23.02.2025 20:07

Fyrsta mót vetrarins

 

Fyrsta mót vetrarins var haldið laugardaginn 15. febrúar. Keppt var í fjórgangi og tölti.

Tveir þátttakendur voru í pollaflokk, þau Camilla Líndal Magnúsdóttir og Jósef Bjarni Jónsson

 

Úrslit í tölti:

Barnaflokkur:

 

1. Margrét Viðja Jakobsdóttir og Dísa frá Stóradal - 7.0

2.  Halldóra Líndal Magnúsdóttir og Henrý frá Kjalarlandi - 6.25 

3. Sveinn Óli Þorgilsson og Sædís frá Sveinsstöðum - 5.5

4. Gréta Björg Þorgilsdóttir og Glæsir frá Steinnesi - 5.25

5 - 6 Katrín Sara Reynisdóttir og Erla frá Kjalarlandi - 5.0

5 - 6 Kristrún Ýr Jónsdóttir og Hrímnir frá Skeiðháholti 2 - 5.0

 

 

Unglingaflokkur:

1. Harpa Katrín Sigurðardóttir og Dugur frá Hnjúki - 6.5

2 - 3 Salka Kristín Ólafsdóttir og Blesa frá Sveinsstöðum - 6.25

2 - 3 Hera Rakel Blöndal og Ljósfari frá Grænuhlíð - 6.25

 

 

2. Flokkur:

1.Kristín Jósteinsdóttir og Garri frá Sveinsstöðum - 6.25

2 - 3 Guðmundur Sigfússon og Adam frá Lækjarmóti - 6

2 - 3 Hörður Ríkharðsson og Þrá frá Þingeyrum - 6

4. Katharina Sophia Dietz og Ófeig frá Steinnesi - 5.5

5. Camilla Johanna og Hnokkadís frá Stóradal - 5.25

 

1.Flokkur:

1. Jón Kristófer Sigmarsson og Maddý frá Hæli - 7.0

2. Jakob Víðir Kristjánsson og Funi frá Stóradal - 6.75

3. Sunna Margrét Ólafsdóttir og Gleði frá Skagaströnd - 6.25

 

Úrslit í fjórgangi:

 

Barnaflokkur:

1. Margrét Viðja Jakobsdóttir og Dísa frá Stóradal - 6

2. Halldóra Líndal Magnúsdóttir og Eldór frá Kjalarlandi - 5.75

3. Sveinn Óli Þorgilsson og Sædís frá Sveinsstöðum - 5.375

4.  Katrín Sara Reynisdóttir og Erla frá Kjalarlandi - 4.5

5. Gréta Björg Þorgilsdóttir og Glæsir frá Steinnesi - 4.125

 

 

Unglingaflokkur:

1. Harpa Katrín Sigurðardóttir og Dugur frá Hnjúki - 6.625

2. Hera Rakel Blöndal og Ljósfari frá Grænuhlíð - 6.5

3. Salka Kristín Ólafsdóttir og Blesa frá Sveinsstöðum - 6.25

4. Þórey Helga Sigurbjörnsdóttir og Bersi frá Sóra-Búrfelli - 4.625

 

 

2. Flokkur

1. Guðmundur Sigfússon og Mídas frá Köldukinn 2 - 7

2. Camilla Johanna og Júpíter frá Stóradal - 6.1

3. Hörður Ríkharðsson og Óskastjarna frá Blönduósi - 5.6

4. Sara Kjær Boenlykke og Framtíð frá Hæli - 5.5

5. Hafrún Kjelberg og Gáta frá Höskuldsstöðum - 4.7

 

 

1.Flokkur:

1. Sunna Margrét Ólafsdóttir og Gleði frá Skagaströnd - 6.4

2 - 3. Jón Kristófer Sigmarsson og Óskahrafn frá Steinnesi - 5.8

2 - 3. Jakob Víðir Kristjánsson og Skegla frá Vörðubrún - 5.8

10.02.2025 10:23

Aðalfundur Hestamannafélagsins Neista

Boðað er til aðalfundar Hestamannafélagsins Neista þann 17.2.2025. Fundurinn verður haldinn í reiðhöllinni Arnargerði og hefst kl. 20:00.

