25.05.2011 07:16

Frá Æskulýðsnefnd


Það fer að styttast í uppskeruhátíð hjá krökkunum sem voru á námskeiðum hjá Neista í vetur en hugmyndin er að fara í Þingeyrar sunnudaginn 5. júní og vonum við auðvitað að þá verði sól og sumar.



Þetta verður allt auglýst betur þegar nær dregur en endilega takið daginn frá, pabbar og mömmur, afar og ömmur, frænkur og frændur og allir aðrir, gerum skemmtilegan dag með krökkunum okkar 5. júní á Þingeyrum því þar eru frábærar útreiðaleiðir og skemmtilegt að vera.

23.05.2011 08:29

Kynbótasýning á Hvammstanga - Hollaröðun


Hollaröðun á kynbótasýningu á Hvammstanga 24. - 26. maí má sjá á vef
Búnaðarsambands Húnaþings og Stranda


22.05.2011 21:31

Félagsmót Neista og úrtaka fyrir landsmót


Fyrirhugað er að halda


félagsmót Neista ásamt úrtöku fyrir landsmót

á Blönduósi 11. júní nk.

Nánar auglýst síðar.

21.05.2011 16:00

Jakkarnir komnir


Fyrir þá sem pöntuðu jakka þá eru þeir komnir í hús hjá
Hólmari gsm 6956381
Hægt er að nálgast þá hjá honum eftir kl. 19.00 í dag og næstu daga.


Vinsamlegast takið með ykkur pening,
helst rétta upphæð.


19.05.2011 10:42

Síðasti skiladagur einkunna fyrir LM


Landssamband hestamannafélaga og Landsmót vilja beina þeim skilaboðum til mótshaldara að sunnudagurinn 19.júní er síðasti dagurinn til þess að skila inn niðurstöðum allra móta í mótakerfið Sportfeng svo þær séu gildar fyrir Landsmót.

Einkunnir og tímar í skeiðgreinum sem berast eftir þann tíma gilda ekki fyrir Landsmót.

19.05.2011 10:11

Reiðmaðurinn


Endurmenntun LbhÍ vill koma því á framfæri að nú fer að styttast í að umsóknarfrestur renni út fyrir allt nám innan Landbúnaðarháskólans, þar með talið Reiðmanninn sem í boði verður á Hvammstanga haustið 2011-2013.  Hægt er að lesa sér til um námið á heimasíðu skólans www.lbhi.is/namskeid undir Reiðmaðurinn. Þar má finna í undirskjölum allt um námið, þær kröfur sem gerðar eru varðandi hross, reiðtýgi, tölvuþekkingu og fleira ásamt upplýsingum um verð og umsóknareyðublað. Við hvetjum ykkur eindregið til að koma þessum upplýsingum á framfæri við þá sem geta haft áhuga þannig að þær fari ekki fram hjá neinum í nágrenni þínu.

Verkefnisstjóri námsins fyrir hönd Endurmenntunar LbhÍ er Ásdís Helga Bjarnadóttir, að faglegri uppbyggingu námsins koma Reynir Aðalsteinsson, Þorvaldur Kristjánsson, o.fl..

Aðalkennari við verklega kennslu á Hvammstanga verður Þórir Ísólfsson reiðkennari á Lækjamóti og umsjón með bóklegri kennslu verður Gunnar Reynisson.

Nánari upplýsingar veitir Ásdís Helga - [email protected] eða í síma 433 5000.

Umsóknafrestur er til 4. júní 2011

www.lbhi.is/namskeid


17.05.2011 21:58

Kynbótasýning hrossa á Hvammstanga

Kynbótasýning hrossa hefst á Hvammstanga miðvikudaginn 25. maí 2011. Dómar verða miðvikudag og fimmtudag og yfirlitssýning á föstudegi. Þetta getur þó breyst ef skráningar verða ekki í samræmi við áætlanir.

Best er að senda skráningar á tölvupósti - [email protected]  - en einnig má hringja í síma 451 -2602.
Síðasti skráningardagur er föstudagur 20. maí.

