01.06.2010 22:11

Krakkagaman


Uppskeruhátíðin hjá krökkunum verður í Reiðhöllinni 3. júní kl. 18.00



Þar sem hóstapestin er enn að angra hestana okkar
frestum við útreiðum sem vera áttu á Þingeyrum 13. júní
og  hittumst í staðinn uppí Reiðhöll nk. fimmtudag 3. júní kl. 18.00
og gerum eitthvað skemmtilegt.

Uppskeruhátíðin er fyrir alla krakka sem voru á námskeiðum í vetur.

Æskulýðsnefnd


01.06.2010 09:16

Stóðhestar 2010 í Gröf Víðidal




Arður frá Brautarholti
Arður er frábærlega ættaður stóðhestur undan Orra frá Þúfu og Öskju frá Miðsitju.
Arður er með 8,38 í aðaleinkunn.
Verð 80.000 með vsk og ein sónarskoðun
Verður til afnota frá 18. júní til 25. júlí.

 


Stimpill frá Vatni
F: Kolfinnur frá Kjarnholtum I. M: Hörn frá Langholti II
Aðaleinkunn 8,35 þar af 9 fyrir tölt
Verð 70.000 með vsk
Verður til afnota til 22. júní

 

Óðinn frá Hvítárholti
F: Óðinn frá Brún, M: Hylling frá Hvítárholti
Aðaleinkunn 8,27, þar af 8,53 fyrir hæfileika.
Verð 40.000 með vsk
Verður til afnota í allt sumar.


Nánari upplýsingar hjá Tryggva Björnssyni í síma 89810


31.05.2010 21:54

Endurgreiðslur til viðskiptavina Landsmóts hestamanna 2010

Af gefnu tilefni skal það ítrekað að Landsmót ehf. mun endurgreiða alla miða, stúkur og hjólhýsastæði sem keypt hafa verið vegna  Landsmóts 2010 sem nú er búið að fresta.  Við biðjum viðskiptavini okkar hins vegar um að sýna starfsmönnum Landsmóts biðlund þar sem ærin verkefni eru fyrir höndum að vinda ofan af mótinu í ár og fjöldi viðskiptavina er stór.

Við munum næstu daga ganga skipulega til verks við að endurgreiða, en bendum á að þar sem viðskiptin fóru að mestu leyti fram í gegnum kreditkortaviðskipti í gegnum netmiðasölukerfi okkar, getur liðið einhver tími þar Landsmót kreditfærir og þar til eiginleg endurgreiðsla berst inná reikning viðskiptavinar.  Við biðjum viðskiptavini Landsmóts að hafa þetta í huga og búa sig undir að greiðslur í gegnum kreditkortafyrirtæki berast ekki strax og gætu jafnvel borist í fleiri en einni greiðslu (dæmi: keypt er fyrir 48.000; greiðsla berst uppá 24.000 og nokkrum dögum síðar lokagreiðsla).

Ógerlegt er að taka við svo miklum fjölda símtala og því biðjum við þá sem vilja endurgreiðslu um að senda tölvupóst ásamt kvittun um kaupin á netfangið: [email protected].

Þar sem fyrirhugað er að Landsmót verði haldið að ári (2011) er viðskiptavinum að sjálfsögðu í sjálfvald sett hvort þeir vilji eiga miðana inni hjá mótshöldurum.

Öllum tölvupóstum verður sinnt skipulega en eins og áður sagði; fjöldinn er mikill og munu starfsmenn Landsmóts ganga vasklega til verks og leggja sig fram um að vera í góðu sambandi við viðskiptavini við að endurgreiða.

F.h. Landsmóts hestamanna ehf.

Jóna Fanney Friðriksdóttir, framkvæmdastjóri

www.lhhestar.is

31.05.2010 21:49

Landsmóti 2010 frestað

Frá fundi 
hagsmunaaðila ásamt embættismönnum í dag, 31. maí.
Frá fundi hagsmunaaðila ásamt embættismönnum í dag, 31. maí.
Samhljóða ákvörðun var tekin á fundi hagsmunaaðila í hestamennsku og hrossarækt ásamt yfirvöldum dýralæknamála, starfandi dýralæknum, fulltrúum leiðbeiningaþjónustu og fulltrúa sjávar- og landbúnaðarráðuneytisins vegna smitandi hósta sem herjað hefur á hrossastofninn í landinu undanfarið.

