Færslur: 2015 Janúar13.01.2015 11:57Mótahald vetrarins
4. febrúar kl. 19:00 - T7 tölt í Reiðhöllinni 14. febrúar kl. 13:00 - Ísmót á Hnjúkatjörn 4. mars kl. 19:00 - Fjórgangur í Reiðhöllinni 18. mars kl. 19:00 - Smalinn í Reiðhöllinni 8. apríl - Fimmgangur og tölt T1 í Reiðhöllinni
Almennt gilda reglur LH. á mótum Neista og verður tilkynnt sérstaklega ef út af því verður brugðið. Aðeins einn keppandi verði í braut í einu á mótunum nema á ísmótinu. Heimilt er að breyta þessu fyrirkomulagi á öðrum mótum ef skráningar eru margar. Ekki verður selt inn á mót vetrarins, en skráningagjald verður kr. 1.500 á hvern hest. Stigaútreikningur verður með hefðbundnum hætti, fyrsta sæti gefur 10 stig, annað sæti 8 stig, þriðja sæti 6 stig og síðan 5,4,3,2 og 1 stig fyrir sætin þar á eftir.
Mótanefnd
Skrifað af selma 08.01.2015 16:50Námskeið á vorönn 2015Skipulag námskeiða á vorönn 2015 liggur fyrir. Kennarar verða Heiðrún Eymundsdóttir og Pétur Örn Sveinsson. Þau kenndu einnig s.l. vor við góðan orðstýr. Kennsla verklegra tíma Knapamerkja hefst mánudaginn 12. janúar, bóklegir tímar Knapamerkja 19. janúar og reiðnámskeið barna 26. janúar. Uppskeruhátið verður haldin 26. apríl.
Skrifað af Æskulýðsnefnd
Flettingar í dag: 2326 Gestir í dag: 59 Flettingar í gær: 1373 Gestir í gær: 87 Samtals flettingar: 928932 Samtals gestir: 88517 Tölur uppfærðar: 1.4.2025 19:27:54 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: heneisti@gmail.comAfmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is