Við skráningu þurfa að koma fram upplýsingar um hrossið, fullnaðardómur eða bara bygging eða hæfileikar, nafn og kennitala sýnanda, nafn og kennitala þess sem greiðir reikning og óskir um tíma ef einhverjar eru.
Gjald er 15.000 fyrir fullnaðardóm en 10.500 ef bara annað hvort bygging eða hæfileikar. Greiðist inn á banka 307-26-2650 (kt 471101-2650) samhliða skráningu og senda kvittun á [email protected] með upplýsingum fyrir hvaða hross er verið að greiða. Kynnið ykkur vel reglur um járningar, spattmyndir, dna ofl

Nánari upplýsingar og tímasetningar á www.rhs.is þegar nær dregur

Búnaðarsamband Húnaþings og Stranda

16.05.2011 10:02

Reiðnámskeið á Þingeyrum

Tvö reiðnámskeið fyrir börn og unglinga verða haldin á Þingeyrum í vor. Boðið verður upp á hefðbundna reiðkennslu í reiðhöll auk leikja og útreiðatúra.

Nánari upplýsingar um námskeiðin má finna  HÉR.








11.05.2011 16:41

Folalda- og ungfolasýning Hvammstanga

Folalda- og ungfolasýning var haldin í Þytsheimum á Hvammstanga 1.maí sl. Fresta þurfti sýningu þessari fyrr í vetur og sökum þéttrar dagskrár hestamanna í Húnavatnssýslum var ekki hægt að halda hana fyrr. Þátttaka var því ekki eins góð og mörg undanfarin ár þar sem sauðburður var byrjaður hjá mörgum bændum. Engu að síður komu fram mörg álitleg tryppi og álitleg stóðhestefni.

Dómari var Eyþór Einarsson og gaf hann tryppunum stig bæði fyrir byggingu og hæfileika.
Úrslit urðu eftirfarandi:
Folöld ( veturgömul )

Hryssur:
1. Salka frá Hólabaki , rauð. Faðir Seifur frá Hólabaki . Móðir Elding frá Hólabaki.
 Eigandi Björn Magnússon. Bygging:  70 hæfileikar 76 Aðaleinkun 74 stig.

2. Snilld frá Syðri-Völlum, jörp. Faðir Kraftur frá Efri-Þverá.  Móðir Rakel frá Sigmundarstöðum. Eigandi Ingunn Reynisdóttir. Bygging:  73 hæfileikar 71 Aðaleinkun 72 stig.

3. Arabella frá Skagaströnd, rauðblesótt. Faðir Hnolli frá Fellskot. i Móðir Sól frá L-Kambi. Eigandi Þorlákur Sveinsson. Bygging:  75 hæfileikar 69 Aðaleinkun 71 stig.

Hestar:
1. Hávarður  frá Syðri-Völlum, brúnn. Faðir Dofri frá Steinnesi  Móðir Hending  frá Sigmundarstöðum. Eigandi Gunnar Reynisson. Bygging:  76 hæfileikar 78 Aðaleinkun 77 stig.

2. Henrý fra Kjalarlandi, rauðskjóttur. Álfur frá Selfossi  Móðir Regína frá Flugumýri. Eigandi Hall og Vilhjálmur. Bygging:  67 hæfileikar 84 Aðaleinkun 77 stig.

3. Herjan frá Syðri-Völlum, jörp. Dofri frá Steinnesi  Móðir Venus frá Sigmundarstöðum. Eigandi Ingunn Reynisdóttir. Bygging:  68 hæfileikar 80 Aðaleinkun 75 stig.

2ja vetra stóðhestar:
1. Davíð  frá Hólabaki, brúnn. Faðir Auður frá Lundum  Móðir Dreyra Hólabaki. Eigandi Björn Magnússon. Bygging:  79 hæfileikar 86 Aðaleinkun 83 stig.

2. Hástígur  frá tóru-Ásgeirsá, bleikálóttur. Faðir Meyvant frá Feti  Móðir Píla frá Stóru-Ásgeirsá. Eigandi Elías Guðmundsson. Bygging:  71 hæfileikar 80 Aðaleinkun 76 stig.

3j vetra stóðhestur.
1. Kjalar frá Hólabaki, rauður. Faðir Kaspar frá Kommu  Móðir Sandra frá Hólabaki. Eigandi Björn Magnússon. Bygging:  76 hæfileikar808 Aðaleinkun 78 stig.