Dagskrá fundarins:

  • Fundarsetning, kosning starfsmanna fundarins

  • Skýrsla stjórnar

  • Afgreiðsla reikninga félagsins

  • Ákvörðun árgjalds

  • Kosningar

  • Önnur mál

Hvetjum alla félagsmenn til að mæta.

F.h. stjórnar Hestamannafélagsins Neista,

Hafrún Ýr Halldórsdóttir,

formaður

27.01.2025 20:12

Fundarferð um landið

Almennir fundir í fundarröð stjórnar hrossabænda og Fagráðs í hrossarækt um málefni hrossaræktarinnar hefjast í febrúar. Helstu málefni sem tekin verða fyrir á fundunum eru m.a. eftirfarandi:

  • Málefni hrossabænda
  • Notkun keppnisdóma í kynbótamatinu
  • Þróun kynbótadómsins
  • Hrossaræktin almennt

Eins og sjá má verður margt áhugavert á döfinni.

Fulltrúar hrossabænda og fagráðs, þau Nanna Jónsdóttir formaður stjórnar hrossabænda og fagráðs og Þorvaldur Kristjánsson, hrossaræktarráðunautur verða á ferðinni.

Fundirnir verða haldnir um allt land en þeir verða haldnir á eftirfarandi stöðum:

4. febrúar þriðjudagur Borgarnes – Félagsheimili Borgfirðings kl. 20:00.

5. febrúar miðvikudagur Eyjafjörður - Reiðhöllin á Akureyri kl. 20:00.

6. febrúar fimmtudagur Skagafjörður - Tjarnarbær Sauðárkrókur kl. 16:00.  

7. febrúar föstudagur V-Húnavatnssýsla – Víðihlíð kl. 20:00.

10. febrúar mánudagur Reykjavík – Reiðhöllin í Víðidal kl. 20:00.

11. febrúar þriðjudagur Suðurland – Rangárhöllin Hellu kl. 20:00

17. febrúar mánudagur Austurland – Félagsheimili Freyfaxa Stekkhólma kl. 20:00.

18. febrúar þriðjudagur – Höfn í Hornafirði – Fornustekkar kl. 20:00

Hvetjum hestamenn og hrossaræktendur til að fjölmenna á fundina og nýta tækifærið til að kynna sér verkefnin og leggja sitt til málanna.

29.11.2024 12:41

Námskeið í vetur - Skráning hafin!

Reiðnámskeið veturinn 2025

Hestamannafélagið Neisti mun bjóða upp á reiðnámskeið frá miðjum janúar til apríl loka veturinn 2025. Námskeiðin eru auglýst með fyrirvara um næga þátttöku.

Hópaskiptingar verða auglýstar að loknum síðasta skráningardegi á heimasíðu Neista, www.neisti.net.

Nánari upplýsingar hjá Æskulýðsnefnd Neista – Netfang: [email protected]

Kennarar: Guðrún Rut Hreiðarsdóttir, Sigríður Vaka Víkingsdóttir

Skráning fer fram hér: https://www.abler.io/shop/hfneisti

fyrir 04.12.2025.

Almennt reiðnámskeið fyrir börn 7-14 ára - 1x í viku

Áhersla lögð á ásetu og stjórnun hestsins og aukið sjálfstæði í umgengni við hestinn og að nemandi nái góðu og traustu sambandi við hestinn sinn. Þátttakendum kennt að greina mun á gangtegundum. Leikir og þrautir á hestbaki. Þátttakendum verður skipt í hópa eftir aldri og getu.

Námskeiðið hefst um miðjan janúar og lýkur í lok apríl.

Verð: 25.000 kr.

__________________________________________________________________________

Almennt reiðnámskeið fyrir fullorðna - 1 x í viku

Almenn reiðnámskeið fyrir fullorðin sem eru að byrja í hestamennsku eða hafa misst kjarkinn. Áhersla lögð á ásetu og stjórnun hestsins og aukið sjálfstæði í umgengni við hestinn og að nemandi nái góðu og traustu sambandi við hestinn sinn. Þátttakendum kennt að greina mun á gangtegundum. Þátttakendum verður skipt í hópa eftir getu.

Námskeið hefst um miðjan janúar og lýkur í lok apríl.

Verð: 30.000 kr.

