Færslur: 2009 Mars

15.03.2009 19:07

Innanfélagsmót Neista

verður á Hnjúkatjörninni Sunnudaginn 05.apríl kl: 14:00

skráning á staðnum. Þáttökugjald verður sanngjarnt.

Nánar auglýst síðar.

                                                                                                                                  Nefndin.

15.03.2009 09:59

SMALABRAUT

Krakkar það var ætlunin að hafa æfingabraut í smalanum í dag en vegna efnis vöntunar verður það ekki,
í staðinn ætlum við að setja upp smalabraut á
þriðjudags- og miðvikudagskvöld Kl:20:00 - 21:30 og Sibba ætlar að leiðbeina ykkur.
Gott væri ef þeir sem eru á námskeiðum þessi kvöld noti tækifærið
og æfi sig.
Vonum að þessi breyting komi sér ekki ílla hjá ykkur.

Kveðja Æskulýðsnefnd

13.03.2009 09:10

Áskorendamót Riddara Norðursins

 

Laugardagskvöldið 14. mars kl.20.00

Í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkrók 

Mótið hefst á setningarathöfn þar sem Riddarar fara á kostum.

Að lokinni setningarathöfn munu úrslitin hefjast og búist er við magnaðri keppni.

Þar mætast stálin stinn í feiknalegri keppni um glæsilegan farandgrip.

Liðin sem skráð eru til leiks:

·       Lið Þorbjörns Matthíassonar Liðstjóri er Lúlli sjálfur.

·       Lið Narfastaða Liðstjóri Bjarni Jónasson.

·       Íbisliðið Liðstjóri Magnús B Magnússon.

·       Lið Vatnsleysu Liðstjóri Björn Jónsson.

·       Lið Víðdælinga Liðstjóri Elvar Logi Friðriksson.

·       Lið Riddara Norðursins Liðstjóri Lilja Pálmadóttir.

Keppnin er þannig að riðin verða úrslit á milli liðanna í fjórgang, fimmgang, tölti og skeiði.

Aðgangseyrir aðeins 1000. kr.

Gleði og söngur verður í anddyri reiðhallarinnar að móti loknu.
Hvetjum sem flesta að koma í höllina og gleðjast með okkur.

11.03.2009 14:31

Stórsýningin 28. mars

Vegna fjölda ákskorana um að hafa Stórsýninguna á laugardegi höfum
við ákveðið að færa hana fram um einn dag og verður hún
laugardaginn 28. mars kl. 15.00
.

11.03.2009 10:58

Hvammstangahöllin

SMALINN

Næsta mót í Húnvetnsku liðakeppninni er SMALINN.
Það verður 20. mars nk í Hvammstangahöllinni.
 Skráning hjá Kollu á emeil: [email protected] fyrir miðnætti þriðjudagsins 17. mars. Fram þarf að koma nafn knapa, hestur, ætt, litur og aldur.
Brautin verður tilbúin um næstu helgi og verður líklega mjög svipuð og teikningin af Smalanum sem verður á grunnskólamótinu (læt hana fylgja hér með) og ætlar mótanefnd að setja hana upp og auglýsa tíma þar sem keppendur geta komið og prufað brautina. Þessi teikning er eins eða mjög svipuð og brautin er í KS deildinni.
En annars verður hún þannig að það verður farið á milli staura, upp á pall, í kringum staura osfrv. Þannig að það er hægt að byrja að æfa gæðingana þótt brautin sé ekki komin upp.

Keppt verður í Unglingaflokki, 2. flokki og 1. flokki.
Stig í Unglingaflokki eru 3 -2-1-1-1,
stig í 2. flokki eru 10-9-8-7-6-5-4-3-2-1 og
 stig í 1. flokki eru 10-9-8-7-6-5-4-3-2-1. Í 1. og 2. flokki fá 10 hestar að fara brautina aftur en
 5 í Unglingaflokki.



Mótanefnd Húnvetnsku liðakeppninnar
Kolla, Logi og Fanney


fengið af heimasíðu Þyts

10.03.2009 08:48

Aðalfundurinn í kvöld

Minnum á aðalfundinn í kvöld 10. mars kl. 20:30
Fjölmennum  emoticon

09.03.2009 22:44

Einkunnir úr forkeppni á Ís-Landsmóti

Þar sem fjölmargar óskir um að birta einkunnir úr forkeppni hafa borist verður það gert hér. Lesendur verða þó að hafa það hugfast að þetta eru ekki "löglegir" dómar, aðeins tveir dómarar dæmdu undir mikilli tímapressu og sjálfsagt má finna einhverjar tölur sem eru umdeilanlegar. Tilgangurinn var að sýna fjölda af góðum hrossum á stuttum tíma og að bestu hrossin og knaparnir yrðu í efstu sætum.  Dóma má finna hér. 

