Færslur: 2009 Október27.10.2009 22:02UppskeruhátíðinUppskeruhátíð búgreinafélaganna í A.-Hún. og Hestamannafélagsins Neista verður haldin laugardagskvöldið 21. nóvember 2009. Nánar auglýst síðar. Undirbúningsnefndin. Skrifað af selma 26.10.2009 22:03Skemmtihelgi Ungmennaráðs UMFÍSkemmtihelgi Ungmennaráð UMFÍ skipuleggur skemmtihelgi fyrir ungmenni á aldrinum 16-20 ára. Helgina 13.-15. nóvember færð þú tækifæri til þess að prófa eitthvað nýtt! Þar getur þú fengið að upplifa nýja og spennandi hluti - að sjálfsögðu án allra vímuefna. Skemmtihelgin verður að þessu sinni haldin í húsnæði Framhaldsskólans á Laugum í Reykjadal. Ungmennaráð UMFÍ hefur staðið fyrir svipuðum helgum áður og hefur aðsókn verið góð. Í þetta skiptið komast aðeins 25 manns að. Fyrstir koma fyrstir fá! Það eina sem þú þarft að gera er að senda upplýsingar um nafn, skóla og símanúmer á netfangið [email protected] í síðasta lagi sunnudaginn 8. nóvember. Allur pakkinn er þér að kostnaðarlausu - það eina sem þú þarft að gera er að koma þér á staðinn! Ungmennaráð UMFÍ Skrifað af selma 24.10.2009 12:32Félagsmenn með aðgang að WorldFengBúið er að opna aðgang að WorldFeng sem er ókeypis fyrir skuldlausa félagsmenn. Þeir félagsmenn sem ekki hafa fengið upplýsingar um opnun aðgangs þurfa að senda netfang sitt til Neista til að hægt sé að opna aðgang. Skrifað af selma 24.10.2009 12:30Íþrótta- og gæðingadómar komnir inn í WorldFengFrá og með gærdeginum gátu áskrifendur WF skoðað alla íþrótta- og gæðingadóma á Íslandi á síðustu árum. Upplýsingarnar koma úr SPORTFENGUR.COM sem er tölvukerfi sem þróað hefur verið í samvinnu við LH. Á næstunni verður bætt við erlendum íþrótta- og gæðingadómum í samvinnu við FEIF sem koma frá Icetest forritinu en búast má við að það verði tímafrekara verk en gögnin úr SPORTFENG sem eru að fullu samræmd við gögn í WF.Þá hófst útsending á skýrsluhaldinu í hrossarækt til þeirra um 4.000 skýrsluhaldara. Vakin er athygli á að allir geta nú skilað inn rafrænu skýrsluhaldi í gegnum heimarétt WorldFengs og þar geta þeir í leiðinni afþakkað að fá sent skýrsluhaldið í pósti. www.hestafrettir.is Skrifað af selma 24.10.2009 12:21Helga Una tilnefnd sem efnilegasti knapi ársins 2009Helga Una og Karítas frá Kommu Nú liggja fyrir tilnefningar til knapaverðlauna sem veitt verða á
Uppskeruhátíð hestamanna 7.nóv. í Reykjavík. Einnig verða veitt
heiðursverðlaun Landssamband hestamannafélaga.
Efnilegasti knapi ársins 2009
Skrifað af selma 23.10.2009 11:45Úthlutun verkefnastyrkja Menningarráðs Norðurlands vestraBlómlegt menningarlíf framundan Æskulýðsnefnd Hestamannafélagsins Neista sótti um verkefnastyrk til Menningarráðs Norðurlands vestra og fékk úthlutað 100.000 kr. Afhending verkefnastyrkja fór fram í Kántrýbæ á Skagaströnd 21. október sl. og mætti formaður félagsins, Sigurlaug Markúsdóttir, þangað til að taka á móti styrknum. Alls bárust 65 umsóknir þar sem óskað var eftir tæpum 47 milljónum króna. Á fundi sínum, 7. október sl., ákvað menningarráðið að úthluta verkefnastyrkjum til 52 aðila alls að upphæð 18.300.000 kr. Hestamannafélagið Neisti þakkar kærlega fyrir þessa styrkveitingu, hún mun koma að góðum notum í vetur.
Skrifað af selma 23.10.2009 09:01Nýr vefur Félags hrossabændaNýr vefur Félags hrossabænda hefur nú verið tekinn í gagnið á slóðinni www.fhb.is
. Þar er að finna upplýsingar um félagið og starfsemi þess, auk ýmis
konar fróðleiks er varðar íslenska hestinn, bæði á íslensku og ensku.
Allar fundargerðir félagsins eru birtar á vefnum, auk þess sem þar er
að finna fróðleik um fagráð, útflutning, lög- og reglugerðir og fleira.
