07.06.2021 20:37Sýning ræktunarbúa á Fjórðungsmóti 2021Sýningar ræktunarbúa skipa ávallt heiðurssess á Fjórðungsmótum, og á Fjórðungsmóti 2021 í Borgarnesi verður engin breyting þar á. Stefnt er á að tilhögun sýninga verði með svipuðu sniði og verið hefur á undanförnum mótum, þ.e. að þátttaka verði bundin við 10 ræktunarbú. Sýning ræktunarbúa eru áætluð á dagskrá mótsins föstudagskvöldið 9. júlí eftir kl. 19:00 og mun áhorfendum verða boðið að taka þátt við að velja besta ræktunarbúið með kosningu.
Þáttökugjaldið er kr.60.000. Skrifað af Selma 06.06.2021 19:50Frá æskulýðsnefnd!Æskulýðsnefnin bíður uppá keppnisnámskeið fyrir börn, unglinga og ungmenni fyrir úrtöku og fjórðungsmót. Einnig hyggst æskulýðsnefnd bjóða börnum og fullorðnum á öllum aldri í ferð í Þingeyrar dagana 25.-27. júní þar sem verður grillað og vonandi gist. Nánari ferðatilhögun (reiðleið og tímasetninngar) verður sett inn síðar.
Uppskeruhátíð barna- og unglingastarfsins var haldin í lok apríl. Þá var farinn langur útreiðatúr, grillaðar pylsur, farið í leik í reiðhöllinni og viðurkenningarskjöl afhent. Kennarar í vetur voru þær Bergrún Ingólfsdóttir og Guðrún Rut Hreiðarsdóttir. Færum við þeim bestu þakkir fyrir frábærlega góðan og skemmtilegan vetur.
Hér eru nokkrar myndir frá uppskeruhátíðinni.
Skrifað af Selma 29.05.2021 17:04Úrtaka og gæðingamótHestamannafélögin Þytur og Neisti halda saman úrtöku fyrir Fjórðungsmót Vesturlands sem haldið verður í sumar í Borgarnesi. Þytur mun einnig hafa mótið sem sitt gæðingamót en Neisti einungis sem úrtökumót (12. júní). A-flokk gæðinga Skrifað af Selma 07.05.2021 19:56Úrtökumót fyrir Fjórðungsmót VesturlandsHestamannafélögin Neisti og Þytur standa fyrir Úrtökumóti fyrir Fjórðungsmót Vesturlands sem haldið verður í sumar í Borgarnesi. Stefnt er á að Úrtöku- og Félagamótið fari fram 12-13 júní, á vallarsvæði Þyts með þeim fyrirvara að nýji völlurinn þeirra verði í lagi (annars verður það haldið í Neista). Boðið verður uppá A-flokk gæðinga, B-flokk gæðinga, ungmennaflokk, unglingaflokk, barnaflokk og pollaflokk. Við viljum minna á að þátttaka á mótinu er bundin aðild að hestamannafélögunum Neista og Þyt í barna-, unglinga- og ungmennaflokki og hross þurfa einnig að vera í eigu félagsmanna. En í A- og B-flokki þarf eigandi hestsins (keppandans) að vera í Neista eða Þyt. Fyrir hönd Neista komast 5 inn í hverjum flokki og eru tveir vara hestar. Það verða riðinn úrslit á Úrtöku- og Félagsmótinu en forkeppnin gildir þó inn á Fjórðungsmótið.
Nánari upplýsingar verða birtar síðar.
Með góðum kveðjum mótanefnd Neista
Skrifað af Selma 01.05.2021 20:31Úrslit úr þrígangsmótiHér koma úrslit úr skemmtilegu og velheppnuðu þrígangsmóti.
Pollarnir með verðlaunin sín:
Unghrossa flokkur 1. Guðmundur og Ólga, ae. 6,7 Unglingar 1. Inga Rós og Andvari, ae. 7,7 1. Ásdís Freyja og Pipar, ae. 8,60
1. flokkur 1. Hafrún Ýr og Gjöf, ae. 8,30
Opinn flokkur 1. Jakob Víðir og Stefnir, ae. 8,50 Skrifað af Selma 29.04.2021 21:24RáslistinnFyrirkomulagið fyrir Þrígangsmótið (keppendur):
Sýna skal a.m.k. þrjár gangtegundir í fjórum ferðum. Knapi hefur sjálfur val um hvaða gangtegundir hann sýnir, en sýna ber þrjár af fimm viðurkenndum gangtegundum íslenska hestsins. Dómskali gæðingakeppni gildir og sýna dómarar einkunn eftir hverja ferð. Gefin er ein einkunn fyrir tölt. Ef bæði er sýnt hægt og greitt tölt gildir hærri einkunn (hægt tölt og greitt tölt telst ekki sem tvær gangtegundir) Keilur afmarka þar sem hestur er í dómi.
