17.11.2023 05:50Viðurkenningar 2023Uppskeruhátíð 2023
Uppskeruhátíð húnvetnskra bænda og hestamanna var haldin 11. nóvember sl.
Hestamannafélagið tilkynnti á hátíðinni hverjir hlutu viðurkenningarnar knapar ársins og sjálfboðaliði ársins.
Ásdís Brynja Jónsdóttir er knapi ársins í eldri flokkum.
Ásdís Brynja gerði það virkilega gott á keppnisvellinum á árinu. Hún var staðsett á suðurlandi og keppti því aðallega þar sem félagi Neista. Hún keppti á Hátíð frá Söðulsholti en hryssan er í eigu Ásdísar.
Þær stöllur voru duglegar að keppa og tóku þátt í mörgum WR mótum. Þær kepptu t.d. í gæðingaskeiði PP1 í 1 flokk á WR Suðurlandsmóti Geysis og enduðu í 3 sæti. Á WR móti Sleipnis kepptu þær í fimmgangi F2 og lentu í 8 sæti og á WR íþróttamóti Geysis kepptu þær í fimmgangi F2 og enduðu í 10 sæti. Einnig tóku þær þátt í Parafimi í suðurlandsdeildinni og enduðu í 7. sæti.
Þetta er aðeins brot af keppnis árangri þeirra Hátíðar en þær stóðu sig virkilega vel á síðasta keppnisári og verður gaman að fylgjast með þeim í framtíðinni.
Innilega til hamingju með flottan árangur!
Salka Kristín Ólafsdóttir er knapi ársins í yngri flokkum.
Salka gerði það gott í keppni á síðastliðnu ári en má þar helst nefna að hún keppti á Unglingalandsmótinu á Sauðárkróki og stóð sig virkilega vel. Salka keppti í fjórgangi V2 og tölti T3 á merinni Gleði frá Skagaströnd og enduðu þær í 7. sæti í fjórgangi með einkunnina 5,53 og 4. sæti í tölti með einkunnina 5,78
Salka var dugleg að keppa en hún tók þátt í Skagfirsku mótaröðinni, mótaröð Þyts, kvennatölti Líflands auk þess sem hún tók þátt í öllum mótum sem Neisti hélt síðastliðinn vetur og stóð hún sig vel allstaðar þar sem hún keppti.
Salka Kristín hefur verið dugleg að sækja námskeið á vegum félagsins og núna síðast tók hún Knapamerki 2 og lauk því prófi í vor. Salka stundar hestamennskuna af miklum áhuga og sjáum við miklar framfarir hjá henni frá ári til árs, bæði á námskeiðum og í keppnisbrautinni.
Innilega til hamingju með flottan árangur.
Sonja Suska er sjálfboðarliði ársins.
Skrifað af Selma 15.11.2023 18:07Reiðnámskeið veturinn 2024
Námskeiðin eru auglýst með fyrirvara um næga þátttöku. Hópaskiptingar verða auglýstar að loknum síðasta skráningardegi á heimasíðu Neista, www.neisti.net. Kennarar: Guðrún Rut Hreiðarsdóttir, Sigríður Vaka Víkingsdóttir Skráning fer fram hér https://forms.gle/wkU5MqbXnmfuQpGt6 fyrir 01.12.2022. Almennt reiðnámskeið fyrir börn - 1x í viku Áhersla lögð á ásetu og stjórnun hestsins og aukið sjálfstæði í umgengni við hestinn og að nemandi nái góðu og traustu sambandi við hestinn sinn. Þátttakendum kennt að greina mun á gangtegundum. Leikir og þrautir á hestbaki. Þátttakendum verður skipt í hópa eftir aldri og getu. Námskeiðið hefst í lok janúar og lýkur í lok apríl. Verð: 15.000kr __________________________________________________________________________ Almennt reiðnámskeið fyrir fullorðna - 1 x í viku Almenn reiðnámskeið fyrir fullorðin sem eru að byrja í hestamennsku eða hafa misst kjarkinn. Áhersla lögð á ásetu og stjórnun hestsins og aukið sjálfstæði í umgengni við hestinn og að nemandi nái góðu og traustu sambandi við hestinn sinn. Þátttakendum kennt að greina mun á gangtegundum. Þátttakendum verður skipt í hópa eftir getu. Námskeið hefst í lok janúar og lýkur í lok apríl. Verð: 20.000 kr. Utan félags, verð: 25.000 kr. ___________________________________________________________________________ Pollanámskeið - 3 skipti í mánuði Ætlað fyrir yngri börn. Lögð verður áhersla á jafnvægi á hestbaki og grunnstjórnun hestsins í gegnum leiki og þrautir. Þátttakendum verður skipt í hópa eftir aldri og getu. Foreldrar/aðstoðarmenn teyma undir þeim börnum sem ekki eru tilbúin að stjórna sjálf. Kennt verður 1 sinni í viku, þrisvar í mánuði. Námskeið hefst í byrjun febrúar og lýkur í lok apríl . Verð: 10.000 kr _________________________________________________________________________ Námskeið fyrir lengra komna - 1x í viku Almennt reiðnámskeið þar sem farið er í æfingar til að bæta hestinn. Bæta samspil knapa og hests. Þjálfa gangtegundir og undirbúningur fyrir keppni. Námskeið hefst í miðjan janúar og lýkur í lok apríl . Verð fyrir félagsmenn Neista börn: kr. 20.000 fullorðin: kr. 30.000 Knapamerki 1 Fyrirkomulag:
Sjá má frekari upplýsingar um knapamerki á síðunni www.knapamerki.is Verð fyrir félagsmenn Neista börn: kr. 25.000 fullorðin: kr. 35.000 ___________________________________________________________________________ Knapamerki 2 Fyrirkomulag:
Sjá má frekari upplýsingar um knapamerki á síðunni www.knapamerki.is Verð fyrir félagsmenn Neista börn: kr. 30.000 fullorðin: kr. 40.000 ___________________________________________________________________________ Knapamerki 3 Fyrirkomulag:
Sjá má frekari upplýsingar um knapamerki á síðunni www.knapamerki.is Verð fyrir félagsmenn Neista börn: kr. 35.000 fullorðin: kr. 45.000
Skrifað af Selma 16.06.2023 20:21Félagsmóti Neista frestaðVegna dræmrar þáttöku hefur Félagsmóti Neista verið frestað um óákveðinn tíma. Þeir sem hafa nú þegar greitt skráningargjöld hafi samband við Selmu gjaldkera og hún gengur frá endurgreiðslu. Skrifað af Hafrún 12.06.2023 16:03Félagsmót Neista 2023Félagsmót Neista verður haldið 17. júní næstkomandi klukkan 10:00. Keppt verður í eftirfarandi flokkum: A-flokkur gæðinga B-flokkur gæðinga Ungmennaflokkur Unglingaflokkur Barnaflokkur Pollaflokkur (Teymt undir)
Skráningar skuli berast fyrir miðnætti þriðjudaginn 13. júní á sportfeng Mótanefnd áskilur sér rétt til að sameina eða fella niður flokka ef ekki næst næg þátttaka Skráningargjald er 3500 krónur Upplýsingarnar varðandi greiðslu og staðfestingarpóst sem koma upp í sportfeng eru ekki réttar! Millifæra skal skráningargjald inná reiknisnúmer: 0307 - 26 - 055624 Staðfestingu á greiðslu skal senda á emailið [email protected] Nánari upplýsingar um dagskrá kemur síðar Skrifað af Hafrún 22.04.2023 13:24Tölt - úrslitTölt 19. apríl, enn einn góði dagurinn í reiðhöllinni. Takk allir sem að þessu komu. Vel heppnað.
Úrslit kvöldsins voru eftirfarandi:
POLLAFLOKKUR
BARNAFLOKKUR
2. Margrét Viðja Jakobsdóttir - Róland frá Gýgjarhóli 2, 14v - 5,25
3. Haraldur Bjarki Jakobsson - Tara frá Hala, 20v - 4,5
4. Sveinn Óli Þorgilsson - Glæsir frá Steinnesi, 21v - 4,5
5. Rakel Ósk Kristófersdóttir - Stika frá Blönduósi, 15v - 3,75
6. Thelma Rún Sigurbjörnsdóttir - Móses frá Reykjarhóli, 22v - 3,5
UNGLINGAFLOKKUR
1. Sunna Margrét Ólafsdóttir - Píla frá Sveinsstöðum, 16v - 6,25
2. Salka Kristín Ólafsdóttir - Gleði frá Skagaströnd, 10v - 6,0
3. Harpa Katrín Sigurðardóttir - Smekkur frá Höskuldsstöðum, 15v - 5,5
4. Inga Rós Suska - Feykir frá Stekkjardal, 17v - 5,25
5. Kristján Freyr Hallbjörnsson - Flipi frá Gilsstöðum, 11v - 5,0
6. Hera Rakel Blöndal - Fursti frá Hafnarfirði, 14v - 4,75
7. Kristín Erla Sævarsdóttir - Sónata frá Sauðnesi, 12v - 4,75
8. Jóhanna María Einarsdóttir - Strönd frá Snjallsteinshöfða 2, 20v - 4,25
ANNAR FLOKKUR
2. Lilja María Suska - Sóldögg frá Röðli, 12v - 6,25
3. Una Ósk Guðmundsdóttir - Slaufa frá Sauðanesi, 12v - 6,25
4. Guðmundur Sigfússon - Ólga frá Blönduósi, 6v - 6,0
5. Tina Niewert - Skuggabjörg frá Hólshúsum, 9v - 6,0
OPINN FLOKKUR
1. Jón Kristófer Sigmarsson - Engey frá Hæli, 6v - 6,2
2. Hörður Ríkharðsson - Þrá frá Þingeyrum, 9v - 5,8
3. Hjörtur Karl Einarsson - Stefna frá Hnjúkahlíð, 12v - 5,8
4. Eline Schrijver - Klaufi frá Hofi, 12v - 5,7
5. Berglind Bjarnadóttir - Eðall frá Steinnesi, 6v - 5,3
Skrifað af Selma 17.04.2023 11:10AfmælissýninginAfmælissýning tókst frábærlega vel! Hestamannafélagið bauð nágrönnum okkar hjá Þyt að koma og vera með og þau þáðu það. Þau komu með skemmtilegu hestafimleikasýninguna sína en þau fagna 15 ára afmæli í ár. Eftir sýninguna var mikil kaffi- og kökuveisla og nægur tími fyrir spjall. Stjórn hestamannafélagins vill koma á framfæri þakklæti til allra sem komu að þessari sýningu á einn eða annan hátt.
