23.03.2010 10:27Myndir úr GrunnskólamótiSonja Suska tók myndir úr Grunnskólamótunum og sendi okkur slóðina á þær, takk fyrir það frá Hvammstanga frá Blönduósi Skrifað af selma 21.03.2010 20:25Úrslit grunnskólamótsinsFrábærlega vel heppnað mót var í dag í Smala Grunnskólamótsins. Þökkum við öllum sem að þessu móti kom á einn eða annan hátt kærlega fyrir. Úrslit urðu þessi:
Stigin standa svo:
Skrifað af selma 19.03.2010 10:11Ráslisti Grunnskólamótsins
Skrifað af selma 18.03.2010 10:42Grunnskólamótið á BlödnuósiGrunnskólamótið verður í Reiðhöllinni Arnargerði á Blönduósi
Skráningar þurfa að hafa borist fyrir á netfangið: [email protected] Fram þarf að koma: nafn, bekkur og skóli knapa. Nafns hests, aldur, litur, keppnisgrein og upp á hvora hönd er riðið.
og skal greiða á staðnum áður en mót hefst.
Dagskrá: Smali 4-7. bekkur. Smali 8-10. bekkur.
Fegurðarreið 1-3. bekkur. Skeið 8-10. bekkur. ATH. Í smala er EKKI leyft að ríða með stangir. Skrifað af selma 18.03.2010 10:38KS-deildin úrslit fimmgangur
Eftir forkeppnina var í raun ekki nokkur leið að spá fyrir hver myndi sigra og til gamans má geta að öll níu hrossin sem komust í úrslit eru 1. verðlauna kynbótahross. Í B-úrslitunum hafnaði Ólafur og Ódysseifur í 9. sæti eftir að skeiðið hafði misheppnast. Jöfn í 7. og 8. sæti lentu Heiðrún með Venusi og Ísólfur með Kraft og verður að viðurkennast að Kraftur olli smá vonbrigðum en þeir komu efstir inn í úrslitin. Magnús Bragi með Vafa og Elvar með Smáralind börðust um sigurinn hafði Magnús forystuna þar til í skeiðinu en þá skaust Elvar tveimur kommum upp fyrir hann og komst þannig inn í A-úrslitin. Í A-úrslitunum höfnuðu Mette og Háttur í fimmta sæti en skeiðið heppnaðist ekki sem skyldi. Elvar komst upp í fjórða sæti og Erlingur með gæðinginn Blæ sóttu þriðja sætið. Tveir knapar börðust helst um fyrsta sætið en það voru Þórarinn með Þóru og Bjarni með Djásn og var keppnin jöfn en það er skemmst frá því að segja að Bjarni náði strax forystunni og sleppti henni aldrei og fór með sigur af hólmi. Eftir þrjár keppnir er Bjarni í forystunni, Ísólfur annar, Ólafur þriðji og Mette fjórða en mjótt er á mununum og þegar tvær greinar eru eftir smali og skeið getur allt gerst.Skrifað af selma 17.03.2010 12:50Smalabrautin upp í kvöldSmalabrautin verður sett upp í kvöld á milli 18.00 og 20.00 fyrir þá sem vilja æfa sig fyrir smalann á sunnudag. Æskulýðsnefndin Skrifað af selma 17.03.2010 11:04Jóar þandir á spegilfögum ísnumMargir hafa efalaust haldið það óðs manns æði að ríða Svínavatn á ís nú á miðri Góu, þegar búin var að vera langvarandi hláka. En ráðsettir bændur við vatnið töldu þetta í góðu lagi, ísinn væri um eða yfir hálfan meter á þykkt á þessum árstíma þrátt fyrir hlýindin og engin hætta á að hann brysti þótt hópur manna leggði jóa sína um vatnið þvert. Það var á þriðja tug karla, sem safnaðist saman í Bótinni norðanvert við vatnið. Láskýjað var en logn og indælis veður. Eftir liðskönnun var haldið út á vatnið undir öruggri leiðsögn Gísla á Mosfelli og Ægis í Stekkjardal. Ísinn var sléttur og reiðfæri eins og það best getur orðið. Hvorki var vatn né snjór á ísnum og gleði í mönnum og hestum.