___________________________________________________________________________

Pollanámskeið - 3 skipti í mánuði

Ætlað fyrir yngri börn. Lögð verður áhersla á jafnvægi á hestbaki og grunnstjórnun hestsins í gegnum leiki og þrautir. Þátttakendum verður skipt í hópa eftir aldri og getu. Foreldrar/aðstoðarmenn teyma undir þeim börnum sem ekki eru tilbúin að stjórna sjálf.

Kennt verður 1 sinni í viku, þrisvar í mánuði.

Námskeið hefst í byrjun febrúar og lýkur í lok apríl .

Verð: 15.000 kr.

__________________________________________________________________________

Námskeið fyrir unglinga og/eða ungmenni – 1 x í viku

Einstaklingsmiðað námskeið fyrir hvern knapa og hest.

Lögð verður áhersla á ásetu og stjórnun, líkamsbeytingu knapa og hests og samspil

þeirra á milli.

Farið verður yfir gangtegundir, ábendingar og æfingar ásamt öðru sem snýr að

þjálfun.

Skipt verður í hópa eftir getu.

Námskeið hefst um miðjan janúar og lýkur í lok apríl.

Verð: 25.000 kr.

__________________________________________________________________________

Námskeið fyrir lengra komna - 1x í viku

Almennt reiðnámskeið sem er einstaklingamiðað fyrir hvern knapa og hest.

Markmið námskeiðsins er að bæta líkamsbeytingu knapa á hestbaki svo að knapi

geti hjálpað hestinum sínum að bera sjálfan sig og knapa sem best.

Knapa kennt að setja sér raunhæft markmið í þjálfun og stefna að því markmiði

með aðstoð kennara.

Námskeið hefst um miðjan janúar og lýkur í lok apríl .

Verð: 25.000 kr.

20.11.2024 17:58

Félagshesthús Neista

Stjórn Neista hefur ákveðið að bjóða aftur uppá félagshesthús í vetur ef næg þátttaka er fyrir hendi.

Skráningarfrestur er til 23:59, sunnudaginn 1. desember

Fyrirkomulagið verður með svipuðum hætti og í fyrra, hægt verður að leigja hesta og eins hesta stíur. Við stefnum að því að vera með umsjónarmann yfir hesthúsinu sem sér um morgungjafir og umhirðu að hluta. Foreldrar sjá um kvöldgjafir og umhirðu um helgar, en því yrði skipt niður og sér stjórnin um að halda utan um það skipulag.

Til að það gangi að halda úti svona hesthúsi verða foreldrar að taka virkan þátt í gjöfum og umhirðu hestanna því það er jú partur af þessu sporti.

Í boð er:

  • Að leigja stíu þar sem þú kemur með þinn eigin hest. Innifalið er hey, undirburður og morgungjafir.

  • Að leigja hest. Þú færð skaffaðan hest til að vera á reiðnámskeiðinu en einnig getur þú komið og farið á bak þegar þú vilt. Innifalið er hestur, hey, undirburður, morgungjafir og járning.

  • Að leigja hest í stakt skipti. Hentar vel fyrir þá sem ætla ekki á hestbak nema bara á reiðnámskeið eða í einn og einn útreiðartúr.

Verðskrá:

Leigja hest: 35.000kr
Leigja stíu: 30.000kr
Leigja hest í stakt skipti: 3.500kr

Fyrir frekari upplýsingar og skráningu sendið tölvupóst á [email protected]

Gæti verið mynd af texti

Líkar þetta

Skrifa ummæli

Senda

16.10.2024 20:17

Reiðnámskeið fyrir lengra komna unglinga

Reiðtímar á kennsluhestum

Á námskeiðinu fá nemendur vel þjálfaða kennsluhesta sem að reiðkennarinn úthlutar.
Reiðkennsla á reynslumeiri hesti gefur nemandanum aukið færi á að þjálfa nákvæmar ábendingar,
grunnþjálfun í fimiæfingum og fá tilfinningu fyrir góðri líkamsbeitingu hestsins á hreinum gangtegundum.
Þennan skilning og tilfinningu getur nemandinn svo nýtt sér við þjálfun á eigin hesti

 

Um námskeiðið:

Hestamannafélagið Neisti ætlar í samstarfi við Sigríði Vöku að bjóða uppá námskeið á kennsluhestum
sem byggist upp á einni sýnikennslu og fjórum einkatímum (30.mín).