09.03.2009 11:05

Stórsýningin í Reiðhöllinni 29. mars nk. kl. 15.00

Ákveðið hefur verið að halda Stórsýninguna 29. mars nk. kl. 15.00.
Í vetur er 10. starfsár Reiðhallarinnar og upplagt að halda fjölskyldusýningu.
Af nógu er að taka því það er mikil gróska hér á svæðinu í hestamennsku. Mikið er tamið og mótahald er umfangsmikið eins og t.d. mátti sjá á frábæru Ís-Landsmóti. Þar komu fram mörg góð hross úr A-Hún og í úrslit voru frábær hross frá ræktunarbúunum, Hólabaki, Steinnesi og Sveinsstöðum, til hamingju með það. Barna- og unglingastarf er í fullum gangi, u.þ.b. 50 börn eru á námskeiðum og einnig tóku nokkrar konur sig saman og eru á  námskeiðum. Svo framundan eru endalausar æfingar fyrir skemmtileg atriði hjá börnum, unglingum, konum og körlum. Þeir sem  hafa áhuga á að vera með atriði endilega hafi samband við Hödda í s: 8940081 eða Selmu í s: 6619961.

09.03.2009 11:01

Að afloknu Ís-landsmóti

Nú að afloknu Ís-landamóti á Svínavatni er það helsta sem eftir stendur að mótið tókst í alla staði afskaplega vel. Veðrið var frábært, ísinn góður og dagskráin stóðst mjög vel, byrjað var á mínútunni kl. 9.30 og mótinu lauk um kl. 5.30 sem var heldur fyrr en áætlað hafði verið.

 Dagskráin var keyrð stíft áfram og ekkert mátti útaf bregða til að við lentum í tímahraki, en það er styðst frá því að segja að aldrei þurfti að bíða eftir knöpum og eiga þeir skilið sérstakt hrós fyrir það. Einnig stóðu starfsmenn, sem allir voru sjálfboðaliðar, sig frábærlega við að gera mótið svo vel heppnað og eru þeim hér með færðar bestu þakkir.

 Úrslit eru birt hér á síðunni fyrir neðan, en fyrir mistök voru þau ekki alveg rétt í fyrstu en hafa verið leiðrétt.

 Á mótinu voru 212 sýningar, 175 hestar tóku þátt og 110 knapar.

Upptökur frá mótinu verða aðgengilegar á hestafréttir.is fljótlega, en ekki tókst að senda beint út frá mótsstað.

Við munum halda okkur við að hafa mótið laugardaginn í 10. viku ársins og verður það því 6. mars á næsta ári.

08.03.2009 13:43

Grunnskólamót í hestaíþróttum

Grunnskólamót Norðurlands vestra í hestaíþróttum verður sett á í vetur.
 Þetta er alveg nýtt af nálinni og er hugmynd sem kviknaði hjá Smára Haraldssyni á Sauðárkróki sem í samstarfi við Geir Eyjólfsson unglingaráðsfulltrúa Léttfeta skipulögðu keppnina.

Keppnin verður haldin í samstarfi við hestamannafélögin
Léttfeta, Stíganda, Svaða, Neista og Þyt
og mega allir skólar á Norðvestur svæðinu taka þátt.
 Keppt verður í þremur aldursflokkum.
 1.-3. bekkur keppir  í fegurðarreið á brokki eða tölti.
 4.-7. bekkur keppir í tölti, þrígangi (fet, tölt og brokk) og smala og
8.-10. bekkur keppir í tölti, fjórgangi, smala og skeiði.
Þetta verður stigakeppni þar sem keppendur vinna stig fyrir skólann sinn og stigahæsti skólinn fær veglegan bikar að launum.
Að sögn þeirra Smára og Geirs verður þetta alvöru keppni og
látið reyna á krakkana og þá sérstaklega þá elstu.