Trúlega eru fá vötn í byggð með jafn öruggan ís, enda liggur vatnið nokkuð hátt og er mjög djúpt. Langoftast er ísinn líka sléttur, enda veðursæld í Svínadal. Þar hafa verið haldin fjölsótt mót undanfarna vetur, ætíð í góðu veðri að undanskildu mótinu sem haldið var í vetur. Meginþorri þátttakenda í þessari karlareið var úr Húnaþingi, en svo voru dæmi um að menn kæmu með hesta langan veg til að taka þátt í þessari upplifun og urðu eigi fyrir vonbrigðum. Vitað var um allmarga, sem ætluðu að koma með, en afleit veðurspá aftraði þeim þar sem spáð var miklu úrfelli hér norðanlands þennan dag. En sú spá rættist ekki og í ferðinni höfðu sumir á orðið að það væri alveg frábært fyrir ferðaþjónustuaðila í héraði að bjóða upp á reglulega reiðtúra um vatnið. Ferðinni lauk við Dalsmynni sunnan við vatnið eftir að riðnir höfðu verið hátt í tugur kílómetra. Þaðan var hestum ekið til Blönduóss og menn söfnuðust saman í Reiðhöllinni Arnargerði þar sem grillað var og gleði fram eftir kvöldi. Magnús Ólafsson Skrifað af selma 16.03.2010 21:18Knapamerkjanámskeiðstími fellur niður !Knapamerkjanámskeiðstímar falla niður á morgun 17/3. Ekki verða heldur tímar un helgina en látið verður vita tímanlega um næstu tíma.Væntanlega verða þeir þó miðvikudaginn 24/3 hjá þeim sem hefðu átt tíma á morgun ! Skrifað af HBE 15.03.2010 22:10Fimmgangur í KS-deildinniNæstkomandi miðvikudagskvöld verður keppt í fimmgangi í KS-deildinni. Það verður örugglega mikil spenna í Svaðastaðahöllinni og hefst keppni kl: 20:00. Stigakeppnin er mjög jöfn og ljóst er að knapar meiga ekki við miklum mistökum ætli þeir sér að vera áfram í baráttunni um efstu sæti. Mjög gott áhorf hefur verið á þau mót sem búin eru í deildinni og mikil stemming. Spennan er mikil og verður spennandi að fylgjast hverjir raða sér í efstu sæti. Ráslisti í fimmgang 17. mars 2010.
Skrifað af selma 15.03.2010 22:05Bréf frá MatvælastofnunSláturhúsum
er óheimilt að taka við ómerktum hrossum eftir 1. apríl 2010 Reglugerð um einstaklingsmerkingar búfjár
tók gildi árið 2005 þar sem m.a. er kveðið á um að skylt sé að skrá og
einstaklingsmerkja öll hross eldri en 10 mánaða. Í byrjun voru hross fædd fyrir
árið 2003 undanþegin merkingarskyldu en nú hefur sú undanþága verið felld úr
gildi. Hross sem fædd eru árið 2008 og síðar skulu vera örmerkt en frostmerki
eru viðurkennd í eldri hrossum, að því gefnu að þau séu læsileg. Á þeim 5 árum sem liðin eru frá gildistöku
laganna hefur orðið afar jákvæð þróun í einstaklingsmerkingum hrossa en betur
má ef duga skal. Til að tryggja rekjanleika afurða, matvælaöryggi
og útflutningshagsmuni er nauðsynlegt að herða eftirfylgni með merkingum
hrossa. Eigendur hrossa bera alla ábyrgð
á að hross þeirra séu skráð og merkt. Ennfremur bera þeir ábyrgð á að hross sem
þeir senda til slátrunar séu ekki í sláturbanni vegna lyfjameðhöndlunar.