 

Námskeiðið er dagana 21. október (sýnikennsla), 22. október,
25, október, 29. október og 1. nóvember

 

Námskeiðið er eingöngu hugsað fyrir lengra komna unglinga.
Þetta er einstakt tækifæri fyrir þau sem langar að ná ennþá lengra!

 

Hægt er að senda tölvupóst á [email protected] til að skrá sig á námskeiðið og einnig 
ef einhverjar spurningar vakna. Aðeins eru takmörkuð pláss í boði á námskeiðinu.

Reiðkennari er Sigríður Vaka
Verð 40.000 kr. fyrir félagsmenn
Verð 45.000 kr fyrir utanfélagsmenn
Félagsmenn Neista ganga fyrir 

14.10.2024 18:42

Fundur með æskulýðsnefnd

Æskulýðsnefnd Neista boðar börn, foreldra og alla þá sem hafa áhuga á barnastarfi hjá hestamannafélaginu á pizzufund kl 18:00 mánudaginn 28. Oktober í reiðhöllinni þar sem verður farið yfir vetrastarfið og öllum gefinn kostur á að koma sínum hugmyndum á framfæri. Þarna verða ýmis mál tekin fyrir eins og kaffisala á mótum, starfsemi félagshesthússins og þátttaka á sýningunni „æskan og hesturinn“. Við ætlum að bjóða uppá pizzu og djús og því viljum við biðja fólk um að skrá sig (bæði börn og fullorðnir) í ummælum á facebook síðu félagsins eða í facebookhópnum "Félagsmenn Neista"

Hlökkum til að sjá ykkur og skipuleggja vetrarstarfið með ykkur.

Æskulýðsnefnd Neista Heiða, Kristín Birna, Guðný Ósk, Kristín J og Auður

 

02.10.2024 18:16

Reiðnámskeið - haust 2024

Ásetuæfingar:

Áseta knapa og virkni hans í hnakknum hefur mikil áhrif á jafnvægi, líkamsbeitingu 
og hreyfingar hestsins.

Í ásetuæfingum er það reiðkennarinn sem stjórnar hestinum í hringtaum
en knapinn getur einbeitt sér alfarið að sinni ásetu og unnið í því að 
bæta jafnvægi sitt, líkamsstöðu og tilfinningu.

 

Um námskeiðið:

Hestamannafélagið Neisti býður uppá tvö, 2ja daga námskeið fyrir
börn, unglinga og ungmenni. Það eina sem nemendurnir þurfa að mæta með er hjálmur.
Hestar og búnaður fyrir þau er á staðnum en þó mega nemendur mæta með sinn hnakk.

 

Námskeið 1: Dagana 7. og 10 október

Námskeið 2: Dagana 14. og 17. október

 

Kennslufyrirkomulagið verða einkatímar, 20 mín hver tími.
Það eru takmörkuð pláss í boði á námskeiðin. Hægt er að senda
tölvupóst á [email protected] til að skrá sig á námskeiðið.

Reiðkennari er Sigríður Vaka

Verð 10.000 kr fyrir félagsmenn
Verð 12.000 kr fyrir utanfélagsmenn
Félagsmenn Neista ganga fyrir

 

19.09.2024 12:59

Haustfundur Neista

Haustfundur Hestamannafélagsins Neista verður haldinn

Fimmtudaginn 26. september kl 20:00 í reiðhöllinni Arnargerði

Hvetjum alla félagsmenn til að mæta

Stjórnin

 

17.07.2024 21:23

Torfæra í Kleifarhorni

? Torfæra í Kleifarhorni ?

Laugardaginn 20. júlí klukkan 11:00 - 17:00 fer fram torfæra í Námunni við keppnisvöllinn okkar.

Ekki má ríða á keppnisvellinum á meðan.

Pössum uppá öryggið!

08.07.2024 12:19

Landsmót hestamanna 2024

Þá er landsmóti hestamanna í Reykjavík lokið að þessu sinni. Við hjá hestamannafélaginu Neista áttum flotta fulltrúa á mótinu og erum við virkilega stolt af þeim! Í öllum flokkum voru virkilega sterkir hestar sem gerðu mótið spennandi og skemmtilegt

 

Í A flokki áttum við tvo fulltrúa, Viðar frá Hvammi og Hátíð frá Söðulsholti. Lilja Maria Suska keppti á Viðari og hlutu þau 8.35 í einunn. Ásdís Brynja Jónsdóttir keppti á Hátíð og hlutu þær 8.26 í einkunn.

