13.03.2014 19:56Úrslit úr Grunnskólamótinu
Smali 8. - 10. bekkur
1. Eva Dögg Pálsdóttir 10 Grsk Húnaþings vestra
Smali 4. - 7. bekkur
1. Lilja Maria Suska 7 Húnavallaskóli
Þrautabraut
Sunna Margrét Ólafsdòttir 1 Húnavallaskóli
Skeið 1. Sigurður Bjarni Aadnegard 9 Blönduskóli
12.03.2014 23:54Námskeið í boði HólaskólaReiðkennaraefni Hólaskóla bjóða upp á reiðnámskeið fyrir almenning í reiðhölllinni á Blönduósi 22.-23. mars 2014. Skráning á: [email protected]
Skrifað af Ásdís 12.03.2014 20:53Staðan í stigakeppninniHér er svo staðan í stigakeppninni eftir Smalann
Barna,- og unglingaflokkur:
Áhugamannaflokkur:
Opinn flokkur:
12.03.2014 20:22Úrslitin í SmalaHér koma úrslitin í Smala sem haldinn var í reiðhöllinni á Blönduósi 10 mars sl.
Barna, - og unglingaflokkur
Áhugamannaflokkur
Opinn flokkur
11.03.2014 20:47Karlareið á Svínavatni 2014
Hin árlega karlareið eftir Svínavatni var fari sl. laugardag. Nær 50 karlar tóku þátt í reiðinni að þessu sinni, fleiri en nokkru sinni fyr. Frábært veður var og skemmtu menn sér hið besta. Svínavatn er tæpir 12 km á lengd og var haldið frá Dalsmynni og riðið í nyrstu vík vatnsins og land tekið vestan við Orrastaði. Meðfylgjandi myndir segja meir en mörg orð um stemminguna.
Góðar kveðjur Magnús frá Sveinsstöðum 07.03.2014 14:48Grunnskólamótið. Dagskrá og ráslistarÞrautabraut, smali og skeið verða í Reiðhöllinni Arnargerði á Blönduósi 09. mars kl. 13.00
Ráslistar:
Smali 8. - 10. bekkur
Smali 4. - 7. bekkur
Þrautabraut
Skeið
Skrifað af HBE 05.03.2014 18:43SmaliSMALI er næsta mót Mótaraðar Neista. Mótið verður haldið mánudaginn 10 mars nk. kl.20.00 Skráningargjöld eru 1.500 kr í smala fyrir fullorðna þ.e.a.s. fyrir fyrsta hest en 1.000 krónur eftir það og 1.000 fyrir unglinga. Skráningargjöld má greiða áður en mót hefst inná reikning Neista 0307-26-055624 kt. 480269-7139 og senda kvittun á netfang Neista [email protected] en það má líka greiða á staðnum (ekki er tekið við greiðslukortum). ATH:: Keppt er í smala í grunnskólamótinu á sunnudeginum og verður því brautin uppi um helgina til æfinga. 04.03.2014 09:53Karlareið á Svínavatni
Árleg karlareið á Svínavatni (Húnavatnshreppi)
Mæting er við Dalsmynni kl. 14:00. Riðið verður eftir endilöngu vatninu sem er liðlega 10 km langt og 1-2 km breitt. Áð verður á nokkrum stöðum á leiðinni þar sem búið verður að koma fyrir einhverju góðgæti fyrir bæði hross og menn, Veðurspáin er góð og ekkert til fyrirstöðu annað en að skella sér með í þessa einstöku karlareið á Svínavatni óháð búsetu eða hestamannfélagi. ( þú þarft að vera karlmaður).
Skráning í ferðina er á [email protected] Allir velkomnir og vonumst til að sjá sem flesta Nefndin
02.03.2014 12:57Grunnskólamótið - Þrautabraut/Smali/SkeiðGrunnskólamótið - Þrautabraut/Smali/Skeið
Grunnskólamót hestamannafélaga á Norðurlandi vestra verða: 09.mars á Blönduós - þrautabraut, smali og skeið 15. apríl á Hvammstanga - fegurðarreið, tölt og skeið 27. apríl á Sauðárkróki - fegurðarreið, tvígangur, þrígangur, fjórgangur og skeið
Þrautabraut, smali og skeið verða í Reiðhöllinni Arnargerði á Blönduósi 09. mars kl. 13.00
Keppnisgreinar eru: 1. - 3. bekkur þrautabraut 4. - 7. bekkur smali 8. - 10. bekkur smali 8. - 10. bekkur skeið Skráningar þurfa að hafa borist fyrir miðnætti miðvikudaginn 05. mars á netfangið: [email protected] Fram þarf að koma: nafn, bekkur og skóli knapa nafns hests og uppruni, aldur, litur og keppnisgrein. Skráningargjald er 1000 kr. fyrir fyrstu skráningu, 500 kr fyrir næstu skráningar og skal greiða á staðnum áður en mót hefst (ekki tekið við greiðslukortum).