Dýralæknum er skylt að skrá allar lyfjameðhöndlanir í gagnagrunninn WF og koma þar
fram upplýsingar um sláturfrest og sláturleyfishafar bera ábyrgð á að ómerkt
hross (og þar af leiðandi ekki inni í lyfjaskráningakerfinu) séu ekki notuð í
afurðir sem fara til manneldis. Með vísan til framangreinds og 10. gr. laga nr. 96/1997 um slátrun og sláturafurðir, en þar segir að sláturdýr megi ekki vera haldin sjúkdómi né bera leifar lyfja eða annarra aðskotaefna sem geti verið hættuleg heilsu neytenda, verður frá og með 1. apríl n.k. óheimilt að láta afurðir af ómerktum hrossum fara til manneldis. Sláturleyfishöfum verður þá skylt að
framfylgja eftirfarandi reglum: 1. Óskráð og ómerkt hross: Ekki hægt
að uppfylla kröfu um rekjanleika og matvælaöryggi. Afurðir fara því ekki til
manneldis en má nýta í loðdýrafóður. 2. Grunnskráð hross ómerkt /ólesanlegt eða
merkt hross sem ekki er grunnskráð: Eigandi fær tækifæri til að sýna
fram á eignarhald og að um réttan einstakling hafi verið að ræða (t.d. með því
að einkenni svari til lýsingar í WF) enda fylgi hrossinu yfirlýsing um að svo
sé og að hrossið hafi ekki fengið lyfjameðhöndlun undanfarna 6 mánuði ( 24 klst
regla). Að öðrum kosti fara afurðir ekki til manneldis en má nýta í
loðdýrafóður. 3. Grunnskráð hross og einstaklingsmerkt: Merking
sannreynd í sláturhúsi. Ef skemmri tími en 6 mánuðir eru frá örmerkingu skal
hrossinu fylgja skrifleg yfirlýsing eiganda um að það hafi ekki fengið
lyfjameðhöndlun á þeim tíma. Afurðir viðurkenndar til manneldis. 4. Folöld yngri en 10 mánaða sem koma til
slátrunar skulu merkt fæðingarnúmeri móður. Auðveldast er
skrifa númerið á plastlímband í ljósum lit
og festa tryggilega við fax. Ef um stóra hópa er að ræða má notast við
hlaupandi númer enda fylgi með skrá sem tengir þau númer við fæðingarnúmer
mæðra. Þeim sem vilja kynna sér forsögu málsins og/eða fá nánari
upplýsingar, er bent á neðangreinda umfjöllun: ·
Aukin eftirfylgni með lögum sem eiga að
tryggja að ekki séu lyfjaleifar í hrossakjöti sem birtist í Bændablaðinu 12.
Janúar 2010 og á www.mast.is 3. febrúar 2010. ·
Veraldarfengurinn viðurkenndur af
Evrópusambandinu sem rafrænn hestapassi á www.mast.is
4. febrúar 2010. Skrifað af selma 15.03.2010 15:34Grunnskólamótið á BlönduósiGrunnskólamót hestamannafélaga á Norðurlandi vestra
verður í Reiðhöllinni Arnargerði á Blönduósi
sunnudaginn 21. mars kl: 13:00.
ÞETTA MÓT ER FYRIR ALLA Í GRUNNSKÓLANUM ÓHÁÐ ÞVÍ HVORT ÞEIR SKÓLAR SEM TAKA ÞÁTT ERU: GRUNNSKÓLARNIR Í : HÚNAÞINGI VESTRA, Á BLÖNDUÓSI, Á SIGLUFIRÐI OG AUSTAN VATNA, VARMAHLÍÐARSKÓLI, ÁRSKÓLI OG HÚNAVALLASKÓLI. Skráningar þurfa að hafa borist fyrir miðnætti fimmtudaginn 18.mars 2010 á Fram þarf að koma: nafn, bekkur og skóli knapa. nafns hests, aldur, litur, keppnisgrein, og upp á hvora hönd er riðið.
og skal greiða á staðnum áður en mót hefst.
Dagskrá: Smali 4-7. bekkur. Smali 8-10. bekkur. Fegurðarreið 1-3. bekkur. Skrifað af sm 13.03.2010 19:32Húnvetnska liðakeppnin - fimmgangur úrslitÞriðja mót Húnvetnsku liðakeppninnar er
lokið. Keppt var í fimmgangi í 1. og 2. flokki og í tölti unglinga.