Skrifað af Selma 09.04.2023 12:40SmalinnSmalakeppni var haldin 8. apríl.
Knapar fengu tvær umferðir í braut og gilti betri tíminn. Fyrir hverja fellu voru 3 sek í refsingu en 9 sek teknar af ef fólk fór berbakt. Eftir keppnina var hlaupakeppni.
Skemmtilegt mót og góð þátttaka. Þökkum öllum kærlega fyrir sem að þessu móti kom á einn eða annan hátt. Úrslit urðu: Pollaflokkur
1. Kristrún Ýr Jónsdóttir
Barnaflokkur
2. Sveinn Óli Þorgilsson - Glæsir frá Steinnesi, 21v - 1,14 3. Arna Margrét Arnarsdóttir - Kjarval frá Blönduósi, 18v - 1,15 4. Rakel Ósk Kristófersdóttir - Stika frá Blönduósi, 14v - 1,16
5. Heiðdís Harpa Ármannsdóttir - Spreki frá Akurgerði - 1,17
Unglingaflokkur
2-3. Sunna Margrét Ólafsdóttir - Sædís frá Sveinsstöðum, 19v - 0,56
2-3. Salka Kristín Ólafsdóttir - Þrenna frá Lækjardal, 11v - 0,56 4-5. Hera Rakel Blöndal - Fursti frá Hafnarfirði, 14v - 0,59 4-5. Karoline Kathrine Nielsen - Strönd frá Snallsteinshöfða 2, 0,59 17 ára og eldri
2. Guðjón Gunnarsson - Vinur frá Hæli, 27v - 0,52 3. Þorgils Magnússon - Seifur frá Sveinsstöðum, 10v - 0,54
4. Árný Dögg Kristjánsdóttir - Stapi frá Steinnesi, 11v - 0,55
5. Tina Niewert - Skuggabjörg frá Holtshúsum, 9v - 0,57
_______________________________________________________________________
Hlaupakeppni
4-6. Katrín Sara Reynisdóttir - 0,33
4-6. Hildur Harpa Arnarsdóttir - 0,33
4-6. Arna Margrét Arnarsdóttir - 0,33
Skrifað af Selma 19.03.2023 11:03Afmælissýning 16. apríl 2023
Hestamannafélagið Neisti verður 80 ára á árinu og að því tilefni stefnum við á að vera með flotta afmælissýningu í reiðhöllinni sunnudaginn 16. apríl 2023! Til að halda svona sýningu þurfum við skemmtileg og flott atriði og leitum við því til ykkar.
Langar þig að vera með? Sýna gæðinginn þinn eða vera í skemmtilegri munsturreið með öðrum? Eða jafnvel eitthvað allt annað? Ef þú vilt taka þátt í þessu með okkur eða ert með hugmynd að einhverju skemmtilegu sem væri hægt að gera eða sýna endilega hafðu samband við stjórnina í tölvupósti [email protected] fyrir 1. apríl 2023
Þessar myndir eru síðan 2013 þegar félagið hélt uppá 70 ára afmælið. Sjá í albúmi fleiri myndir.
Skrifað af Selma 19.03.2023 10:41Fjórgangur - úrslitFjórgangur var haldinn 17. mars. Góð þátttaka og mikið fjör. Takk allir sem lögðu hönd á plóginn, án ykkar eru engin mót, samvinna er algjörlega málið.
Hér koma úrslit: Pollarnir fara alltaf sinn hring og fá viðurkenningu fyrir það.