Enn á eftir að bæta meiru við myndasöfn, tengla og fræðslu og eru
hestamenn hvattir til að senda félaginu ábendingar um efni sem gæti átt
heima á síðunni. Efst á síðunni er að finna upplýsingar um deildir FHB
og með því að smella þar á má fara beint inn á stjórnartöl viðkomandi
deilda og tengla á síður þeirra ef þær eru til staðar. Vefinn smíðaði
Vefsmiðjan Orion, en um hönnun hans sá Hulda G. Geirsdóttir, sem
jafnframt er vefstjóri. www.hestafrettir.is Skrifað af selma 15.10.2009 13:48Ræktunarmaður/menn ársins 2009Fagráð í hrossarækt hefur valið þau bú/ræktendur sem tilnefndir eru til árlegrar heiðursviðurkenningar Bændasamtaka Íslands ræktunarmaður/menn ársins. Valið stóð á milli 54 búa sem náð höfðu athygliverðum árangri á árinu. Ákveðið var að tilnefna 17 bú/ræktendur sem hljóta munu viðurkenningu á ráðstefnunni Hrossarækt 2009 sem haldin verður á Hótel Sögu þann 7. nóvember næstkomandi. Það bú/ræktendur sem valið verður til sigurlaunanna verður að venju verðlaunað á Uppskeruhátíð hestamanna að kvöldi sama dags.Í stafrófsröð eru tilnefnd bú: 1. Auðsholtshjáleiga 2. Austurkot 3. Árbær 4. Blesastaðir IA 5. Efri-Rauðilækur 6. Fet 7. Flugumýri II 8. Hemla 2 9. Ketilsstaðir/Selfoss 10. Kjarr 11. Komma 12. Kvistir 13. Steinnes 14. Stóri-Ás 15. Strandarhjáleiga 16. Torfunes 17. Þjóðólfshagi 1 www.hestafrettir.is Skrifað af selma 10.10.2009 11:14Hrossablót Söguseturs íslenska hestsinsSögusetur íslenska hestsins stendur fyrir hrossablóti í samstarfi við Hótel Varmahlíð og Veitingastaðinn Friðrik V. á Akureyri, laugardagskvöldið 17. október á Hótel Varmahlíð. Blótið hefst með drykk kl. 19.30. Hrossablótið er sannkallað matar- og skemmtikvöld. Hinn landsþekkti og margverðlaunaði veitingamaður Friðrik V. ásamt snillingnum Þórhildi Maríu Jónsdóttur matreiðslumeistara á Hótel Varmahlíð töfra fram glæsilega veislu, þar sem hrossið verður í aðalhlutverki. Skemmtun verður í anda skagfirskrar menningar. Sigurður Hansen flytur eigin ljóð. Félagarnir Siggi Björns á Ökrum og Jói í Stapa kveða rímur og Miðhúsabræður þenja nikkurnar. Blótsstjóri er Bjarni Maronsson. Borðapantanir fara fram á [email protected] eða í síma ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() Hér er einstakt tækifæri fyrir fólk að eiga notalega kvöldstund, njóta glæsilegs kvöldverðar og upplifa sannkallaða skagfirska skemmtun. www.lhhestar.is Skrifað af selma 08.10.2009 18:26Úrskurður aganefndar LH![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]()
Frá því var skýrt í fréttum í ágúst s.l. að
Þórði Þorgeirssyni hefði verið vikið úr landsliði Íslands í
hestaíþróttum vegna agabrota. Í áframhaldi af því var málinu vísað til
aganefndar LH. til nánari umfjöllunar. Með úrskurði sínum dags. 29.
september 2009 ákvað aganefndin að Þórður Þorgeirsson skuli sæta 12
mánaða keppnisbanni frá 3. ágúst 2009 að telja. Síðan er vikið að því að Þórður hafi sent frá sér afsökunarbeiðni þann 14. ágúst 2009 þar sem hann m.a. biður trúnaðarmenn landsliðsins, hestamenn og aðra velunnara hestamennskunnar afsökunar á agabrotum sínum. Með vísan til alls þessa ákveðst refsing Þórðar Þorgeirssonar vegna agabrota hans á Heimsmeistaramótinu í Sviss 2009 keppnisbann í 12 mánuði. Hestafréttir hafði samband við Ragnar Tómasson lögmann Þórðar. Sagði Ragnar að frá hans hálfu væri sjálfgert að vísa málinu til úrskurðar dómstóls ÍSÍ. Öll meðferð og úrvinnsla málsins hefði verið þannig að ástæða væri til að efast um að dómur aganefndar yrði staðfestur hjá ÍSÍ. Skrifað af sm 07.10.2009 15:57Kraftur fær góða tímaKraftur fær góða dóma
Bíósýningar á skagfirsku myndinni Kraftur - Síðasti spretturinn hafa mælst vel fyrir og fékk myndin m.a. fjórar stjörnur af fimm í kvikmyndagagnrýni Rásar2 í dag. Síðustu sýningardagar eru á miðvikudag og fimmtudag. Titillag myndarinnar "Einu sinni enn" er farið í spilun á útvarpsstöðvar. Lagið er eftir Árna Gunnarsson og Söndru Dögg Þorsteinsdóttur, sem jafnframt flytur lagið.Skrifað af sm
Flettingar í dag: 762 Gestir í dag: 51 Flettingar í gær: 325 Gestir í gær: 18 Samtals flettingar: 925995 Samtals gestir: 88422 Tölur uppfærðar: 31.3.2025 16:35:16 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is