Staðan eftir þessi þrjú mót í liðakeppninin er æsispennandi og getur
allt gerst á lokamótinu sem er tölt og verður 9. apríl. Menn tala um að
þetta verði líklega meira spennandi en sjálfar ICESAVE kosningarnar. Staðan er eftirfarandi: 1. sæti lið 1 með 96,5 stig 2. sæti lið 3 með 94 stig 3. sæti lið 2 með 90,5 stig 4. sæti lið 4 með 47 stig Úrslit urðu eftirfarandi, Einkunnir forkeppni/úrslit: Tölt unglingar: 1. Ásdís Ósk Elvarsdóttir og Mön frá Lækjamóti, lið 3 - eink. 6,25 / 7,0 2. Helga Rún Jóhannsdóttir og Akkur frá Nýjabæ, lið 2 - eink. 6,1 / 6,33 3. Eydís Anna Kristófersdóttir og Syrpa frá Hrísum, lið 3 - eink. 5,4 / 5,92 4. Ragna Vigdís Vésteinsdóttir og Viður frá Lækjamóti, lið 3 - eink. 5,5 / 5,92 5. Albert Jóhannsson og Dorit frá Gauksmýri, lið 2 - eink. 5,4 / 5,83 A-úrslit 2. flokkur - fimmgangur 1. Gréta B Karlsdóttir og Brimkló frá Efri-Fitjum, lið 3 - eink. 5,4 / 6,46 (vann B-úrslit og fékk þar 6,50) 2. Patrik Snær Bjarnason og Gígur frá Hólabaki, lið 1 - eink. 5,65 / 6,32 3. Kolbrún Stella Indriðadóttir og Gella frá Grafarkoti, lið 2 - eink. 5,5 / 6,11 4. Gerður Rósa Sigurðardóttir og Ímynd frá Gröf, lið 3 - eink. 5,6 / 5,79 5. Guðrún Ósk Steinbjörnsdóttir og Óvissa frá Galtanesi, lið 1 - eink. 5,55 / 5,50 B-úrslit 2. flokkur - fimmgangur 6. Katharina Tescher og Brjánn frá Keldudal, lið 3 - eink. 5,15 / 5,86 7. Elías Guðmundsson og Pjakkur frá Stóru - Ásgeirsá, lið 3 - eink. 5,25 / 5,54 8. Halldór Pálsson og Efling frá Tunguhálsi II, lið 2 - eink. 5,15 / 5,54 9. Sveinn Brynjar Friðriksson og Glanni frá Varmalæk, lið 3 - eink. 5,35 / 4,32 A-úrslit 1. flokkur - fimmgangur 1. Reynir Aðalsteinsson og Sikill frá Sigmundarstöðum, lið 2 - eink. 7,05 / 7,61 2. Birna Tryggvadóttir og Röskur frá Lambanesi, lið 1 - eink. 6,90 / 7,50 3. Elvar Einarsson og Smáralind frá Syðra-Skörðugili, lið 3 - eink. 6,90 / 7,07 4. Tryggvi Björnsson og Óðinn frá Hvítárholti, lið 1 - eink. 6,85 / 6,93 5. Sigurður Halldórsson og Stakur frá Efri-Þverá, lið 2 - eink. 6,45 / 6,57 (vann B-úrslit og fékk 6,75) B-úrslit 1. flokkur - fimmgangur 6. Agnar Þór Magnússon og Draumur frá Ólafsbergi, lið 1 - eink. 6,60 / 6,68 7. Elvar Logi Friðriksson og Brimrún frá Efri-Fitjum, lið 3 - eink. 6,45 / 6,18 8. James Faulkner og Úlfur frá Fjalli, lið 3 - eink. 6,40 / 5,64 9. Herdís Einarsdóttir og Kasper frá Grafarkoti, lið 2 - eink. 6,40 / 5,61 Einstaklingskeppnin stendur þannig: Unglingaflokkur 1.-4. Ásdís Ósk Elvarsdóttir 5 stig 1.-4. Sigrún Rós Helgadóttir 5 stig 1.-4. Jóhannes Geir Gunnarsson 5 stig 1.-4. Viktor J Kristófersson 5 stig 5.-7. Helga Rún Jóhannsdóttir 4 stig 5.-7. Stefán Logi Grímsson 4 stig 5.