Færslur: 2012 Nóvember27.11.2012 20:55FélagsfundurAlmennur félagsfundur verður haldinn í Reiðhöllinni Arnargerði, kaffistofu, fimmtudaginn 29. nóvember kl. 20.30. Rætt verður um vetrardagskrána: mót og námskeið, reiðhallarmál og fleira. Stjórnin Skrifað af selma 27.11.2012 20:52Vetrarþjálfun og járningEndurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands vekur athygli á tveimur áhugaverðum námskeiðum sem í boði eru á Hvanneyri nú í desember og janúar. Undirbúningur vetrarþjálfunar með Agli Þórarinssyni Egill Þórarinsson er einn af reyndustu reiðkennurum landsins. Hann á að baki langan og farsælan feril að baki í reiðkennslu, þjálfun, sýningu kynbótahrossa og keppnishrossa. Þetta námskeið er hugsað fyrir þá sem vilja undirbúa sig vel fyrir komandi þjálfunartímabil. Farið verður yfir atriði sem vert er að hafa í huga í byrjun vetrar, atriði sem snúa bæði að hesti og knapa. Nú er rétti tíminn til að vinna í því sem krefst nákvæmni og þolinmæði; leiðrétta taumsamband og höfuðburð, lengja og teygja á yfirlínu og styrkja bak. Námskeiðið verður einstaklingsmiðað og leitast verður eftir að meta hvern knapa og hest og leggja áherslu á að byggja og bæta grunninn í þjálfuninni sem síðan verður hægt að byggja áframhaldandi vetrarþjálfun á. Kennari: Egill Þórarinsson, reiðkennari og sýninga- og keppnisknapi. Tímar: lau. 8. des. kl 9:30-19:00 (einkatímar) og sun. 9. des. Kl 9:00-17:00 (sýnikennsla, hópatímar, o.fl.) í Hestamiðstöð Lbhí á Miðfossum. Með fyrirvara um breytingar. Verð: 26.500.- (kennsla, aðstaða fyrri hross, hádegissnarl á sunnudegi). Skráningarfrestur er til 3. des. Skráningar: [email protected] eða í síma 433 5000 (fram komi nafn, kennitala, heimili og sími). Staðfestingargjald: Staðfesta þarf skráningu með því að millifæra 7.000 kr (óafturkræft) á reikninginn 354-26-4237, kt. 411204-3590. Senda staðfestingu á netfangið [email protected] Járningar og hófhirða Einnig er búið að opna fyrir skráningar á námskeiðið Járningar og hófhirða sem fer fram í janúar. Námskeiðið er einkum ætlað bændum, hrossaræktendum og áhugamönnum. Fjallað verður um undirstöðuatriði við hófhirðingu og járningu hesta. Kennd verður hófhirðing, tálgun og járningar. Rætt verður um áhrif járningar á hreyfigetu hestsins og fjallað um gerð hófsins og hlutverk. Námskeiðið er að mestu verkleg kennsla og koma þátttakendur því með eigin járningaáhöld og hest/hesta. Hámarksfjöldi þátttakenda 10. Kennari: Sigurður Oddur Ragnarsson járningameistari og bóndi á Oddsstöðum. Tími: Lau. 12. jan., kl. 10:00-18:00 og sun. 13. jan., kl. 9:00-16:00 (19,5 kennslustundir) í Hestamiðstöð LbhÍ á Miðfossum. Verð: 22.900kr. (kennsla, gögn, aðstaða fyrir hest og veitingar). Skráningar: [email protected] eða s: 433 5000. Staðfestingargjald: Staðfesta þarf skráningu með því að millifæra 5200 kr (óafturkræft) á reikninginn 0354-26-4237, kt. 411204-3590. Minnum á Starfsmenntasjóð bænda - www.bondi.is Skrifað af selma 25.11.2012 23:00UppskeruhátíðinUppskeruhátíð húnvetnskra bænda og hestamanna var í gærkvöldi og tókst vel eins og alltaf. Eins og fyrri ár voru veitt verðlaun fyrir hesta, kýr og kindur..... Knapi ársins 2012 hjá Hestamannafélaginu Neista er Ólafur Magnússon. Hann gerir það alltaf gott á þeim mótum sem hann mætir. Var í KS-deildinni, í 1. sæti í tölti. Í úrslitum í tölti á Ís-landsmót og á Landsmóti varð hann í 10. sæti í B-flokk og 15. sæti í tölti á Gáska frá Sveinsstöðum. Óli tekur hér við viðurkenningu og auðvitað fær Inga Sóley blóm Óli og Gáski á Landsmóti 2012 Innilega til hamingju með flottan árangur. Að venju veittu Samtök Hrossabænda í A.-Hún ræktendum í félaginu viðurkenningar fyrir hæst dæmdu kynbótahrossin. Þeir félagarnir Magnús Jósefsson og Magnús Jósefsson (Þorlákur Sveinsson) sáu um að veita þær viðurkenningar ![]() ![]() Viðurkenningar kynbótahrossa: Hryssur 4 vetra
5 vetra
6 vetra Kátína frá Steinnesi F. Garpur frá Hvoli M. Kylja frá Steinnesi B: 7,57 H: 8,38 A: 8,06 Ræktendur og eigendur: Magnús Jósefsson og Tryggvi Björnsson Sýnandi: Tryggvi Björnsson Magnús var hoppandi kátur með verðlaun fyrir Kátínu 7 vetra og eldri
Stóðhestar 5 vetra
6 vetra
7 vetra og eldri
Sölufélagsbikarinn fær hæst dæmda hryssa á héraðsýningu í Húnaþingi í eigu heimamanns. Búnaðarbankabikarinn fær hæst dæmdi stóðhestur á héraðssýningu í Húnaþingi í eigu heimamanns.