Grunnskólamót reglur
Mótið er hugsað til að efla áhuga á hestaíþróttinni og gefa sem flestum kost á því að taka þátt. Keppt er eftir venjulegum hestaíþróttareglum og dæmt í samræmi við þær, keppni skal stjórnað af þul. Keppendur skulu hneigja sig í upphafi og lok keppni og hlíta fyrirmælum þular í hvívetna. Allir grunnskólanemar á Norðurlandi vestra eiga þátttökurétt. 1. Mótið heitir Grunnskólamót hestamannafélaga á Norðurlandi vestra. 2. Keppnisgreinar eru: Ø Fegurðarreið 1. - 3. bekkur. Þar eru riðnir 2 hringir og látið fara fallega dæmt skal eftir stjórnun og þokka. 2 - 3 keppendur inná í einu. Ø Tvígangur 4. - 7. bekkur. Riðnir tveir hringir á annað hvort brokki eða tölti og fet ½ hringur. Áseta og stjórnun dæmd. Ø Þrígangur 4. - 7. bekkur. Riðið einn hringur brokk, einn hringur tölt og fet ½ hringur. Áseta og stjórnun dæmd. Ø Fjórgangur 8. - 10. bekkur. Venjuleg íþróttakeppni, riðnir fjórir og hálfur hringur. Einn hringur hægt tölt, einn hringur yfirferðar tölt, ½ hringur fet , einn hringur brokk og einn hringur stökk. ¨ Riðin B og A úrslit ef keppendur eru fleiri en 16
Ø Þrautabraut 1. - 3. bekkur. Áseta, stjórnun og færni dæmd. Engin tímataka. Hringurinn 3 metrar í ummál, þar skal stöðva hestinn og halda svo áfram. Ø Smali 4. - 7. og 8 .- 10. bekkur. Smalabrautin skal vera skýr og hættulaus og forðast skal allan óþarfa glannaskap. Keppt skal eftir tíma og skal bæta 4 sekúndum við tíma fyrir hverja keilu sem felld er eða sleppt. Ef sleppt er hliði bætast 2x4 sekúndur við. Ef tunna dettur er bætt við 4 sekúndum og ef tunnu er sleppt bætast við 4x4 sekúndur. Gult spjald er jafnt og 10 sekúndur og má sýna ef knapi sýnir grófa reiðmennsku og jafnvel víkja keppanda úr sýningu. Bannað er að fara á stökki yfir pallinn. Ef hleypt er yfir pallinn bætast við 4x4 sekúndur.
Ø Tölt 4. - 7. bekkur. Tveir inná í einu, riðið hægt tölt, einn hringur, snúið við og riðið , frjáls ferð á tölti, samtals 2 hringir. ¨ Riðin B og A úrslit ef keppendur eru fleiri en 16 Ø Tölt 8. - 10. bekkur. Tveir inná í einu, riðið hægt tölt, einn hringur, snúið við og riðið tölt með hraðabreytingum á langhliðum einn hringur og greitt tölt einn hringur, samtals þrír hringir . ¨ Riðin B og A úrslit ef keppendur eru fleiri en 16
Ø Skeið 8. - 10. bekkur mega keppa í skeiði og skal tímataka vera samkvæmt venju á hverjum stað. Fara skal 2 spretti og betri tíminn gildir. ¨ Keppni í skeiði er með fyrirvara um veður og aðstæður á hverjum stað. v Gult spjald má sýna ef knapi sýnir grófa reiðmennsku og jafnvel víkja keppanda úr sýningu.
3. Keppandi má koma með hest hvaðan sem er, hesturinn/hesteigandi þarf ekki að vera í hestamannafélagi viðkomandi skólahverfis. 4. Heimilt er að sami hestur sé skráður í 2 greinar. 5. Foreldrar mega ekki vera inn á keppnisvellinum meðan á keppni stendur 6. Keppendur í tví- og þrígangi í 4. - 7. bekk. verða að velja annað hvort tvígang eða þrígang að keppa í. Óheimilt að sami keppandi keppi í báðum greinum. 7. Í tölti, tví-, þrí- og fjórgangi mega keppendur keppa á fleiri en einum hesti, en í úrslitum verður einungis einn hestur frá hverjum knapa. 8. Ef tveir eru jafnir í 5. og 6. sæti skulu báðir mæta í úrslit og verðlauna bæði sætin sem 5. sæti. 9. Járningar, 10 mm skeifur og 250 gr. hlífar eða 8 mm og botnar. 10. Í smala er ekki leyft að ríða við stangir, annars gilda almennar íþróttakeppnisreglur.