 

Í B flokki áttum við líka tvo fulltrúa, Húnu frá Kagaðarhóli og Mídas frá Köldukinn 2. Glódís Rún Sigurðardóttir keppti á Húnu og hlutu þær 8.51 í einkunn. Egill Þórir Bjarnason keppti á Mídasi og hlutu þeir 8.26 í einkunn.

 

Fyrir okkar hönd fór eitt ungmenni á mótið, hún Inga Rós Suska Hauksdóttir. Hún keppti á merinni Freistingu frá Miðsitju og hlutu þær 8.04 í einkunn.

 

Systurnar Sunna Margrét og Salka Kristín Ólafsdætur kepptu í unglingaflokk. Sunna keppti á Topp frá Litlu-Reykjum og hlutu þau 8.27 í einkunn. Salka keppti á Gleði frá Skagaströnd og hlutu þær 8.21 í einkunn

 

Meðfylgjandi eru myndir af þessum flottu fulltrúum okkar, í sömu röð og þau eru talin upp hér að ofan.

 
 

 

 

 

 

 

 

 

 

22.06.2024 13:01

Frjálslegt gæðingamót - Sunnudaginn 23. Júní

Dagskrá á frjálslegu gæðingamóti Sunnudaginn23. Júní

 

Kl. 13:00 stundvíslega hefst keppni

- B-flokkur gæðinga - forkeppni.

- Barnaflokkur og Polli – forkeppni

- A-flokkur úrslitakeppni

- Gæðingatölt 4 holl í forkeppni og úrslitakeppnií beinu framhaldi.

- Börn og Polli, úrslitakeppni

- Hlé, grillaðar pylsur og drykkur.  ( um kl. 15:30).

- B-flokkur úrslitakeppni

Mótsslit og almennur fögnuður.

Ráslistar.

 

 

 

 

 

B - flokkur

 

 

 

1

Gjöf frá Steinnesi

Aron Halldórsson

 

2

Aðalsteinn frá Geitaskarði

Pétur Ari Pétursson

 

3

Glóð frá Stóra-Hofi

Frosti Richardsson

 

4

Framtíð frá Hæli

Sara Bönlykke

 

5

Júpíter frá Stóradal

Camilla Johanna Czichowsky

 

6

Spenna frá Blönduósi

Guðmundur Sigfússon

 

7

Aragon frá Fremri-Gufudal

Aron Halldórsson

 

8

Óskastjarna frá Blönduósi

Hörður Ríkharðsson 

 

 

 

 

 

Barna - Pollaflokkur

 

 

 

1

Henrý frá Kjalarlandi

Halldóra Líndal Magnúsdóttir

 

2

Erla frá Kjalarlandi

Katrín Sara Reynisdóttir

 

3

Börkur frá Brekkukoti

Margrét Viðja Jakobsdóttir

 

4

Harpa frá Kjalarlandi

Camilla Líndal Magnúsdóttir

 

5

Elddór frá Kjalarlandi

Halldóra Líndal Magnúsdóttir

 

 

 

 

 

A- flokkur

 

 

 

1

Kolsá frá Kirkjubæ

Jón Kristófer Sigmarsson 

 

2

Þrá frá Þingeyrum

Hörður Ríkharðsson 

 

 

 

 

 

 

 

Gæðingatölt

 

 

 

1

Ljósfari frá Grænhlíð

Hera Rakel Blöndal

 

1

Garpur frá Lækjardal

Anna Knak

 

2

Dimma frá Geitaskarði

Frosti Richardsson

 

2

Púma frá Grænuhlíð

Sara Bönlykke

 

3

Fylkir frá Hæli

Kira Knak

 

3

Aðalsteinn frá Geitaskarði

Pétur Ari Pétursson

 

4

Júpíter frá Stóradal

Camilla Johanna Czichowsky

 

4

Jarpur frá Reykjavík

Guðrún Tinna Rúnarsdóttir

 

 

 

 

 

 

Athugasemdir og fyrirspurnir berist Sigga eðaHödda.

