12.02.2019 21:20SAH - MótaröðinSAH – Mótaröðin
06.02.2019 13:00Mót vetrarinsMótaröð Neista veturinn 2019
22.01.2019 13:36Námskeið á vegum æskulýðsnefndarReiðnámskeið fyrir börn og unglinga eru að hefjast í reiðhöllinni. Boðið er upp á knapamerki 1, almennt reiðnámskeið og pollanámskeið og eru tæplega 30 krakkar skráðir á námskeiðin. Kennt verður á mánudögum, fimmtudögum og sunnudögum.
Pollanámskeið er kennt á sunnudögum frá 13:00-14:00 (2 hópar)
Almennt reiðnámskeið er kennt á mánudögum frá 17:00-19:00 (2 hópar)
Knapamerki 1 (1 hópur) er kennt á mánudögum og fimmtudögum. Á fimmtudögum eru verklegir tímar frá 17:15-18:00 og á mánudögum eru ýmist bóklegir eða
Sigrún Rós kennir knapamerki 1 og Guðrún Rut kennir pollanámskeið og almennt reiðnámskeið.
Skrifað af Harpa 20.01.2019 22:53JárninganámskeiðHestamannafélagið Neisti stóð fyrir járninganámskeiði helgina 12.-13. janúar. Kennari var Kristján Elvar Gíslason járningameistari og núverandi íslandsmeistari í járningum. Þátttakendur komu víða af og voru bæði vanir og óvanir. Það var gott hljóð í þátttakendum eftir námskeiðið og þykir það hafa tekist vel. Fleiri svipmyndir frá námskeiðinu má sjá í myndaalbumi. ![]() ![]() ![]() ![]() Skrifað af Kolla 04.01.2019 10:15Reiðnámskeið fyrir börn og unglinga
Veturinn 2019 ætlar Neisti að bjóða upp á eftirfarandi námskeið: Námskeiðin eru auglýst með fyrirvara um næga þátttöku og tímasetningar og hópaskiptingar verða auglýstar að loknum síðasta skráningardegi á heimasíðu Neista, www.neisti.net. Skráning fer fram hjá Guðrúnu Rut á [email protected] eða í síma 695-8766. Síðasti skráningardagur er 15. janúar.
Almennt reiðnámskeið 8 ára og eldri - 14 skipti Almenn reiðnámskeið fyrir alla krakka. Áhersla lögð á ásetu og stjórnun hestsins og aukið sjálfstæði í umgengni við hestinn. Leikir og þrautir á hestbaki. Þátttakendum verður skipt í hópa eftir aldri og getu. Kennt verður einu sinni í viku á mánudögum og þriðjudögum Námskeiðið hefst 21. janúar og lýkur í lok apríl Kennari: Guðrún Rut Hreiðarsdóttir Verð fyrir alla önnina: 20.000 kr. (að hámarki, verður lækkað ef vel gengur og tekið tillit til þess ef börn hætta eftir hluta annarinnar) Utan félags, verð: 25.000 kr.
Pollanámskeið - 9 skipti Ætlað fyrir 7 ára og yngri. Lögð verður áhersla á jafnvægi á hestbaki og grunnstjórnun hestsins í gegnum leiki og þrautir. Þátttakendum verður skipt í hópa eftir aldri og getu. Foreldrar/aðstoðarmenn teyma undir þeim börnum sem ekki eru tilbúin að stjórna sjálf. Námskeið hefst sunnudaginn 3. febrúar Kennt þrjá fyrstu sunnudaga í mánuði Kennari: Guðrún Rut Hreiðardóttir Verð: 5.000 kr.
Knapamerki Ef næg þátttaka næst verður boðið upp á námskeið í knapamerkjum. Áhugasamir sendi tölvupóst á [email protected] fyrir 15. janúar með upplýsingum um aldur og fyrri knapamerkjamenntun.
22.11.2018 19:19Búgreinahátíð 2018Uppskeruhátíð húnvetnskra bænda og hestamanna var haldin 17. nóvember sl. og eins og fyrri ár voru veitt verðlaun fyrir hesta, kýr og kindur.
