toppur frá Auðsholtshjáleigu M: Ungfrú Ástrós frá Blönduósi Rækt. og eig.: Sigríður Grímsdóttir og Eyjólfur Guðmundsson 4. Frosti frá Geitaskarði, grár F: Kvartett frá Túnsbergi M: Röskva frá Geitaskarði Rækt.: Sigurður Örn Levy og Sigurður Örn Ágústsson Eig.: Gjón Gunnarsson 5. Sjóður frá Steinnesi, grár F: Spuni frá Vesturkoti M: Muska frá Sigríðarstöðum Rækt. og eig.: Magnús Jósefsson Hryssur: 1. Þrúður frá Skagaströnd, brún F: Þröstur frá Hvammi M: Þjóð frá Skagaströnd Rækt. og eig.: Þorlákur Sveinsson og Lalli ehf 2. Björk frá Grænuhlíð, brún F: Víðir frá Prestbakka M: Þruma frá Grænuhlíð Rækt. og eig.: Ásmundur Óskar Einarsson 3. Limra frá Blönduósi, rauðskjótt F: Kapall frá Kommu M: Hrifning frá Árgerði Rækt. og eig.: Ásgeir Blöndal og Hrímahestar ehf 4. Sigurrós frá Hólabaki, bleikálótt F: Fróði frá Staðartungu M: Sigurdís frá Hólabaki Rækt. og eig.: Björn Magnússon 5. Fenja frá Skagaströnd, rauðstjörnótt F: Styrmir frá Skagaströnd M: Milljón frá Skagaströnd Rækt.: Jón Heiðar Jónsson Eig.: Jón Heiðar Jónsson og Aron Logi Svavarsson Stórræktendurnir Magnús Jósefsson og Þorlákur Sveinsson unnu því folatollana sem í boði voru. Skrifað af selma 19.01.2013 09:30FolaldasýningFolaldasýning í Reiðhöllinni Arnargerði, Blönduósi sunnudaginn 20. janúar, kl. 14.00. 25 folöld eru skráð, bestu folöldin valin af áhorfendum. Skrifað af selma 16.01.2013 14:37Folaldasýningin, lokaskráningardagur á morgun 17. jan !!!
Dómari velur besta folaldið í flokkum hesta og hryssna en áhorfendur velja álitlegasta folaldið í sömu flokkum. Skráning á netföngin [email protected] og [email protected] fyrir 17. janúar. Veglegir follatollar verða í verðlaun t.d. Aldur frá Brautarholti aðaleinkunn 8,25, Brennir frá Efri-Fitjum aðaleinkunn 8.01, Grettir frá Grafarkoti aðaleinkunn 8,23 og Klængur frá Skálakoti aðaleinkunn 8,38. Hrossaræktarsamtök A-Hún Skrifað af selma 12.01.2013 11:21Fjórðungsmót Vesturlands 2013![]() Karen, Aron, Harpa og Agnar á Fjórðungsmóti á Kaldármelum 2009 Í sumar verður haldið Fjórðungsmót Vesturlands á Kaldármelum sem fyrr. Mótið fer fram dagana 3.-7. júlí og verður með hefðbundnu sniði. Framkvæmdanefnd mótsins býður hestamannafélögum á Vestfjörðum, í Húnavatnssýslum og Skagafirði að taka þátt í mótinu, sýna þar kynbótahross og keppa á mótinu eins og gert var 2009 með mjög góðum árangri. Skrifað af selma 08.01.2013 23:24FolaldasýningFyrirhuguð er að halda folaldasýningu þann 20. janúar í reiðhöllinni Arnargerði Blönduósi ef næg þátttaka næst. Dómari velur besta folaldið í flokkum hesta og hryssa en áhorfendur velja álitlegasta folaldið í sömu flokkum. Skráning á netföngin [email protected] og [email protected] fyrir 17.janúar. Veglegir follatollar verða í verðlaun. Hrossaræktar samtök A-Hún
Skrifað af selma 06.01.2013 10:39Reiðnámskeiðin að byrjaÞá fer fjörið að hefjast, búið er að raða niður námskeiðum og er þátttaka mjög góð. Allir eiga að vera búnir að fá póst um hvenær þeirra hópur á að mæta. Ef ekki endilega hafið samband við Selmu í síma 661 9961. Reiðnámskeiðin hjá yngri og eldri krökkum, þ.e. þau sem eru ekki í knapamerkjunum, byrja í síðustu viku janúar. Námskeiðin verða á mánudögum, þriðjudögum og miðvikudögum í vetur og byrja í viku 3 þ.e. 14. janúar. Mánudagur kl. 17.00 - 17.45 knapamerki 1 Fyrstu bóklegu tímarnir í knapamerkjum 1 og 2 eru 8. janúar og Æskulýðsnefnd Skrifað af selma 06.01.2013 10:31Mótaröð Neista![]() Ísmótið á Svínavatni, Svínavatn 2013, verður á sínum stað. Dagatalið kemur inn von bráðar og verða dagsetningar móta settar þar inn og bætt þar inná ef breytingar verða á dagsetningum. Mótin í Reiðhöllinni og ístöltið eru stigakeppni fyrir Neistafélaga, þar sem stigahæsti keppandinn í hverjum flokki fyrir sig hlýtur verðlaun fyrir samanlagðan árangur á mótunum. Fyrirhugaðir mótadagar: 14. febrúar - Valentínusartölt T7 Skrifað af selma 04.01.2013 19:56Stofnfélagi Neista heiðraðurHestamannafélagið Neisti var stofnað árið 1943 í Dalsmynni. Félagið fagnar því 70 ára afmæli á þessu ári. Stofnfélagar voru 40 talsins, en eini eftirlifandi félaginn er Gísli Pálsson frá Hofi, þá kenndur við Sauðanes. Gísli verður 93 ára í mars og dvelur nú á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi. Stjórn Hestamannafélagsins Neista ákvað í tilefni af 70 ára afmæli félagsins að gera Gísla að heiðursfélaga Neista. Heimsótti stjórnin hann og afhenti honum viðurkenningu því til staðfestingar. Gísli er vel að viðurkenningunni kominn og þótt hann hafi ekki haft hestamennsku að atvinnu, þá átti hann meðal annarra stóran þátt í uppbyggingu Hólaskóla, en þar var hann formaður stjórnar í mörg ár. Hestamannafélagið Neisti óskar Gísla og fjölskyldu hans velfarnaðar á komandi árum. Hjörtur Karl Einarsson Skrifað af selma
Flettingar í dag: 955 Gestir í dag: 60 Flettingar í gær: 325 Gestir í gær: 18 Samtals flettingar: 926188 Samtals gestir: 88431 Tölur uppfærðar: 31.3.2025 17:19:32 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is