Í ályktuninni samþykkti fundurinn að fresta Landsmóti 2010 en halda það að ári, á Vindheimamelum í Skagafirði eins og til stóð á þessu ári.  Fundurinn ítrekaði að þessi frestun Landsmóts um ár skyldi unnin í nánu samstarfi við Alþjóðasamtök Íslandshestafélaga (FEIF).

Jafnframt var skorað á Landssamband hestamannafélaga (LH) og Bændasamtök Íslands (BÍ) að sýningar- og keppnishald yrði endurskoðað á næstu mánuðum til að gera eigendum hrossa, sem stefnt var með í dóma, sýningar- eða keppni á árinu, kleift að skrá þau til þátttöku þegar þau eru orðin heilsuhraust. Tryggt verði að sýningar- og keppnishald fari fram með velferð hestsins og heilsu að leiðarljósi.

Fundinn sátu auk helstu hagsmunaaðila í hestamennsku og hrossarækt, fulltrúi sjávar- og landbúnaðarráðuneytis, formenn BÍ og LH, stjórn Landsmóts ehf., formaður Félags hrossabænda og Félags tamningamanna.  Fulltrúar yfirvalda dýrlæknamála sátu jafnframt fundinn ásamt starfandi dýralæknum og fulltrúum leiðbeiningaþjónustu.

Fyrir liggur að tjón greinarinnar vegna sjúkdómsins er nú þegar orðið gífurlegt og hagsmunir miklir.  Er skorað á stjórnvöld að tryggja Matvælastofnun (MAST) og Tilraunastöðinni á Keldum nægjanlegt fjármagnt til að auka rannsóknir og aðrar fyrirbyggjandi aðgerðir.  Jafnframt verði Landsmótshöldurum tryggð sú fjárhagslega staða að framtíðar mótahaldi sé ekki ógnað.

Aðspurður segir Haraldur Þórarinsson, formaður LH og Landsmóts hestamanna ehf  Landsmót vera stærsta glugga hestamennskunnar í landinu og gífurlega mikilvægt öllum greinum hestamennskunnar þ.m.t.  ferðaþjónustu í landinu.  "Tjónið er alvarlegt og það má líkja þessu við náttúruhamfarir, greinin er lömuð og þetta teygir anga sína um allt samfélagið. Þessi ákvörðun var þó óviðráðanleg enda er velferð hestsins algjörlega í fyrirrúmi."

Sigríður Björnsdóttir dýralæknir hrossasjúkdóma segir að ýmislegt varðandi sjúkdóminn og feril hans hafi verið að skýrast á síðustu dögum.  Nauðsynlegt sé þó að fara í frekari rannsóknir á eðli hans og uppruna.  "Þetta er vægur sjúkdómur en einkenni hans vara í nokkrar vikur og það hefur sett undirbúning Landsmóts í uppnám" segir Sigríður.

Að sögn Jónu Fanneyjar Friðriksdóttur framkvæmdastjóra Landsmóts ehf. munu seldir miðar að sjálfsögðu verða endurgreiddir.  "Ég vil þó biðja fólk um að sýna okkur smá biðlund, en allir sem þess óska fá miðana endurgreidda en einnig er möguleiki á að geyma miðana til ársins 2011.  Reynt verður að fara í samstarf við flugfélög vegna flugfarmiða þeirra sem eru að koma erlendis frá en flestir eiga þó að geta nýtt sér ferða- eða forfallatryggingar.  Við munum á næstunni senda út leiðbeiningar til allra sem keypt hafa miða og kynna fyrirkomulagið" segir Jóna Fanney.