Bergrún stóð sig vel á liðnu keppnistímabili. Hún tók þátt í vetrarmótum með góðum árangri og á sameiginleigu úrtökumóti Neista, Snarfara og Þyts stóð hún sig vel og reið til úrslita í A- flokki, B-flokki og tölti.Hún er mikil fagmanneskja og til fyrirmyndar þegar kemur að þjálfun og umhirðu hrossa. Bergrún er fyrirmyndar knapi innan vallar sem utan og erum við stolt að veita henni þessa viðurkenningu. Hryssur 5. vetra Hryssur 6. vetra
Hryssur 7. vetra og eldri
Stóðhestar 5. vetra
Stóðhestar 6. vetra
Stóðhestar 7. vetra og eldri
07.10.2018 14:49Járninganámskeið á BlönduósiHestamannafélagið Neisti stendur fyrir járninganámskeiði dagana 12.-13. janúar 2019. Kennari verður Kristján Elvar Gíslason járningameistari frá Dýralækna Háskólanum í Hannover, sem starfar einnig sem kennari á Háskólanum á Hólum. Námskeiðið er bæði bóklegt og verklegt og hentar fyrir byrjendur jafnt sem lengra komna. Nemendur mæta með eigin hest og járningaáhöld. Verð er 25 þúsund. Skráning fer fram á netfangið [email protected]. 14.06.2018 17:18Dagskrá og ráslistar
14.06.2018 12:28Uppfærð dagskrá gæðingamóts Neista, Snarfara og ÞytsHér má sjá dagskrá og ráslista gæðingamóts og úrtöku fyrir landsmóts Neista, Snarfara og Þyts. Mótið verður haldið á laugardaginn nk á Blönduósi.
Dagskrá kl. 09:00 knapafundur kl. 09:30 forkeppni B flokkur Ungmennaflokkur Barnaflokkur kl. 13:00 - 15:00 hádegishlé og landsleikur kl.15:00 Tölt T3 Unglingaflokkur A flokkur Skeið Pollar Úrslit Barnaflokkur B flokkur Unglingaflokkur Tölt Ungmennaflokkur
A flokkur Ráslistar:
A flokkur
1 Greta Brimrún Karlsdóttir Kyrrð frá Efri-Fitjum 2 Jóhann Magnússon Mjölnir frá Bessastöðum 3 Hanifé Müller-Schoenau Jasmín frá Hæli 4 Elvar Logi Friðriksson Eva frá Grafarkoti 5 Hörður Óli Sæmundarson Sálmur frá Gauksmýri 6 Sigurður Sigurðarson Karri frá Gauksmýri 7 Lara Margrét Jónsdóttir Klaufi frá Hofi 8 Valur Valsson Birta frá Flögu 9 Bergrún Ingólfsdóttir Mirra frá Ytri-Löngumýri 10 Hallfríður Sigurbjörg Óladóttir Kvistur frá Reykjavöllum 11 Sigurður Vignir Matthíasson Konungur frá Hofi 12 Jóhann Albertsson Sigurrós frá Gauksmýri 13 Halldór P. Sigurðsson Sía frá Hvammstanga 14 Veronika Macher Rós frá Sveinsstöðum 15 Jóhann Magnússon Atgeir frá Bessastöðum 16 Hörður Óli Sæmundarson Garri frá Gröf 17 Kristín Jósteinsdóttir Abel frá Sveinsstöðum 18 Þorgeir Jóhannesson Draumur frá Áslandi 19 Guðmar Freyr Magnússon Kostur frá Stekkjardal B flokkur 1 Guðrún Rut Hreiðarsdóttir Gloría frá Krossum 1 2 Hörður Óli Sæmundarson Gyðja frá Gröf 3 Eline Schriver Birta frá Kaldbak 4 Ásdís Brynja Jónsdóttir Þjónn frá Hofi 5 Birna Olivia Ödqvist Ármey frá Selfossi 6 Fanney Dögg Indriðadóttir Ísó frá Grafarkoti 7 Bergrún Ingólfsdóttir Gustur frá Kálfholti 8 Sarah Lefebvre Vænting frá Lyngholti 9 Ísólfur Líndal Þórisson Skutla frá Höfðabakka 10 Finnbogi