-7. Elín Hulda Harðardóttir 4 stig 8. Eydís Anna Kristófersdóttir 3 stig 9. Ragna Vigdís Vésteinsdóttir 2 stig 10. Albert Jóhannsson 1 stig 2. flokkur 1. Gréta B Karlsdóttir 13 stig 2. Patrik Snær Bjarnason 12 stig 3. Kolbrún Stella Indriðadóttir 10 stig 4. Halldór Pálsson 9 stig 5. Ninni Kulberg 8 stig 6. Sveinn Brynjar Friðriksson 7 stig 7. - 8. Garðar Valur Gíslason 6 stig 7. - 8. Guðrún Ósk Steinbjörnsdóttir 6 stig 9. Elín Rósa Bjarnadóttir 5 stig 10. Gerður Rósa Sigurðardóttir 4 stig 1. flokkur 1. Tryggvi Björnsson 25 stig 2. Reynir Aðalsteinsson 22 stig 3. Elvar Einarsson með 18 stig 4. Elvar Logi Friðriksson 15 stig 5. Agnar Þór Magnússon 13 stig 6. Eline Manon Schrijver 12 stig 7. Herdís Einarsdóttir 11 stig 8. - 9. Birna Tryggvadóttir 10 stig 8. - 9. Helga Una Björnsdóttir 10 stig 10. Einar Reynisson með 9 stig Skrifað af selma 11.03.2010 11:09Húnvetnska liðakeppnin - fimmgangur og tölt unglinga ráslistarHér koma ráslistar fyrir fimmgang og
tölt unglinga í Húnvetnsku liðakeppninni, það verða tveir inn á í einu
og er prógrammið, tölt, brokk, stökk, fet og skeið í fimmgangi (skeiðið
eru tveir sprettir fjær áhorfendum og einn í einu). Í tölti verður ekki
snúið við og er prógrammið hægt tölt, hraðabreytingar og fegurðartölt. Eftir æsilega keppni í smala á Blönduósi er staða liðakeppninnar eftirfarandi:
Skrifað af selma 10.03.2010 15:21Bygging hrossa - Kynbótadómar - Sköpulag hrossa
Bygging hrossa - Kynbótadómar - Sköpulag hrossa Í samstarfi við Hrossaræktarsamband V-Húnvetninga Markmið með námskeiðinu er að bjóða upp á ítarlega fræðslu um byggingu hrossa og hvaða atriði er verið að meta þegar hver eiginleiki byggingar er dæmdur. Einnig verður farið yfir reglur kynbótasýninga og það hvernig best er að stilla hrossi upp í byggingardómi. Námskeiðið byggir að hluta til á fyrirlestrum en mikil áhersla verður lögð á verklegar æfingar. Kennarar: Þorvaldur Kristjánsson og Eyþór Einarsson, kynbótadómarar. Staður og tími: lau. 13. mars kl. 09:30-17:00 Gauksmýri, Húnavatnssýslu. Verð: 14.000 kr (kennsla, gögn, veitingar) Skráningar hjá Landbúnaðarháskóla Íslands á [email protected] eða í síma 433 5000 (fram komi nafn, kennitala, heimili og sími). Staðfestingargjald: Staðfesta þarf skráningu með því að
millifæra 3.000 kr (óafturkræft) á reikninginn 0354-26-4237, kt. 411204-3590.
Senda kvittun á [email protected] Skrifað af selma 10.03.2010 14:14Aðalfundur Hestamannafélagsins NeistaAðalfundur Hestamannafélagsins Neista verður fimmtudaginn 11. mars kl. 20.30 í Reiðhöllinni Arnargerði Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf 2. Önnur mál Stjórnin Skrifað af selma Flettingar í dag: 466 Gestir í dag: 150 Flettingar í gær: 514 Gestir í gær: 299 Samtals flettingar: 442712 Samtals gestir: 52983 Tölur uppfærðar: 8.5.2024 08:06:14 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is