Ályktun fundarins má sjá með því að smella hér.

www.lhhestar.is


31.05.2010 16:03

Landsmóti 2010 hefur verið frestað

Landsmóti 2010 hefur verið frestað




Landsmóti 2010 hefur verið frestað. Endanleg ákvörðun var tekin um
það á fundi hagsmunaaðila sem nú er að ljúka í landbúnaðarráðuneytinu.
Nánar verður skýrt frá fundinum með fréttatilkynningu LH.


28.05.2010 20:10

Mikil samstaða á formannafundi LH

Formannafundur Landssambands hestamannafélaga var haldin í dag, 28.maí, í húsakynnum ÍSÍ. Fundurinn var vel sóttur en auk formanna og fulltrúa hestamannafélaganna sátu fundinn: stjórn LH, fyrrverandi formenn LH, formaður FHB og formaður FT. Fyrir hönd Landsmóts hestamanna ehf. mættu: stjórn Landsmóts ehf., framkvæmdastjóri, mótsstjóri og hluti framkvæmdanefndar.

Umræðuefni fundarins var áhrif kvefpestar á Landsmót 2010. Fundurinn hófst með því að Vilhjálmur Svansson dýralæknir og veirufræðingur og Gunnar Örn Guðmundsson héraðsdýralæknir héldu stutt erindi um veikina. Að því loknu voru fyrirspurnir fundargesta úr sal leyfðar.

Hér að neðan má sjá þær spurningar og svör sem dýralæknarnir sátu fyrir:

Sigurður Ævarsson - LH: Vísar í fyrirlestur Gunnars og spyr hvort að þeir hestar sem búið var að sleppa út hvort þeir hafi verið í upphafi eða enda veikinda?
GÖG: Hestarnir voru búnir að vera veikir og veiktust aftur. Fengu hita og hor.
Mælir með því að byrja ekki að þjálfa hrossin aftur fyrr en 2 vikum eftir síðasta hósta.  Byrja mjög rólega.

Ómar Didriksson - Geysi: Hefur veikin áhrif á sæði/frjósemi stóðhesta?
GÖG: Langvinnur sótthiti í stóðhestum hefur áhrif á sæðisgæði, en svona skammvinnur hiti eins og nú er í gangi hefur ekki áhrif.

Kristinn Guðnason - FHB: Sem dæmi; hestur sem er búin að vera veikur í 3 vikur og er einkennalaus í dag, hvað er eðlilegt að líði langur tími þar til hesturinn sé tilbúin til að þola þau átök sem hann verður fyrir í keppni?
GÖG: Það er mjög misjafnt eftir hrossum. Það var skoðað ofan í barka á nokkrum hrossum sem voru á mismunandi stigum veikinnar. Sum þeirra voru með roða og stækkaðan eitlavef. Sást slím í barka. Slímið virðist koma mest  frá slímhimnum  nefs, en ekki ofan úr lungunum. Ef einkennin eru horfin en hesturinn samt með einstakan hósta þá getur það tekið 3-6 vikur, misjafnt  eftir einstaklingnum, að komast aftur í þjálfun.

Kristinn Guðnason - FHB: Ef farið er of geyst af stað að nýju getur það haft varanleg áhrif á hestinn?
GÖG: Ég hef ekki trú á því að hesturinn beri varanlegan skaða.

Guðni Árnason - Smára: Er það möguleiki að hross sem hefur verið stopp í 7-8 vikur og er komið í þjálfun, hittir hross á LM sem er smitað, getur verið að það smitist aftur?
VS:  Tekur sem dæmi kverkeitlabólgu að það sé möguleiki á endursmiti  6 mánuðum seinna.

Oddur Hafsteinsson - LH: Vísar til prófana á lyfjum í Steinsholti og í Ingólfshvoli, vitið þið eitthvað um það?
VS og GÖG: nei, ekki neitt.

Haraldur Þórarinsson - LH: er sannað að hross séu að smitast aftur og aftur?
VS: hross sem eru í mjög smituðu umhverfi, þá já.

Valgerður Sveinsdóttir - Fákur: Þegar hross eru að endursmit, smitast aftur og aftur, er þetta þá sama bakterían sem er að koma aftur eða er þetta ný baktería?
VS: Þekkjum það bara frá mönnum að við fáum króníska streptokokka, semsagt sama bakterían aftur.