Fyrsta mótið af þremur verður haldið í Svaðastaðahöllinni 21. mars.
annað mótið verður á Hvammstanga 4. apríl n.k.
 og svo það þriðja á Blönduósi 18. apríl n.k

hér er mynd af smalabrautinni sem verður á mótinu. Hún kemur svo auðvitað til með að breytast eitthvað á milli staða vegna mismunandi stærðar á höllum


Skráning á mótið fyrir grunnskólana í A-Hún er í síðasta lagi Þriðjudaginn 17..mars á netfangið [email protected]

fram þarf að koma :
nafn,aldur og skóli knapa:
nafn,aldur og litur hests.

07.03.2009 21:10

 




Nú er frábæru Ís-Landsmóti lokið,

 
þetta er án efa stærsta ísmót sem haldið hefur verið utan dyra. Veðrið var alveg hreint frábært og mótið gekk vel í alla staði og tókst mótshöldurum að ljúka mótinu hálftíma fyrir áætlun.

Hans Friðrik Kjerúlf sigraði B-flokkin með frábærri sýningu og töltið eftir að Freyðir frá Hafsteinsstöðum reif undan sér skeifu fyrir síðustu yfirferðina. Sigurður Sigurðarson og Freyðir voru lang efstir eftir hæga töltið og hraðabreytingar.

Vignir Siggeirsson var á heimaræktuðum gæðingi Óm frá Hemlu. Þeir báru af á tölti og skeiði, þeir áttu frábæra sýningu. Vignir kom annar inn í úrslit á eftir Hinriki Bragasyni og Straum frá Breiðholti.

 

Hér eru heildarúrslit frá hinu vinsæla Ís-Landsmóti á Svínavatni sem haldið var í blíðskapar veðri í gær. Mótið gekk eins og í sögu og hrossin voru afburðar góð.

B - Flokkur Úrslit          
             
 Nr Knapi Hestur Aldur litur Samtals       
 1 Hans Friðrik Kjerúlf Sigur frá Hólabaki  6v.  sótróður stjörn 8,74       
 2 Árni Björn Pálsson Kjarni frá Auðsholtshjáleigu  6v.  jarpur 8,67       
 3 Lena Zielinski Gola frá Þjórsárbakka  6v.  rauðstjörnótt 8,66       
 4 Jakob Svavar Sigurðsson Kaspar frá Kommu  8v.  rauðglófextur 8,60       
 5 Þórdís Erla Gunnarsdóttir Frægð frá Auðholtshjáleigu  6v.  móálótt 8,53       
 5 Sigurður Sigurðarson Gerpla frá Steinnesi rauðstj.   8v.  rauðstjörnóttur 8,49       
 7 Sölvi Sigurðarson Glaður frá Grund 8v  rauðglófextur stj 8,43       
 8 Bylgja Gauksdóttir Þöll frá Garðabæ  5v.  bleik 8,31       
    
 A - Flokkur  - Úrslit   
      
 Nr Knapi  A-flokkur Hestur Aldur litur Samtals
 1. Vignir Siggeirsson Ómur frá Hemlu  8v.  rauður 8,82
 2. Jón Pétur Ólafsson Fróði frá Staðartungu  7v.  bleikálóttur 8,54
 3. Sölvi Sigurðarson Seyðir frá Hafsteinsstöðum  8v.  rauður 8,47
 4. Eyjólfur Þorsteinsson Ögri frá Baldurshaga   jarpur 8,44
 5. Elvar Þormarsson Bylgja frá Strandarhjáleigu  7v.  móálótt 8,43
 6. Páll B. Bálsson Glettingur frá Steinnesi  8v grár 8,39
 7. Hinrik Bragason Straumur frá Breiðholti   7v. rauðtvístjörn 8,30
 8. Steingrímur Sigurðsson Sturla frá Hafsteinsstöðum  10v.  rauðstjörnóttur 7,87


Tölt - Úrslit   
      
Holl Nr Knapi Hestur Aldur litur Samtals
 1. Hans Friðrik Kjerúlf Sigur frá Hólabaki 6v  sótróður 8,00
 2. Lena Zielinski Gola frá Þjórsárbakka  6v.  rauðstjörnótt 7,83
 3. Valdimar Bergstað Leiknir frá Vakurstöðum  9v.  brúnn 7,67
 4. Ólafur Magnússon Gáski frá Sveinsstöðum  11v.  brúnn 7,67
 5. Artemisia Bertus Rósant frá Votmúla I  11v.  rauðstjörnóttur 7,50
 6. Sigurður Sigurðarson Freyðir frá Hafsteinsstöðum  12v grár 7,50
 7. Þórdís Erla Gunnarsdóttir Pipar - Sveinn  6v. brúnn 7,33
 8. Gústaf Ásgeir Hinriksson Knörr frá Syðra Skörðugili 13v bleikálótt 6,83
 9. Bylgja Gauksdóttir Hera frá Auðsholtshjáleigu  6v.  brún 6,83
 10. Teitur Árnason Váli frá Vestmannaeyjum 10v  rauður  5,83