07.05.2011 22:42

Æskan og hesturinn


Frábær dagur á Sauðárkróki að baki þar sem Æskan og hesturinn fór fram á tveim sýningum í dag 7. maí.
Mætt var á æfingu stundvíslega kl. 10 í morgun en það þurfti aðeins að pússa saman atriðin fyrir svolítið stærri reiðhöll en við höfum hér og erum vön. Það var ekki lengi gert, ótrúlega flott og fljót að ná þessu krakkarnir en þau voru með sömu atiðin og þau voru með á Æskulýðssýningunni sl. helgi.
Krakkar úr 8 hesta hestamannafélögum tóku þátt í þessari sýningu og það er alveg ótrúlegt hvað fólk hefur endalausar hugmyndir í gerð atriða. Virkilega skemmtileg sýning í alla staði og heppnaðist mjög vel.
Sýningin hjá krökkunum okkar tókst frábærlega vel og stóðu þau sig með stakri prýði og megum  við öll vera stolt og glöð með að eiga svona flotta krakka. Takk takk fyrir frábæra sýningu og frábæran dag emoticon emoticon emoticon    
 
Þau Hrafnhildur, Sigurgeir og Hákon voru í fánareið og tóku sig vel út í góða veðrinu.



Sniðug þau Rúnar og Ranna að taka bara fellihýsið með þar sem þau komu hestunum á Óla A sem var hvort eð er að fara með kerru. Þarna var gott að setjast niður og fá sér kaffi og sóla sig.



Það voru veittar viðurkenningar fyrir stigahæstu knapana úr grunnskólamótunum en í 4.-7 bekk var Sigurður Bjarni Aadnegard, Blönduskóla stigahæstur ásamt Ásdísi Ósk Varmahlíðarskóla og Haukur Suska, Húnavallaskóla í 8.-10. bekk. Til hamingju með það.
Hér eru stigahæstu knapar en á myndina vantar Hauk.


Hér er þessi flotti hópur sem átti frábæran dag saman.

              á myndina vantar Hörpu Hrönn


Myndir eru komnar í myndaalbúm
.

06.05.2011 12:06

Æskan og hesturinn






Reiðhöllin Svaðastaðir, Sauðárkróki

laugardaginn 7. maí 2011
kl.13:00 og 16:00


Fjölskylduskemmtun
Æskan og hesturinn - Stórsýning barna
úr hestamannafélögunum á Norðurlandi

Aðgangur ókeypis
Allir velkomnir

Veitingar seldar í anddyri reiðhallarinnar

Sérstakur gestur sýningarinnar verður
Þórarinn Eymundsson og Ingunn Kristjánsdóttir

05.05.2011 08:14

Námskeiðahaldi vetrarins lokið


Þá er námskeiðahaldi vetrarins lokið en í gær mætti Arndís Brynjólfsdóttir og tók út 17 nemendur í knapamerkjum 1, 2 og 3. Auðvitað var fólk misstressað þegar í próf var komið en allt gekk þetta vel og stóðust allir prófin. Innilega til hamingju með það.

Í vetur voru 23 fullorðnir sem luku prófum í knapamerki 1 og 2 og 14 krakkar sem luku prófum í 1, 2 og 3.
Knapamerki 3 er kennt á 2 vetrum og byrjuðu þrjú í vetur en þau taka þá ekki próf fyrr en næsta vor.
Á almennum námskeiðum voru 16 börn á aldrinum 4-11 ára en aldurstakmark í knapamerkin er 12 ára svo þessi hópur mun halda áfram á skemmtilegum námskeiðum fram að þeim aldri.

Kennarar í vetur voru Petronella Hannula, Barbara Dittmar, Sigurbjörg Sigurbjörnsdóttir og Hafdís Arnardóttir. Þökkum við þeim kærlega fyrir frábært og skemmtilegt starf í vetur.

Þá er bara að fara að huga að Æskan og hesturinn sem verður á Sauðárkróki laugardaginn 7. maí og síðan verða uppskeruhátíðir fyrir námskeiðshópa í lok maí - byrjun júní.

30.04.2011 23:47

Það er svo gaman saman


Æskulýðssýning Neista var í dag og tóku um 30 börn, á öllum aldri, þátt í henni.

Fyrst var örðuvísi þrautabraut þar sem "mið"krakkarnir gerðu ýmsar þrautir og fórst það vel úr hendi. Í þessum hópi voru krakkar sem hafa verið í knapamerki 1 í vetur og þau sem hafa verið lengi á námskeiðum en hafa ekki aldur til að vera í knapamerki 1. Kennarar í vetur eru þær Barbara Dittmar, Sigurbjörg Sigurbjörnsdóttir, Petronella Hannula og Hafdís Arnardóttir.
Gaman var að sjá hve liðlega þau gerðu þrautirnar en mínusstig voru gefin fyrir ef eitthvað mistókst og það fór nú allavega. Ekki kannski alveg farið eftir því sem þau hafa lært í knapamerki 1, t.d. við að fara af og á baki, en alltaf gaman að sjá eitthvað nýtt.