13.06.2024 11:14

Gæðingamót - Sunnudaginn 23. júní

? Gæðingamót ?

Sunnudaginn 23. júní verður haldin gæðingakeppni með frjálslegu sniði á skeiðvellinum í Kleifarhornsnámu.

Keppt verður í :

- Barnaflokki

- Unglingaflokki

- B - flokki gæðinga

- A - flokki gæðinga

- Gæðingatölti.

Skráningargjald er 2.000 kr. fyrir börn og unglinga en 2.500 kr. fyrir fullorðna.

Skráningarfrestur er til miðnættis föstudaginn 21. júní og berist skráningar á netfangið [email protected] en greiðslur inn á reikning 0307 - 26 - 055624. Mótið verður ekki á Horseday appinu og árangur ekki skráður á hross.

Mótið hefst kl. 13:00 en ráslistar og dagskrá birtist á laugardaginn 22. júní.

Stefni í líflegt mót og gott veður verða mögulega grillaðar pylsur í boði.

Hafi fólk ábendingar eða skorti upplýsingar má hafa samband við Sigga í síma 8882050 eða Hödda í síma 8940081.

02.06.2024 11:38

Gæðingamót Þyts, Neista og Snarfara / Úrtaka fyrir Landsmót í Reykjavík 2024

Úrtaka og félagsmót hestamannafélaganna Þyts, Neista og Snarfara fer fram dagana 8 - 9 júní.

Mótið verður haldið á vellinum á Hvammstanga.

Skráningar skuli berast fyrir miðnætti þriðjudaginn 4. júní inn á skráningakerfi Sportfengs 

Mótanefnd áskilur sér rétt til að fella niður eða sameina flokka ef ekki næst næg þátttaka.

Skráningargjöld í fullorðinsflokka og ungmennaflokk eru 4.500 kr. og fyrir börn og unglinga 3.500 kr. Í skeiði er skráningargjaldið 3.500 kr á hest.

Þeir sem eru með farandbikara mega koma þeim til mótanefndar áður en mótið hefst.

Í Gæðingatölti verður opinn flokkur

Skráningargjad skal greiða um leið og skráð er og senda kvittun fyrir greiðslu skráningargjalds á netfangið 

[email protected].

Kt: 550180-0499

Rnr: 0159 - 15 - 200343

 

 
 
 

 

21.03.2024 19:35

Smalamót

 

Þann 29. Mars ætlum við að halda smalamót.
Keppt verður í barnaflokk, unglingaflokk og fullorðinsflokk. Einnig fá pollar að vera með.
Mótið hefst klukkan 16:00.
Skráningu skal senda á messenger á Guðrúnu Tinnu eða á netfangið [email protected] 
Skráningargjald er 1500 kr í alla flokka og skráning er ekki gild fyrr en búið er að greiða það. 
Kt. 480269-7139.      Rn. 0307-26-055624
Skráningar frestur rennur út Þriðjudaginn 26. Mars.

Árangurinn ræðst af brautartíma og felldum keilum.
Stigin telja þannig að knapar raðast í sæti eftir besta tímanum, sá sem er fyrstur fær 300 stig, sá næsti 280 stig, 270 og svo framvegis. Við hverja fellda keilu dragast frá 14 stig. Fyrir sleppt hlið eru 28 refsistig. Yfir brúna er ekki leyft að fara á stökki þ.e.a.s. Allur annar gangur er í lagi. Ef brúnni er sleppt þá er það 4x28 refsistig.
Gult spjald= gróf reiðmennska 30 refsistig. 
Rautt spjald= MJÖG gróf reiðmennska, úr leik.

Flettingar í dag: 2230
Gestir í dag: 28
Flettingar í gær: 1780
Gestir í gær: 60
Samtals flettingar: 1218570
Samtals gestir: 95927
Tölur uppfærðar: 1.8.2025 20:21:25

Vafraðu um

Eldra efni

Um hestamannafélagið Neista

Nafn:

Hestamannafélagið Neisti

Afmælisdagur:

1943

Heimilisfang:

540 Blönduós

Staðsetning:

Blönduós

Um:

Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.

Kennitala:

480269-7139

Tenglar

clockhere