Skrifað af Selma 12.03.2023 21:24GrímutöltGrímutölt var haldið 1. mars Guðrún Tinna og Þuríður drifu á grímutölt 1. mars og úr varð mjög svo skemmtilegt mót, góð skráning og margir áhorfendur
Þökkum öllum sem að þessu móti kom, á einn eða annan hátt, kærlega fyrir.
Úrslit urðu þessi: Pollaflokkur
Barnaflokkur
Ungmenna- og unglingaflokkur
Opinn flokkur
Verðlaun fyrir besta búningin hlaut Berglind Bjarnadóttir sem Jón Árni í Steinnesi á Skjóna sínum.
Skrifað af Selma 18.02.2023 22:22Úrslit úr þrígangiVel heppnað þrígangsmót í dag. Bestu þakkir til allra sem komu og til þeirra sem sáu um mótið. Pollaflokkur:
Aron Freyr Friðriksson og Ólympía frá Breiðstöðum
Barnaflokkur:
2. Sveinn Óli Þorgilsson - Glæsir frá Steinnesi - 5,50
3. Heiðdís Harpa Ármannsdóttir - Spreki frá Akurgerði - 5,30
4. Natalía Rán Skúladóttir - Halur frá Sauðafelli - 5,25
5. Margrét Viðja Jakobsdóttir - Apall frá Hala - 5,00
Unglinga- og Ungmennaflokkur:
1. Sunna Margrét Ólafsdóttir - Píla frá Sveinsstöðum - 6,70
2. Harpa Katrín Sigurðardóttir - Drottning frá Hnjúki - 6,30
3. Salka Kristín Ólafsdóttir - Gleði frá Sveinsstöðum - 6,20
4. Kristín Erla Sævarsdóttir - Sónata frá Sauðanesi - 5,20
5. Kristján Freyr Hallbjörnsson - Flipi frá Gilsstöðum - 5,00
Opinn flokkur:
2. Berglind Bjarnadóttir - Erla frá Steinnesi - 6,50
3. Jakob Víðir Kristjánsson - Sara frá Stóradal - 6,30
4. Guðmundur Sigfússon - Ólga frá Blönduósi - 6,20
5. Guðrún Tinna Rúnarsdóttir - Toppur frá Litlu-Reykjum - 5,80
Hér eru yngsti og elsti þátttakendur mótsins,
Magnús Ólafsson, 77 ára og Camilla Líndal 3 ára.
Skrifað af Selma 15.02.2023 10:11Opinn þrígangur Neista
Þríganginum verður haldinn laugardaginn 18. febrúar klukkan 14:00. Riðnir verða 2 hringir (4 ferðir) og sýna keppendur 3 gangtegundir að eigin vali og hljóta einkunn fyrir hverja gangtegund. Flokkarnir verða: Opinn flokkur (fullorðnir) - einn inná í einu. Unglinga- og Ungmennaflokkur (14-21 árs) . Barnaflokkur (10-13 ára) - tvígangur - farnir verða 2 hringir, 2 inná í einu og riðið verður eftir þul. Pollaflokkur (< 10 ára) - Pollar ráða hvort þau vilja láta teyma undir sér eða ekki og verður hópnum skipt upp í tvennt eftir því - allir inná i einu. - ATH leyfilegt er fyrir börn sem treysta sér að taka þátt í tvíganginum að gera það. Skráning er út miðvikudaginn 15. febrúar á [email protected] Skráningargjald er 3000 krónur fyrir fullorðna, 2000 krónur fyrir unglinga og 1500 krónur fyrir börn.
Hlökkum til að sjá ykkur. Mótanefnd Skrifað af Selma 14.02.2023 23:25Aðalfundur Hestamannafélagsins NeistaBoðað er til aðalfundar Hestamannafélagsins Neista þann 21.2.2023. Fundurinn verður haldinn í reiðhöllinni Arnargerði og hefst kl. 20:00.
Dagskrá fundarins:
Undir 5. lið mun stjórn bera upp tillögur til breytinga á lögum félagsins.
Breytingartillögurnar má nálgast hjá stjórn, eða útprentað á kaffistofu reiðhallarinnar. Hvetjum alla félagsmenn til að mæta.
F.h. stjórnar Hestamannafélagsins Neista,
Hafrún Ýr Halldórsdóttir,
formaður
Skrifað af Selma 22.01.2023 20:54VetrarstarfiðÆskulýðsstarf Neista fór af stað í gær með opnu húsi í reiðhöll og hesthúsi. Félsgshesthúsið er fullt og þar eru eingöngu hestar fyrir börn og unglinga á námskeiðum.
Skrifað af Selma Flettingar í dag: 702 Gestir í dag: 44 Flettingar í gær: 325 Gestir í gær: 18 Samtals flettingar: 925935 Samtals gestir: 88415 Tölur uppfærðar: 31.3.2025 16:13:44 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is