Prinsessurnar 2 voru svoooo sætar og duglegar og hlupu mömmurnar nokkra hringi með þær í höllinni á meðan prinsessurnar gerðu ýmsar jafnvægisæfingar. Petronella Hannula hefur kennt þeim í vetur og það hefur alltaf verið rosalega mikið gaman hjá þeim.



Síðan komu "yngri" krakkarnir en það eru þau sem hafa verið 1-3 vetur á reiðnámskeiðum og gaman að sjá hvað þeim hefur farið fram í vetur. Þau fóru þrautabraut þar sem þarf að sýna mjúkan leiðandi taum og stoppa og  fara yfir smá hindrun. Aldeilis flott hjá þeim og hún Petronella hefur gert mjög gott starf þar í vetur.



Elstu krakkarnir, úr knapamerki 2 og 3 voru svo með flotta mynsturreið sem tókst frábærlega vel, rosafottir krakkar. Kennarar í vetur eru Sigurbjörg Sigurbjörnsdóttir, Barbara Dittmar og Hafdís Arnardóttir.


Í lokin fóru þeir sem vildu hindrunarstökk, alltaf gaman að sjá hve dugleg þau eru í öllu sem þau taka sér fyrir hendur.




Það er virkilega gaman að sjá hvað krökkunum fer fram á hverjum vetri og verða betri og betri reiðmenn. Við megum vera stolt af þessum krökkum og hversu mikið og gott starf er unnið á hverjum vetri í æskulýðsstarfi hjá hestamannafélaginu og hvað við höfum verið heppin með frábæra kennara. Takk takk fyrir frábært starf.

Eftir sýninguna var kaffi og "með því"  og var fjölmenni, gott og gaman að geta átt notalega stund saman eftir svona skemmtilega sýningu. 



Æskulýðsnefndin þakkar öllum þeim sem að þessari sýningu kom á einn eða annan hátt fyrir, án ykkar hefði þessi sýning ekki orðið að veruleika. Gaman að geta átt frábæran og eftirminnilegan dag og fengið að njóta þess að horfa á frábæra krakka á frábærri sýningu. Takk fyrir öll.

Myndir eru komnar inn í myndaalbúm.


 

29.04.2011 08:14

Úrslit úr töltmóti


Lítið en skemmtilegt töltmót var í reiðhöllinni í gær og urðu úrslit þessi:

Áhugamannaflokkur:


          (á myndina vantar Magnús og Gleði)

1.  Rúnar Örn Guðmundsson og Kasper frá Blönduósi
2.  Selma Svavarsdóttir og Hátíð frá Blönduósi
3.  Sigurður Bjarni Aadnegard og Þokki frá Blönduósi
4.  Edda Sigurðardóttir og Flosi frá Skefilsstöðum
5.  Magnús Ólafsson og Gleði frá Sveinsstöðu
m


Opinn flokkur:


1.  Guðmundur Þór elíasson og Fáni frá Lækjardal
2.  Halldór P. Sigurðsson og
3.  Paula Tillonen og Stimpill frá Vatni
4.  Hörður Ríkharðsson og Móheiður frá Helguhvammi
5.  Jóhanna Heiða Friðriksdóttir og Alki frá Stóru-Ásgeirsá



28.04.2011 14:35

Æskulýðssýning Hestamannafélagsins Neista


Laugardaginn 30. apríl kl. 14:00
verður sýning á vegum Æskulýðsnefndar Neista
í reiðhöllinni Arnargerði.




Fram koma um 30 krakkar á öllum aldri
sem hafa verið dugleg á námskeiðum í vetur.


Hvetjum alla til að koma og sjá þessa fræbæru krakka.

Aðgangseyrir 600 kr. (ekki tekið við kortum) fyrir 12 ára og eldri.
Innifalið í aðgangseyri er kaffi og með því.


Hlökkum til að sjá ykkur.

kveðja,
Æskulýðsnefnd Neista

Flettingar í dag: 523
Gestir í dag: 55
Flettingar í gær: 1125
Gestir í gær: 95
Samtals flettingar: 434501
Samtals gestir: 51289
Tölur uppfærðar: 27.4.2024 14:22:43

Vafraðu um

Eldra efni

Um hestamannafélagið Neista

Nafn:

Hestamannafélagið Neisti

Afmælisdagur:

1943

Heimilisfang:

540 Blönduós

Staðsetning:

Blönduós

Um:

Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.

Kennitala:

480269-7139

Tenglar

clockhere