Jón Albert - fyrrv. form. LH: Er til einhver áætlun fyrir næsta áfall? Því mér sýnist að við eigum von á fleiri veirum á næstunni til landsins ef ekkert verður að gert.
GÖG: Já það er til grunnur að viðbragðsáætlun. Eitt stærsta áfallið væri ef inflúensan myndi berast til landsins. Hún er svo feiknalega smitandi.

Jón Albert - fyrrv. form. LH: Eru hestamenn með í því eða er þetta bara innan skrifstofunnar?
GÖG: Byrjar innan skrifstofunnar og svo eru fengnir til liðs hestamenn sem þekkja vel til. Ekki hægt að búa til viðbraðgsáætlun fyrir allar veirur, en grunnurinn er til.

Sveinbjörn Sveinbjörnsson fundarstjóri: Hverjar eru smitvarnirnar á Keflavíkurflugvelli?
GÖG: Tollverðir vita að það má ekki koma inn með hestabúnað. Innflutningur með pósti er allur tjékkaður af. Hestamenn sjálfir verndi búin sín. Stoppi sína gesti líka sjálf. Varðandi þessa veiru voru viðbrögðin ekki samræmd í upphafi meðal manna.

Jón Albert - fyrrv. form. LH: Greinin er í molum útaf kvefpest, hvað gerist þá ef verri veira berst til landsins? Leggur áherslu á að ítreka smitvarnir!
GÖG: hefur verið reynt að fá fjármagn til þess að dreifa bæklingum/einblöðungum  í t.d. flugvélum en ekki fengist.

Óþekktur fundargestur: Afhverju er fræðsla meðal þeirra sem koma til landins ekki betri?
GÖG: segir að ekki hafi fjárveiting fengist til þess að kynna svona til erlendra ferðamanna um borð í flugvélum.

Guðmundur Sveinsson - Léttfeti: Segir að dæmi úr Skagafirði hafa sýnt að fúkkalyf, astmalyf og slímlosandi lyf hafa lítið hjálpað veikum hrossum og engin áhrif haft á veikina.
GÖG: sumum hrossum virðist batna og líða betur við fúkkalyfsmeðferð. Hversu vel þeim batnar, upp á að geta farið að æfa þau aftur vill hann þó ekki fullyrða um.

Jónína Stefánsdóttir - Stígandi:  Getur krónískur hósti, líkt og virðist hafa komið fram hjá Gísla Gíslasyni í Þúfum Skagafirði, komið fram ef hross eru hreyfð of snemma og hvort þau séu þá ekki orðin verðlaus?
GÖG: Fullyrði ekki um þetta en segir þó að dæmi séu um hross sem hóstað hafa í margar vikur hafa hætt því eftir fimm daga fúkkalyfsmeðferð.

Jónína Stefánsdóttir - Stígandi: Hvernig fer influensan með okkur fyrst þessi væga kvefpest er að setja allt á hausinn núna?  Hvað getum við gert til að fyrirbyggja að influensan nái til okkar, kannski með bóluefni?
VS: Ekki eru til góð bóluefni við influensu, því miður. Þó að influensan sé endilega ekki það versta, það versta við hana er hversu þrælsmitandi hún er. Ef influensa nær til landsins verður hún ekki landlæg heldur einn snarpur faraldur sem nánast ógjörlegt verður að stoppa.

Sigurður Ævarsson - LH: Hefði fólk áttað sig á því fyrr, hvað um var að ræða, hefði verið farið í lokanir á svæðum, og þá hvað lengi?
GÖG: Svíar hafa góða reynslu af slíkum lokunum, þeir loka hrossabúgörðum í 2-3 mánuði. Vandræði  okkar Íslendinga er að þessi hesthúsahverfi okkar eru einsdæmi, þekkjast ekki erlendis, mjög flókið að loka þeim.

Ómar Diðriksson - Geysir: Hafa einhverjir hestar sloppið við pestina?
GÖG: Hugsanlegt er að einhverjir sleppi, það er ekki vitað.