Kompás frá Skagaströnd Sveinn og Líney með veðlaunin fyrir Kompás Ræktunarbú 2012 : Sunnukvistir, Skagaströnd Glæsilegur árangur, innilega til hamingju Sveinn og Líney. Skrifað af selma 21.11.2012 14:30FélagsfundurinnFélagsfundurinn verður í Reiðhöllinni Arnargerði fimmtudaginn 29. nóvember kl. 20.30. Stjórnin Skrifað af selma 21.11.2012 08:19Meistaradeild Norðurlands 2013Meistaradeild Norðurlands hefst á úrtöku þan 30 jan næstkomandi Keppnisdagar í vetur eru eftirfarandi. 30. jan. úrtaka um 6 laus sæti í deildinni. kv. Stjórn MN Skrifað af selma 20.11.2012 10:34Minnum á félagsfundinnAlmennur félagsfundur verður haldinn í Reiðhöllinni Arnargerði, kaffistofu, miðvikudaginn 21. nóvember kl. 20.30. Rætt verður um vetrardagskrána: mót og námskeið, reiðhallarmál og fleira. Stjórnin. Skrifað af selma 20.11.2012 08:51Sýnikennslur 1. des í ÞytsheimumLaugardaginn 1.desember verða þrjár áhugaverðar sýnikennslur í Þytsheimum. Dagskráin hefst kl. 17:00 og lýkur 19:30. Gert er ráð fyrir einu matarhléi og verða veitingar til sölu á staðnum.
Fram koma:
Guðmundur Arnarson þjálfari og reiðkennari
Ísólfur Líndal Þórisson þjálfari og reiðkennari
Þórarinn Eymundsson tamningameistari
Aðgangseyrir kr. 2000.- sem rennur óskiptur til hestamannafélagsins Þyts.
Frítt fyrir 14 ára og yngri.
Hvetjum alla hestamenn nær og fjær til að mæta enda um mjög áhugaverða fræðslu að ræða.
Stjórnin
Skrifað af selma 15.11.2012 16:59Í Þytsheimum 1. des.Vöru- og sölukynning
Þann
1. desember nk. verða verslanirnar Kidka, Knapinn Borgarnesi ofl. með
kynningu og sölu á vörum sínum í Þytsheimum. Þetta mæltist vel fyrir í
fyrra, nýtið ykkur tækifærið og verslið í heimabyggð!