05.03.2009 23:08

Urmull af gæðingum mætir á Svínavatn

Skráningar eru rúmlega 230 þannig að þetta verður trúlega stærsta hestamannamót sem haldið verður norðanheiða í ár. Fjöldinn af stórstjörnum meðal þátttakenda er slíkur að útilokað er að tilgreina einhverja sérstaka, en vísað á fyrirliggjandi ráslista þar um.

Dagskráin hefst við sólarupprás kl. 9.30. stundvíslega á B-flokk, síðan A-flokk og endað á tölti. Úrslit verða riðin strax á eftir hverri grein.Áætlað er að mótinu ljúki kl. 18. Mótið verður tekið upp af Ben Media og verður aðgengilegt á vefsjónvarpi hestafrétta á sunnudag . Einnig verður bein útsending á hestafrettir.is ef ekki koma upp óvænt tæknileg vandamál á síðustu metrunum. Veðurspáin er mjög hagstæð, úrkomulaust, dálítið frost og nánast logn.

 Áhugafólk er hvatt til að mæta og sjá fullt af stórglæsilegum hrossum og þar af mikið af háttdæmdum keppnis og kynbótahrossum á þessu sterkasta ísmóti vetrarins.

04.03.2009 21:24

Aðalfundur

Aðalfundur
Hestamannafélagsins Neista
verður haldinn þriðjudaginn 10. mars 2009 kl. 20.30
í Reiðhöllinni Arnargerði.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Lagabreytingar.
Stjórn Hestamannafélagsins Neista.

04.03.2009 21:16

Veitingar og fleira

Veitingar verða seldar á svæðinu s.s. heitir drykkir, heitar samlokur, pylsur, pönnukökur, kleinur, gos og sælgæti. Ekki verður hægt að nota kort þannig að fólk þarf að hafa meðferðis einhverja aura. Eigi einhver eftir að greiða skráningagjöld þarf að gera það í síðasta lagi við vallarenda. Skrá verður til sölu á 1.000. kr. Salernisaðstaða verður á staðnum og einnig í Dalsmynni við Auðkúlurétt. Dagskránni verður útvarpað á svæðinu á FM 103,7 

 Í tilefni af Ís-Landsmóti á Svínavatni laugardaginn 7. mars

Bjóðum við upp á þriggja rétta kvöldmáltíð.

Forréttur 

Humarsúpa með rómatopp og hvítlauksbrauði.

Aðalréttur

Kalkúnabringa með fondante kartöflu, gljáðu grænmeti og rauðvínssósu.

Eftirréttur

Mangoís með ferskum ávöxtum.

3.890 kr.

Eftir borðhald spila Haldpokarnir fram eftir nóttu.

Frítt inn

Pizzutilboð alla daga

12" pizza með tveimur áleggstegundum og 1/2 líter kók.

1.290 kr.

Borðapantanir í síma 453 5060

Potturinn og Pannan Blönduósi

04.03.2009 21:13

Staðsetning

Mótssvæðið er við suðurenda Svínavatns og er styðst fyrir þá sem koma að norðan að fara yfir Svartárbrú skammt norðan við Húnaver, síðan yfir Blöndubrú og þá blasir svæðið við eftir c.a. 8 km.

Þeir sem koma að sunnan geta farið Reykjabraut sem er þegar búið er að fara fram hjá Stóru Giljá, þá er komið að norður enda Svínavatns, þá þarf að keyra c.a. 15 km. Þar til komið er að suður endanum.

Einnig er hægt að fara á Blönduós og aka Svínvetningabraut c.a. 25 km. Þá er komið á svæðið.

Flettingar í dag: 574
Gestir í dag: 57
Flettingar í gær: 1125
Gestir í gær: 95
Samtals flettingar: 434552
Samtals gestir: 51291
Tölur uppfærðar: 27.4.2024 15:05:00

Vafraðu um

Eldra efni

Um hestamannafélagið Neista

Nafn:

Hestamannafélagið Neisti

Afmælisdagur:

1943

Heimilisfang:

540 Blönduós

Staðsetning:

Blönduós

Um:

Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.

Kennitala:

480269-7139

Tenglar

clockhere