Björn Bjarnason - Sörli: Það eru margir hestamenn mjög svartsýnir á að halda LM2010 en vill benda á að um 120 hross hafa verið sýnd á kynbótasýningu á Sörlastöðum. Þar á meðal var 1 hestur sýndur frá Þúfum, Kappi frá Kommu, og fór í góðar tölur.

Guðmundur Sveinsson - Léttfeti: Vill taka það fram að Gísli Gíslason Þúfum tók það sérstaklega fram að hann hefur ekki séð Kappi frá Kommu veikjast.

Gunnari og Vilhjálmi þakkað fyrir fyrirlestrana og góð svör við spurningum fundargesta.

Á fundinum voru eftirfarandi tvær ályktanir samþykktar:

1) Ályktun til Matvælastofnunnar
Formannafundur LH haldinn 28.maí 2010 skorar á Matvælastofnun að hún láti rannsaka með hvaða hætti sjúkdómur sá sem herjar á íslenska hrossastofninn barst til landsins. Þá krefst fundurinn þess að stofnunin leiti þegar allra leiða til að koma í veg fyrir að aðrir sjúkdómar berist hingað. Telur fundurinn að núverandi framkvæmd sjúkdómavarna sé verulega ábótavant.

2)Formannafundur LH haldinn 28.maí 2010 hvetur stjórnir Landssambands hestamannafélaga, Bændasamtaka Íslands og Landsmóts hestamanna ehf. að hafa eftirfarandi þætti að leiðarljósi við ákvarðanatöku um hvort halda eigi Landsmót hestamanna á Vindheimamelum 2010 í ljósi þess sjúkdóms sem nú herjar á íslenska hrossastofninn:
- Velferð hestsins
- Ímynd hestamennskunnar og Landsmóts til framtíðar.



Nánar verður greint frá fundinum og niðurstöðum hans síðar.

www.lhhestar.is

27.05.2010 20:18

Hrossapestin er bráðsmitandi

 Innlendar fréttir | Heilbrigðismál | 27.05.2010 18:01

Hrossapestin er bráðsmitandi

Nú er ljóst að smitandi hósti í hrossum, sem breiðst hefur út um allt land eins og eldur í sinu undanfarið, er ekki veirusýking. Um er að ræða bráðsmitandi bakteríusýkingu. Sigríður Björnsdóttir, dýralæknir hrossasjúkdóma á Matvælastofnun segir að bakterían magnist upp inni í hesthúsum og því sé mikilvægtm, þar sem því verði við komið, að setja hrossin út.

26.05.2010 23:02

Félagsmót Neista og úrtaka fyrir Landsmót


Þar sem hestapestin svonefnda virðist ekkert vera í rénum þá er félagsmóti Neista frestað um óákveðinn tíma.

Stefnt er að þátttöku á Landsmóti hestamanna og verður úrtaka fyrir það væntanlega haldin með Vestur Húnvetningum.  Þeir sem hyggja á að taka þátt í úrtökunni hafi sambandi við Val Vals  í síma 8679785 eða Óla Magg í síma 8690705 svo hægt sé að sjá fjölda þeirra keppenda sem hug hafa á að taka þátt.

Landssamband hestamannafélaga hefur boðað til formannafundur föstudaginn 28. maí. Þar eru formenn beðnir að taka stöðumat hjá sínu hestamannafélagi. Í framhaldi af þessum fundi verður ákörðun tekin um það hvort Landsmót verði haldið á réttum tíma.

Því miður er þessi veiki miklu alvarlegri en í upphafi var haldið og virðist hún vera þrálát og erfið viðureignar. Eigendur hrossa eru hvattir til að fylgjast vel með hrossum sínum og fá upplýsingar hjá dýralæknum varðandi meðhöndlun ef þau veikjast.