Bjarnason Hera frá Árholti 11 Jóhann Magnússon Brana frá Þóreyjarnúpi 12 Guðrún Rut Hreiðarsdóttir Sinfónía frá Krossum 1 13 Pálmi Geir Ríkharðsson Herjann frá Syðri-Völlum 14 Elvar Logi Friðriksson Glitri frá Grafarkoti 15 Þórður Pálsson Slaufa frá Sauðanesi 16 Bergrún Ingólfsdóttir Gjóska frá Lyngholti 17 Hörður Óli Sæmundarson Eldur frá Bjarghúsum 18 Hörður Ríkharðsson Djarfur frá Helguhvammi II 19 Þorgeir Jóhannesson Nína frá Áslandi 20 Greta Brimrún Karlsdóttir Sena frá Efri-Fitjum 21 Halldór P. Sigurðsson Garpur frá Efri-Þverá 22 Hallfríður Sigurbjörg Óladóttir Uni frá Neðri-Hrepp 23 Guðrún Rut Hreiðarsdóttir Skíma frá Krossum 1 24 Elvar Logi Friðriksson Sjöfn frá Skefilsstöðum 25 Guðjón Gunnarsson Smiður frá Ólafsbergi 26 Þorgeir Jóhannesson Birta frá Áslandi 27 Kristín Jósteinsdóttir Garri frá Sveinsstöðum Ungmennaflokkur 1 Sólrún Tinna Grímsdóttir Grýla frá Reykjum 2 Eva Dögg Pálsdóttir Stuðull frá Grafarkoti 3 Marie Holzemer Jafet frá Lækjamóti 4 Ásdís Brynja Jónsdóttir Keisari frá Hofi 5 Magnea Rut Gunnarsdóttir Sigurvon frá Íbishóli 6 Sólrún Tinna Grímsdóttir Freyja frá Torfastöðum 7 Eva Dögg Pálsdóttir Grámann frá Grafarkoti 8 Marie Holzemer Kvaran frá Lækjamóti Unglingaflokkur 1 Lara Margrét Jónsdóttir Burkni frá Enni 2 Rakel Gígja Ragnarsdóttir Griffla frá Grafarkoti 3 Margrét Jóna Þrastardóttir Smári frá Forsæti 4 Bryndís Jóhanna Kristinsdóttir Kjarval frá Hjaltastaðahvammi 5 Eysteinn Tjörvi K. Kristinsson Þokki frá Litla-Moshvoli 6 Ásdís Freyja Grímsdóttir Pipar frá Reykjum 7 Lara Margrét Jónsdóttir Klaufi frá Hofi 8 Rakel Gígja Ragnarsdóttir Vídalín frá Grafarkoti 9 Margrét Jóna Þrastardóttir Gáski frá Hafnarfirði Barnaflokkur 1 Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal Daníel frá Vatnsleysu 2 Dagbjört Jóna Tryggvadóttir Freyja frá Brú 3 Inga Rós Suska Hauksdóttir Feykir frá Stekkjardal 4 Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal Nútíð frá Leysingjastöðum II 5 Dagbjört Jóna Tryggvadóttir Dropi frá Hvoli Flugskeið 100m P2 1 Halldór P. Sigurðsson Sía frá Hvammstanga 2 Bergrún Ingólfsdóttir Fróði frá Ysta-Mó 3 Eysteinn Tjörvi K. Kristinsson Viljar frá Skjólbrekku 4 Guðrún Rut Hreiðarsdóttir Fura frá Dæli 5 Davíð Jónsson Gosi frá Álftagerði IV 6 Kristín Jósteinsdóttir Abel frá Sveinsstöðum 7 Jóhann Albertsson Sigurrós frá Gauksmýri Tölt T3 Opinn flokkur Tölt T3 Opinn flokkur 3 Sarah Lefebvre Vænting frá Lyngholti 6 Pálmi Geir Ríkharðsson Sigurrós frá Syðri-Völlum 7 Elvar Logi Friðriksson Sjöfn frá Skefilsstöðum Pollagæðingakeppni 1 Þórdís Katla Atladóttir Toni frá Dýrfinnustöðum 2 Íris Björg Atladóttir Vaka frá Núpi 2 01.06.2018 09:11Úrtaka - Félagsmót
Stórmót Húnvetnskra hestamanna – Sameiginlegt gæðingamót og úrtaka Neista, Þyts og Snarfara fyir LM 2018
Gæðingamót og úrtaka fyrir LM 2018, verður haldið á Blönduósi 16 Júni.