Stig Stigatafla fyrir alla greinar nema skeið, Ef allir keppendur í úrslitum eru frá sama skóla fær skólinn einungis stig fyrir efsta sætið, síðan næsti skóli inn í úrslit og svo framvegis. 1. sæti gefur 10 stig til viðkomandi skóla Stigatafla fyrir skeið, öll stigin geta farið á sama skóla, þetta er aukabúgrein. 1. sæti gefur 5 stig
02.03.2014 09:38Næsta mót Mótaraðar NeistaNæsta mót Mótaraðar Neista, hefði átt að vera fjórgangur þann 10 mars nk. en þar sem að sunnudaginn 9 mars verður keppt í Smala á vegum Grunnskólamótaraðarinnar þá hefur mótanefnd Neista ákveðið að skipta, og hafa Smalakeppnina kvöldið 10 mars nk. Þá er hægt að nota tækifærið og hafa brautina áfram uppi. Auglýst nánar í vikunni. Mótanefnd. 02.03.2014 00:02Úrslit á Svínavatni, Tryggvi sigraði A-flokkinn 3 árið í röðÞá er lokið enn einu frábæru ísmóti á Svínavatni. Veður og færi eins og best verður á kosið og dagskráin gekk vel og snuðrulaust fyrir sig. Hestakosturinn magnaður og þá sérstaklega í B-flokki þar sem hann hefur sennilega aldei verið sterkari.
Glæsilegasti hestur mótsins var valin Síbil frá Torfastöðum sem hlaut m.a. 10 fyrir yfirferð í tölti en Hans Þór Hilmarsson og Síbil sigruðu með yfirburðum bæði B-flokkinn með 9,21 í einkunn og töltið með 8,50 í einkunn.
Tryggvi Björnsson sigraði A flokkinn þriðja árið í röð og núna á glæsihryssunni Þyrlu frá Eyri en þau hlutu 8,74 í einkunn.
Kærar þakkir til áhorfenda, starfsmanna og ekki síst til knapa sem margir komu um langan veg létu aldrei bíða eftir sér á mótinu. Væntanlega sjáumst við svo 28. febrúar á næsta ári.
Kaupfélag V - Húnvetninga býður upp á A - flokk Sæti Knapi Hestur Samtals Tryggvi Björnsson Þyrla frá Eyri 8,74 Ísólfur Líndal Gandálfur frá Selfossi 8,57 Elsa Hreggviðsdóttir Mandal Ársól frá Bakkakoti 8,51 Líney María Hjálmarsdóttir Kunningi frá Varmalæk 8,49 Logi Þór Laxdal Vörður frá Árbæ8,40 Jakob Sigurðarson Ægir frá Efri-Hrepp 8,39 Elvar Einarsson Mánadís frá Akureyri 8,30 Gunnar Arnarson Hreggviður frá Auðholtshjáleigu 8,29 Tölt úrslit
Húsherji ehf-Svínavatni
27.02.2014 15:51Ráslistar fyrir Svínavatn
B- flokkur Kaupfélag V-Húnvetninga 1 Skapti Steinbjörnsson Mön frá Hafsteinsstöðum Sjáumst og horfum á flotta gæðinga á ís.
Hestamannafélögin Neisti og Þytur
27.02.2014 15:47Svínavatn laugardaginn 1. mars
Mótið verður haldið laugardaginn 1. mars og hefst stundvíslega klukkan 11 á B-flokk, síða kemur A-flokkur og endað er á tölti. Úrslit verða riðin strax á eftir hverri grein. Ísinn er afbragðs góður og vel lítur út með veður og færi. Skráningar eru rúmlega 130 og þar af er fjöldi af landsþekktum gæðingum. Ráslistar og aðrar upplýsingar eru birtar á heimasíðu mótsins http://www.is-landsmot.is/ Gott hljóðkerfi og útvarpsútsending þar sem einkunnir verða kynntar jafnóðum. Veitingasala á staðnum, heitir drykkir, samlokur, pylsur o.fl. posi. Vegna góðs stuðnings styrktaraðila mótsins, er aðgangur ókeypis og allir hvattir til að koma og njóta þessarar mestu gæðingaveislu ársins á svæðinu. 25.02.2014 22:52Staðan í stigakeppni Mótaraðar NeistaHér kemur staðan eins og hún er eftir fyrstu tvö mót mótaraðarinnar, Ístölt og T-7.
Barna,- og unglingaflokkur:
Áhugamannaflokkur:
Opinn flokkur:
25.02.2014 12:41Aðalfundur
Aðalfundur Hestmannafélagins Neista verður miðvikudagskvöldið 26. febrúar kl. 20:30 Í Reiðhöllinni Arnargerði. Dagskrá:
Skrifað af selma Flettingar í dag: 762 Gestir í dag: 51 Flettingar í gær: 325 Gestir í gær: 18 Samtals flettingar: 925995 Samtals gestir: 88422 Tölur uppfærðar: 31.3.2025 16:35:16 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is