Stjórn Neista


26.05.2010 18:58

Opinn fundur á Norðurlandi um hestapestina


Næstkomandi Sunnudag (30. maí) munu hrossaræktarsamböndin á Norðurlandi standa fyrir opnum fundi á Hótel Varmahlíð vegna hinnar svokölluðu hestapestar. Tilgangur fundarins er að miðla upplýsingum til hrossaræktenda og tamningamanna vegna veikinnar og gefa mönnum færi á að skiptast á skoðunum um stöðu mála. Gestir fundarins verða Sigríður Björnsdóttir dýralæknir hrossasjúkdóma, Vilhjálmur Svansson, dýralæknir á Keldum og Guðlaugur Antonsson hrossaræktarráðunautur BÍ. Fundurinn hefst kl: 20:00.

Hrossaræktarsamband Skagfirðinga
Hrossaræktarsamtök Eyfirðinga og Þingeyinga
Hrossaræktarsamtök V-Húnavatnssýslu
Samtök hrossabænda í A-Húnavatnssýslu


26.05.2010 18:55

Kynbótasýning á Blönduósi 3. og 4. júní 2010

Að öllu óbreyttu er stefnt að því að halda kynbótasýningu á Blönduósi fimmtudaginn 3. júní og yfirlitssýningu að morgni föstudags 4. júní.

Tekið er á móti skráningum hjá Búnaðarsambandinu á Blönduósi á netfanginu  [email protected] eða í síma 451-2602 / 895-4365.

Síðasti skráningardagur er mánudagur 31. maí.

Sýningargjald er 14.500 kr en 10.000 ef bara er annað hvort byggingadómur eða reiðdómur og þarf að greiðast samhliða skráningu inn á reikning 307-26-2650 á kt: 471101-2650 og senda kvittun á netfangið [email protected]  með upplýsingum um fyrir hvaða hross er verið að greiða.  

Munið að kynna ykkur reglur um einstaklingsmerkingar, járningar, blóðsýni, dna-sýni og spattmyndir.

Nánari upplýsingar um tímasetningar verða á heimasíðu Búnaðarsambandsins www.rhs.is

Búnaðarsamband Húnaþings og Stranda

21.05.2010 23:16

Hestafréttir spurðu nokkra knapa álits

Hestafréttir spurðu nokkra knapa álits

Skiptar skoðanir eru varðandi niðurstöðu Landsmótsnefndar eftir fundinn í dag. Hestafréttir tóku nokkra knapa tali í dag til að kanna álit þeirra varðandi ákvörðunatöku Landsmótsnefndar:

Hver er afstaða þín varðandi ákvörðunartöku Landsmótsnefndar?
Daníel Jónsson
: "Ég er bara mjög ánægður með þetta. Flott að halda áfram þangað til annað kemur í ljós. Fullsnemmt að loka fyrir þetta strax."
Jakob Svavar Sigurðsson: "Mér líst ekki vel á þetta, ég held að þetta sé óraunhæft."
Tryggvi Björnsson: "Mér fannst þetta rétt, halda þessu áfram."
Hans Friðrik Kjerúlf: "Mér líst bara ágætlega á þetta"
Mette Mannseth: "Þetta er röng ákvörðun, frestun á vandamáli."
Hafliði Halldórsson: " Að halda Landsmót er eins og að spila tafl með 5 peðum á móti kóngi, drottningu, hróki og biskup það vita allir hvernig það fer. Við getum ekki haldið Landsmót þar sem hrossin eru öll veik."

Hvað myndir þú vilja gera í stöðunni?
Daníel:
"Menn mega ekki alltaf bara hugsa um eigið skinn."
Jakob: "Ég sé bara ekkert annað en að það sé blásið af. Ég get ekki séð að þetta sé hægt. Ég er ekki að fara að ríða út næstu 10 daga, öll hrossin hjá mér eru frá."
Tryggvi: "Halda Landsmót og vona að þetta lagist á næstu 2-3 vikum. Of mikið mál að henda þessu útaf borðinu núna."
Hans: "Ég vil halda Landsmót"
Mette:" Fresta Landsmóti um ár."
Hafliði: " Ég vil halda Landsmót á næsta ári með sömu dagsetningu og prófa það fyrirkomulag og prófa að halda Landsmót árlega. Það mun ekki há Heimsmeistaramóti þó svo Landsmót verði haldið á sama ári. Það er ekkert gaman að vinna Landsmót þegar bestu hestarnir eru ekki mættir til leiks."