Fræðslunefnd Sýnikennslur í Þytsheimum
Laugardagskvöldið 1.desember verða áhugaverðar sýnikennslur fyrir alla hestamenn í Þytsheimum. Skrifað af selma 15.11.2012 16:46Knapamerkja og prófdómaranámskeiðSunnudaginn 18 nóvember verður boðið upp á fræðsludag og námskeið um Knapamerkin auk þess sem prófdómurum verður boðið upp á að uppfæra dómararéttindi sín og nýjum að spreyta sig á að taka próf. Fyrri hluti námskeiðsins verður öllum opinn sem áhuga hafa á að fræðast um Knapamerkin eða ætla sér að bjóða upp á Knapamerkjanámskeið í vetur. Seinni hluti námskeiðsins er einungis hugsaður fyrir þá aðila (reiðkennara) sem hyggjast taka prófdómarapróf. Ath. Þeir sem eru með prófdómararéttindi verða mæta á þetta námskeið og taka prófdómaraprófið til að viðhalda núverandi réttindum. Skráningu í prófdómarahluta námskeiðsins lýkur föstudagskvöldið 9 nóvember. Staðsetning - Fáksheimilið og Reiðhöllin í Víðidal Dagsetning - 18 nóvember frá klukkan 10:30 til 18 Verð Dagskrá Þessi hluti námskeiðsins er opinn reiðkennurum sem hyggjast kenna Knapamerkjanámskeið og prófdómurum sem vilja uppfæra prófdómararéttindi sín. Dæmd verða 2 próf á hverju stigi Knapamerkjanna og prófgögnum skilað til prófdómara. Skrifað af selma 14.11.2012 09:14UppskeruhátíðinUppskeruhátíð búgreinafélaganna í A-Hún. og Hestamannafélagsins Neista verður haldin laugardaginn 24. nóvember n.k. í Félagsheimilinu á Blönduósi. Veislustjóri verður Gísli Einarsson. Húsið opnað kl. 19:30 með fordrykk í boði SAH Afurða . Glæsilegur 4ra rétta kvöldverður. Hljómsveitin Í sjöunda himni mun síðan leika fyrir dansi fram á rauða nótt. Miðaverð kr. 6.500. Miðapantanir hjá: Rannveigu og Rúnari s: 452 4527 / 695 3363 Stefaníu og Bjarka s: 4524338 / 862 2993 Janine og Pálma s: 452 4284 / 897 4761 Þórunni og Birgi s: 452 4572 / 893 2196 Skráningu lýkur sunnudagskvöldið 18. nóvember. Skrifað af selma 13.11.2012 08:31Almennur félagsfundurAlmennur félagsfundur verður haldinn í Reiðhöllinni Arnargerði, kaffistofu, miðvikudaginn 21. nóvember kl. 20.30. Skrifað af selma 11.11.2012 21:07Námskeið í veturÆskulýðsnefnd Neista er að hefja sitt 12. starfsár í Reiðhöllinni Arnargerði. Í fyrstu æskulýðsnefndinni, veturinn 2002, voru Finnur Karl Björnsson, Jón Ragnar Gíslason og Alda Björnsdóttir og markmið nefndarinnar var: Að kenna hestfærum börnum og unglingum undirstöðuatriði í almennri reiðmennsku, ásetu og stjórnun, hugsanlega með keppni og/eða sýningar að leiðarljósi ef við á. Mikil þátttaka var á námskeiðin strax á 1. vetri. Helga Thoroddsen og Herdís Reynisdóttir kenndu eldri krökkunum á laugardögum en nefndarmenn voru með yngri krakkana milli 16-18 nokkra daga í viku. Þá gaf Lionsklúbburinn á Blönduósi krökkunum 10 hjálma að gjöf. Námskeiðin nú í vetur verða öll á sínum stað ef næg þátttaka fæst. Reiðnámskeið fyrir börn og unglinga: byrjendur minna vana meira vana knapamerki 1, 2, 3 og 4 - lágmarks fjöldi í hóp í knapamerkjum eru 4 Bókleg og verkleg kennsla í knapamerkjum hefst snemma í janúar en önnur námskeið byrja í lok janúar. Kennari í vetur verður Sonja Noack, reiðkennari. Vinsamlegast skráið ykkur á þau námskeið sem þið hafið áhuga á netfang Neista fyrir 1. desember svo hægt verði að skipuleggja námskeiðahald vetrarins. Önnur námskeið: Einnig er fyrirhugað að vera með námskeið fyrir fullorðna í knapamerkjum 1, 2, 3 og 4 ef næg þátttaka fæst. Kennari í vetur verður Sonja Noack, reiðkennari. Vinsamlegast skráið ykkur á netfang Neista fyrir 1. desember svo hægt verði að skipuleggja námskeiðahald vetrarins. Ef einhverjar óskir eru um önnur námskeið endilega látið vita um það á netfang Neista. Sonja Noack útskrifaðist frá Háskólanum á Hólum sl. vor og hefur áhuga á að kenna allt það sem okkur dettur í hug. Ef einhver hefur t.d. misst kjarkinn og á erfitt með að fara aftur á hestbak þá getur hún verið með námskeið fyrir þá. Æskulýðsnefnd Skrifað af selma
Flettingar í dag: 762 Gestir í dag: 51 Flettingar í gær: 325 Gestir í gær: 18 Samtals flettingar: 925995 Samtals gestir: 88422 Tölur uppfærðar: 31.3.2025 16:35:16 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is