Ekki eru riðin úrslit nema í 1. flokki og opnum flokki.
Verðlaunaafhending er strax á eftir hverjum flokki fyrir sig.
Pollar
7. Victor Líndal Magnússon og Fjörnir frá Kjalarlandi, brúnn
1. Harpa Katrín Sigurðardóttir og Jarpblesi frá Hnjúki, jarpblesóttur með leista Unghrossa flokkur 1. Guðmundur Sigfússon og Ólga, 4v. brún 1. Ásdís Freyja Grímsdóttir og Pipar frá Reykjum, draugmoldóttskjóttur
Opinn flokkur 1. Ægir Sigurgeirsson og Gleði frá Stekkjardal, rauðblesótt
Skrifað af Selma 29.04.2021 12:30SkráningargjöldVið minnum þátttakendur á Opna þrígangsmótið að greiða skráningargjöldin fyrir kl. 19.00 í dag inná 0307-26-055624 kt. 480269- 7139 (Pollar frítt - börn og unglingar 1.500 og fullorðnir 2.000) Skrifað af Selma 19.04.2021 15:17Þrígangsmót - opið!Nú er kominn ný dagsetning fyrir Opna þrígangsmótið sem er síðasta mótið í mótaröð Neista og SAH afurða 2021. Skrifað af Selma 19.04.2021 12:11Ný stjórn Samtaka hrossabænda í A-HúnÁ aðalfundi Samtaka Hrossbænda í A.-Hún. í gærkvöldi var kosin ný stjórn. Hana skipa: Á fundinum voru ræktendum í félaginu veittar viðurkenningar fyrir hæst dæmdu kynbótahrossin. Stóðhestar 4. vetra Ræktunarbú ársins 2020 Skrifað af Selma 18.04.2021 10:48Aðalfundur Samtaka hrossabænda í A.-HúnAðalfundur Samtaka hrossabænda í A-Hún verður haldinn sunnudagskvöldið 18. apríl kl 20:00 í reiðhöllinni, Arnargerði.
Dagskrá:
Reikningar félagsins
Framtíð félagsins
Kosningar
Önnur mál
Stjórnin
Skrifað af Selma 17.04.2021 12:23Hesthús í byggingu
Skrifað af Selma 05.04.2021 20:40Frestun þrígangsmótsVegna núverandi reglna er varða covid19 verður að fresta þrígangsmóti sem vera átti 7/4 næstkomandi, mótið mun verða haldið síðar í mánuðinum ef aðstæður leyfa. Skrifað af Ásmundur Óskar Einarsson 25.03.2021 13:34Fundargerð aðalfundar
Fundargerð
Efni: Aðalfundur Hestamannafélagsins Neista Staður og dags: Reiðhöllin Arnargerði, 24.03.2021
Mótahald: Mótanefnd hélt utan um mót vetrarins og voru þau styrkt af SAH afurðum og voru þau ágætlega sótt, þangað til Covid setti strik í reikninginn og mótahald felt niður.
Svínavatnsnefnd ný stjórn þarf að virkja nýja nefnd og koma þessu móti á sinn gamla stall.
Námskeið. Almennt námskeið, Pollanámskeið, Knapamerki 1 og 2 allt vel sótt en því miður þurfti að hætta vegna heimsfaraldursins.
Knapi ársins 2020 var valinn Lilja Maria Suska en ekki var uppskeruhátið Neista og búgreinafélaganna í A-Hún að þessu sinni. Hún er vel að titlinum komin enda átti hún gott tímabil á skeiðhestinum Viðari frá Hvammi 2, þau eru í 19. Sæti á stöðulista í 100 metra skeiði en áttu best tímann 7,73
Snjómokstur. Neisti hefur staðið frammi fyrir kostnaði vegna snjómoksturs á síðustu misserum þó ekki líkt og í fyrra.
Worldfengur. Hestamannafélagið keypti aðgang að myndefni á Worlfeng þannig nú er hægt að skoða myndbönd frá landsmótum
Reiðhallarmál voru forgangsmál hestamannafélagsins á síðasta ári og er sú vinna ekki jafn langt komin og vonir stóðu til. Málið er í skoðun hjá Samtökum hrossabænda í A-Hún og sveitarfélögunum en Neisti þarf að beita sér enn frekar fyrir því að málið verði leitt til lykta.Vinnuhelgi og auka dagar fóru í að gera salinn uppi huggulegri en því miður er enn ólokið nokkrum þáttum
Viðburðir: Folaldasýning í janúar auk móta áður en frestað var.