Hvað eru hrossin búin að vera veik lengi hjá þér?
Daníel: "Algjörlega einstaklingsbundið. Sum eru bara búin að vera veik alla tíð. Ég vil óska öllum hestum á Íslandi góðs bata og batnandi hrossi er best að lifa."
Jakob: "Það eru hestar búnir að vera hóstandi hérna í mánuð, þetta eru 6 vikur lágmark. Hestarnir verða að fá að njóta vafans og ná að jafna sig aftur. Þetta eru ósanngjarnar kröfur á okkur og hrossin."
Tryggvi: "Fyrsti varð veikur fyrir svona fjórum vikum, svo eru að bætast við eitt og eitt núna. Ég er byrjaður að ríða þrem til fjórum sem veiktust fyrst og þau virka í lagi."
Hans: "Ekkert hross hefur veikst hjá mér. Ekki ennþá allavegana."
Mette: " Það er mjög misjafnt, 3-6 vikur."
Hafliði: " Við riðum fimm hrossum í gær og þegar þau voru komin inn í stíu byrjuðu fjögur að hósta, þar á meðal Ás frá Ármóti. Það var stefnt með þessi hross á Landsmót og fleiri til. Ég sé til hvernig málin þróast með hrossin mín. Ég vil ekki skaða hrossin með því að halda áfram að þjálfa þau."

21.05.2010 23:06

Fundur með hagsmunaaðilum innan hestamennskunnar

Fundur með hagsmunaaðilum innan hestamennskunnar

Í dag fór fram fundur í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu með öllum hagsmunaaðilum innan hestamennskunnar. Tilgangur fundarins var að fá heildarsýn yfir stöðu mála vegna hóstapestarinnar svonefndu. Síðast liðinn mánudag skipaði Halldór Runólfsson yfirdýralæknir nefnd, en í henni eiga sæti Sigríður Björnsdóttir, dýralæknir hrossasjúkdóma, Guðlaugur Antonsson hrossaræktarráðunautur og Sveinn Ólason dýralæknir. Þau hafa verið að safna öllum tiltækum upplýsingum um veikina og kynnti Sigríður helstu niðurstöður á rannsóknum þeirra og veitti ráðgjöf í ljósi þeirra.

Ljóst er að miklir hagsmunir eru í húfi, ekki síst er varðar Landsmót hestamanna sem fara á fram á Vindheimamelum  í Skagafirði 27. júní - 4. júlí.

Við ákvarðanatöku var reynt að meta þyngd og alvarleika hóstapestarinnar með tilliti til velferðar hrossa og jafnframt hvort faraldurinn muni verða að miklu leyti genginn yfir þegar úrtökur fyrir landsmótið fara fram.

Samþykkt var samhljóða eftirfarandi ályktun:

Á sameiginlegum fundi hagsmunaaðila í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu voru aðilar sammála um að stefnt skuli að því að halda Landsmót hestamanna á áður ákveðnum tíma. Aðilar voru sammála um að endurskoða fyrirkomulag og dagsetningar á úrtökum og dómum hrossa fyrir landsmótið með það að leiðarljósi að gera sem flestum hrossum mögulegt að vinna sér þátttökurétt.

Hópurinn mun koma saman um næstu mánaðarmót og endurmeta stöðuna.

11.05.2010 08:52

Frá Æskulýðsnefnd


Þó svo það sé hlé á námskeiðahaldi hjá krökkunum í knapamerkjunum vegna kvefpestarinnar í hestunum okkar þá er æskulýðsnefnd búin að ákveða að halda uppskeruhátíðina á Þingeyrum sunnudaginn 13. júní og vonum auðvitað að allir hestar verði orðnir hressir þá emoticon

Þar sem engin var ferðin á Æskan og hesturinn á Sauðárkróki verðum við að gera langa og skemmtilega ferð í staðin og er því fyrirhugað að reka (á laugardegi) og eða flytja (á sunnudegi) hestana í Þingeyrar, ríða út á sunnudeginum, gera eitthvað skemmtilegt og grilla eitthvað gott.