Skráningar skuli berast fyrir miðnætti miðvikudaginn 13. júní inn á skráningakerfi Sportfengs http://skraning.sportfengur.com/ Þytur er skráð sem hestamannafélagið sem heldur mótið í sportfeng. Mótanefnd áskilar sér rétt til að fella niður flokka ef ekki næst næg þáttaka. Skráningargjöld í fullorðinsflokka og ungmennaflokk eru 3.500 kr. Fyrir börn og unglinga 2000 kr. Í skeiði er skráningargjaldið 1500 kr á hest. Þeir sem eru með farandbikara mega koma þeim til mótanefndar áður en mótið hefst. Ef einhver skráir sig eftir að skráningu er lokið hækkar skráningargjaldið um 1000 kr. Skráningargjad skal vera greiða um leið og skráð er og senda kvittun fyrir greiðslu skráningargjalds á netfangið [email protected]. Kt: 550180-0499 Rnr: 0159 – 15 – 200343 Vinsamlegast veitið því athygli að í gæðingakeppni þarf hesturinn að vera í eigu Neista-, Snarfara-, og/eða Þytsfélaga. Varðandi úrtökumót verður eigandi hests að vera skuldlaus við félagið. Sá sem skuldar árgjald frá fyrra ári hefur ekki keppnisrétt á mótum sem félagið er aðili að. Keppendur eru beðnir að skoða vel reglur LH sem gilda um þátttöku í gæðingakeppni, http://www.lhhestar.is/././lh_logogreglur_28032017_prent.pdf
Hlökkum til að sjá sem flesta, nánar auglýst þegar nær dregur.
Mótanefnd
07.05.2018 23:45Úrtaka og félagsmót 2018Sameiginleg úrtaka hestamannafélaganna Neista og Þyts fyrir Landsmót í Reykjavík verður haldin á Blönduósi laugardaginn 16. júní. Félagsmót verður samhliða úrtökunni. Nánar auglýst síðar. Skrifað af Harpa 16.04.2018 12:54Úrslit á lokamóti SAH mótaraðarinnarFöstudagskvöldið 13. apríl fór fram síðasta mót vetrarins í SAH mótaröðinni. Keppt var í fimmgangi í fullorðinsflokkum og T7 í öllum flokkum. Úrslit - Börn T7
Úrslit - Unglingar T7
Stigahæstu knapar SAH mótaraðarinnar
Neisti þakkar SAH afurðum fyrir stuðninginn í vetur og þátttakendum og áhorfendum fyrir skemmtileg mót. 12.04.2018 23:19Ráslisti T 7 og fimmgangur
09.04.2018 18:13Fimmgangur og T 7.
Fimmgangur og T 7 í Reiðhöllinni föstudaginn 13. apríl kl. 19:00. Keppt verður í barnaflokki, unglingaflokki, áhugamannaflokki og opnum flokki í T 7. Keppt verður í áhugamannaflokki og opnum flokki í fimmgangi. Í T 7 er riðinn einn og hálfur hringur á hægu tölti, snúið við og einn og hálfur á frjálsri ferð. Í fimmgangi er riðinn einn hringur á tölti, einn á brokki og einn á stökki, hálfur á feti og svo lagt í gegn. Í hléinu verða snæddar pizzur í boði félagsins. Skráningu skal lokið kl. 20:00 fimmtudaginn 12. apríl [email protected] og greiðslu skráningargjalda má endilega vera lokið áður en keppni hefst inn á reikning félagsins: 0307-26-055624 kt. 480269- 7139. Skráningargjald er 2.000 kr. í fullorðinsflokkum og 1.500 í yngri flokkum. Nefndin. 03.04.2018 21:35Breytingar - nýtt mót.Breytingar – Fimmgangur og T 7 föstudaginn 13. apríl Vegna ýmissa óviðráðanlegra aðstæðna verður enn að gera breytingar á auglýstu mótahaldi. Mótið sem auglýst hefur verið á fimmtudaginn kemur verður ekki. Nú hefur verið horfið til þess að sameina fimmgangsmótið og lokamótið og verður nú eitt mót föstudagskvöldið 13. apríl. Þess ber að geta að áður auglýst mót í Skagafirði 14. apríl, þar sem allir sigurvegarar af Norðurlandi áttu að leiða saman hesta sín, því hefur verið aflýst. Nánar auglýst á sunnudaginn kemur. Nefndin og stjórn Neista. Flettingar í dag: 702 Gestir í dag: 44 Flettingar í gær: 325 Gestir í gær: 18 Samtals flettingar: 925935 Samtals gestir: 88415 Tölur uppfærðar: 31.3.2025 16:13:44 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is