17.júní: Neisti sá ekki um skipulagningu og framkvæmd dagskrár 17. júní líkt og síðustu ár enda hátíðarhöldum frestað
3. Ársreikningur.
Gjaldkeri fór yfir ársreikning 2020. Hagnaður ársins voru 373.107 kr. sem skýrist að mestu leyti af lottótekjum og styrkjum til vegna ákveðna verkefna. Formarður þakkar gjaldkera fyrir gott starf og skilar stjórnin góðu búi til nýrrar stjórnar
Umræður um skýrslu stjórnar og ársreikning.
Nokkarar spurningar úr sal er varðar ársreikning sem gjaldkeri svaraði gaumgæfilega
Vísað í skýrslu stjórnar, farið yfir það góða verk sem hefur verið í nefndum áður en allt lokaði. Reiðveganefnd er ötul að gæta hagsmuna reiðvega og áningastaða í umdæminu.
Félagsmönnum Neista hefur fækkað um 8 á árinu og eru nú 204.
Reiðveganefnd skipa: Kristján Þorbjörnsson Magnús Ólafsson Jón Árni Magnússon
Vallarnefnd skipa: Páll Þórðarson Bergþór Gunnarsson Víðir Kristjánsson Hjörtur Karl Einarsson Ásmundur Sigurkarlsson
Mótanefnd skipa: Jón Kristófer Sigmarsson Halldór Þorvaldsson Guðmundur Sigfússon Halla María Þórðardóttir Fjóla Dögg Björnsdóttir Arnleif Axelsdóttir
Æskulýðsnefnd skipa: Álfheiður Ösp Haraldsdóttir Magnea Jóna Pálmadótti Sigurey Ólafsdóttir Lára Dagný Sævarsdóttir Kristín Jósteinsdóttir.
Stjórnarkjör:
Kosið er um formann til eins árs og tvö stjórnarsæti til tveggja ára. Lisa Halterlein og Berglind Bjarnadóttir ljúka sínum kjörtímabilum. Kolbrún Ágústa Guðnadóttir gefur ekki kost á sér til áframhaldandi setu en Guðjón Gunnarsson heldur áfram á seinna ár. Magnús Sigurjónsson formaður gefur ekki kost á sér til formanns.
Ný stjórn Hestamannafélagsins Neista skipa: Ásmundur Óskar Einarsson formaður Selma Svavarsdóttir (til tveggja ára) Halla María Þórðardóttir (til tveggja ára) Ásmundur Sigurkarlsson (til eins árs) Guðjón Gunnarsson (er á seinna ári kjörtímabils)
Spjall um hitt og þetta
25.03.2021 13:29Fjórgangur úrslitPollaflokkur: Margrét Viðja Jakobsdóttir og Hetta Kristrún Ýr Jónsdóttir og Kóngur Viktoría Guðjónsdóttir og Feykir
Fjórgangur: 1)Guðrún Rut Hreiðarsdóttir Kristall frá Skagaströnd 6,50 2) Jón Kristófer Sigmarsson Lygna frá Lyngholti 6,0 3) Berglind Bjarnadóttir Kvasir frá Steinnesi 5,8 4) Jakob Víðir Kristjánsson Stefnir frá Réttarholti 5,50 5) Aron Halldórsson Melódía frá Óslandi 5,40
24.03.2021 13:48FjórgangurFjórgangur Sjáumst klukkan 18:00
Pollaflokkur: Margrét Viðja Jakobsdóttir og Hetta Kristrún Ýr Jónsdóttir og Kóngur Viktoría Guðjónsdóttir og Feykir
Fjórgangur: Guðrún Rut Hreiðarsdóttir Sinfionía frá Krossum Berglind Bjarnadóttir Ósk frá Steinnesi Halldór Þorvaldsson Skálmöld frá Óslandi Kristín Erla Sævarsdóttir Obama frá Dýrfinnustöðum Hjördís Þórarinsdóttir Smiður frá Ólafsbergi Jakob Víðir Kristjánsson Stefnir frá Réttarholti Aron Halldórsson Melódía frá Óslandi Jón Kristófer Sigmarsson Lygna frá Lyngholti Guðrún Rut Hreiðarsdóttir Kristall frá Skagaströnd Berglind Bjarnadóttir Kvasir frá Steinnesi Flettingar í dag: 233 Gestir í dag: 102 Flettingar í gær: 514 Gestir í gær: 299 Samtals flettingar: 442479 Samtals gestir: 52935 Tölur uppfærðar: 8.5.2024 06:16:38 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is