Þetta verður allt auglýst betur þegar nær dregur en endilega takið daginn frá, pabbar og mömmur, afar og ömmur, frænkur og frændur og allir aðrir, gerum skemmtilegan dag með krökkunum okkar 13. júní á Þingeyrum því þar eru frábærar útreiðaleiðir og skemmtilegt að vera.

10.05.2010 11:00

Tilkynning frá framkvæmdanefnd Landsmóts hestamann


Frá fundi framkvæmdanefndar í Skagafirði 7. maí.
Á fundi framkvæmdanefndar Landsmóts hestamanna sem haldinn var í Skagafirði, 7. maí með dýralækni hrossasjúkdóma var ákveðið að ekki verði hvikað frá undirbúningi Landsmóts þrátt fyrir að smitandi hósti gangi nú yfir hrossastofninn.

Kynbótasýningum verður fram haldið samkvæmt auglýstri dagskrá.    Ef á þarf að halda verða settar á aukakynbótasýningar sem eingöngu verða ætlaðar þeim hrossum sem ekki hafa áður getað mætt vegna veikinda.
Í lögum og reglum Landssambands hestamannafélaga, grein 6.5, er heimild til þess að félögin haldi tvær umferðir Landsmótsúrtöku.  
Félögin eru hvött til þess að nýta þetta ákvæði, ef þörf krefur, til að veita sem flestum tækifæri til að afla sér þátttökuréttar á Landsmóti.

Hestamenn eru hvattir til að gæta að velferð hrossa sinna og mæta ekki með veik hross til keppni eða sýninga.

Frekari upplýsingar um smitandi hósta hrossa er að finna HÉR.

Framkvæmdanefnd Landsmóts
Sigríður Björnsdóttir, dýralæknir hrossasjúkdóma hjá Matvælastofnun

05.05.2010 14:00

Tilkynning frá hrossaræktarráðunaut Guðlaugur V. Antonsson


Varla hefur hún farið framhjá nokkrum hestamanni sú kvefpest sem þessa dagana herjar á hrossastofninn. Ljóst er að pestin er mun alvarlegri en í fyrstu var talið og virðist hrossum mjög hætt við að slá niður ef ekki er varlega farið, þó menn telji einkenni horfin.

Hinar hefðbundnu vor- og héraðssýningar kynbótahrossa munu á næstunni fara í gang af fullum þunga svo sem vant er á þessum árstíma. Ekki hefur á þessu stigi málsins verið ákveðið með neinar breytingar á fyrirliggjandi dagskrá sýninganna. Vil ég því hvetja þá sem enn hafa sloppið við pestina eða sem hafa hross sem náð hafa sér að fullu að nýta tækifærið og koma hrossum til dóms hið fyrsta. Fyrirsjáanlegt er að álag verður að vanda mikið síðustu vikur dóma og eykst væntanlega enn með tilkomu pestarinnar.

Tuttugu og sjö hross mættu til dóms á Sauðárkróki, um fjörtíu eru skráð á Blönduósi og um áttatíu í Reykjavík þannig að greinilegt er að enn eru einhver hross heilbrigð. Næstu sýningar eru síðan í Eyjafirði og Hafnarfirði. 

Ákveðið hefur verið að öllum hrossum sem sýna sjúkdómseinkenni pestarinnar verði umsvifalaust vísað frá sýningunum. Enda um ótvírætt dýraverndunarmál að ræða að aðeins sé komið til dóms með hross í góðu heilbrigðisástandi. 

Guðlaugur V. Antonsson
Hrossaræktarráðunautur BÍ

Flettingar í dag: 447
Gestir í dag: 50
Flettingar í gær: 1125
Gestir í gær: 95
Samtals flettingar: 434425
Samtals gestir: 51284
Tölur uppfærðar: 27.4.2024 13:18:14

Vafraðu um

Eldra efni

Um hestamannafélagið Neista

Nafn:

Hestamannafélagið Neisti

Afmælisdagur:

1943

Heimilisfang:

540 Blönduós

Staðsetning:

Blönduós

Um:

Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.

Kennitala:

480269-7139

Tenglar

clockhere