18.06.2012 13:16Nýjar myndirMyndir eru komnar undir mynda-albúm af félagsmótinu 16. júní 2012. Skrifað af Hjálmar Kárdal 16.06.2012 22:2517. júní hátíðarhöld á Blönduósi![]() ![]() Kl. 8:00 Fánar dregnir að hún. Kl. 10:00-11:00 Börnum boðið á hestbak í Reiðhöllinni Arnargerði. Kl. 11:00 Guðsþjónusta í Blönduósskirkju. Kl. 11:00-12:00 Dorgveiðikeppni á bryggjunni (þátttakendur eru á eigin ábyrgð og eiga að vera í björgunarvestum). Kl. 12:30-13:30 Andlitsmálun fyrir utan SAH afurðir helíumblöðrur og annað sem tilheyrir verður til sölu (ekki tekið við greiðslukortum). Kl. 13:30 Skrúðganga frá SAH afurðum á Bæjartorg. Á Bæjartorgi verður hátíðardagskrá; Hugvekja Fjallkonan Hátíðarræða Tónlist Leikir fyrir börn á þríhyrnutúni Kl. 14:30-16:00 Kaffisala í Félagsheimilinu, vöfflukaffi (ekki tekið við greiðslukortum). Útsýnisflug frá Blönduósflugvelli, að hætti Magnúsar Ólafssonar, ef veður leyfir. Laugardaginn 16. júní frá kl. 10:00 og eitthvað fram á daginn. Sunnudaginn 17. júní frá kl. 16.00. Gjald kr. 1.500 fyrir stutt flug, en 2.000 kr. fyrir lengra flug (ekki tekið við greiðslukortum). Skráning í flugskýlinu eða í síma 898 5695. Sundlaugin verður opin frá 10:00 - 16:00 Umsjón með hátíðarhöldunum hefur Hestamannafélagið Neisti. Skrifað af Áslaug Inga 15.06.2012 15:54FélagsmótDagskrá félagsmóts neista Mótið hefst klukkan 10:00 Ungmennaflokkur B-flokkur barnaflokkur unglingaflokkur pollar hádegishlé í ca klukkutíma Tölt A flokkur Skeið Vegna tæknilegra örðuleika verður ráslistinn hendur upp í reiðhöllinni í fyrramálið Skrifað af Óli 13.06.2012 09:11Skeið og tölt opiðMótanefnd vill koma því á framfæri að bæði skeið og tölt er opið fyrir alla sem vilja keppa í því á mótinu á laugardaginn. Skráningar skulu berast á netfangið [email protected] fyrir kl. 21 í kvöld. Skrifað af selma 11.06.2012 23:14Völlurinn lokaður .....Ekki verður hægt að æfa á vellinum þriðjudag eftir kl. 18.00 og föstudag eftir kl. 19.00 þar sem verið er að gera hann kláran fyrir félagsmótið sem verður á laugardag. Mótanefnd Skrifað af selma 10.06.2012 23:12Félagsmót Neista og úrtaka fyrir LandsmótFélagsmót Neista og úrtaka fyrir Landsmót verður haldið á Blönduósvelli laugardaginn 16. júní kl. 10.00. Neisti á rétt á að senda 2 hesta til keppni á Landsmót í hverjum flokki (ekki pollaflokkur). Einkunnir úr forkeppni gilda til þátttöku á Landsmóti. Keppt verður í tölti opinn flokkur, A og B flokki gæðinga, flokki polla, barna, unglinga og ungmenna. Einnig verður keppt í 100 m skeiði. Ef ekki er næg þátttaka í einhverri keppnisgrein áskilur mótanefnd sér rétt til að fella niður þá grein. Skráningar á mótið skulu berast á netfangið [email protected] fyrir kl. 21.00 þriðjudagskvöldið 12. júní. Skráningargjöld verða 2.000 kr fyrir fyrstu skráningu, 1.500 fyrir aðra skráningu og 1.000 kr eftir það. Börn og unglingar borga 800 kr. Við skráningu þarf að koma fram IS-númer hests, kennitala knapa og keppnisgrein. Skráningargjald leggist inn á reikningsnúmer 0307-26-055624, kt. 480269-7139 sama dag og skráð er og þar þarf að koma fram fyrir hvaða hesta er verið að borga og senda kvittun á áðurnefnt netfang. Ath. Skrifað af selma 09.06.2012 23:52Frábær kvennareiðÞær voru hressar konurnar 40 sem mættu við Reiðhöllina um miðjan dag í dag til að gera sér glaðan dag á hestbaki. Þær Gulla, Eva, Edda og Guðrún áttu veg og vanda að skiplagningu ferðarinnar og fórst þeim það vel úr hendi. Gulla hjá Hestaleigunni Galsa var búin að taka reiðleiðina út og var hún fararstjóri í ferðinni. ![]() ![]() Eva og Gulla Farin var stór og góður hringur með mörgum stoppum ![]() ![]() ![]() og endað í Reiðhöllinni í grilli sem strákarnir Guðmundur, Guðmundur og Jón Ragnar sáu um. ![]() ![]() Frábær dagur; frábærar konur, frábært veður, frábær reiðleið, frábær matur og frábærir grillarar. Skrifað af selma 06.06.2012 18:02Uppskeruhátíð nr. 2Það er tími uppskeruhátíða þessa dagana og sl. mánudag hittust þeir sem voru í knapamerkjum fullorðinna í vetur og fóru saman í góðan útreiðatúr í tilefni að flestir voru búnir í prófum og stóðust þau með prýði. Farinn var góður útreiðatúr en eins og gengur gátu ekki allir mætt...... ![]() grillað var og skírteini afhent...... ![]() Hér eru þau Helga Thoroddsen, prófdómari, Sigríður B. Aadnegard, Guðmundur Sigfússon og Hafdís Arnardóttir, kennari. Þau Sigríður og Guðmundur stóðu sig frábærlega í knapamerki 3 og fengu 9,0 í verklegu prófi. ![]() Magnús Ólafsson, Selma Svavarsdóttir og Hafdís Arnardóttir. Allir aðrir stóðu sig frábærlega líka og hér tekur aldursforseti knapamerkjanna við sínu skírteini en Magnús Ólafsson lauk einnig prófi í knapamerki 3. Til hamingju öll með prófin ykkar. Skrifað af selma 03.06.2012 22:32UppskeruhátíðÞað var aldeilis flott veður sem æskulýðurinn og áhangendur þeirra fengu í dag þegar þau héldu uppskeruhátíðina sína. Það var góður hópur sem mætti við Reiðhöllina kl. 14. með hesta sína og riðu upp í Kúagirðingu undir fararstjórn Jóns Ragnars Gíslasonar hjá Hestaleigunni Galsa. Frábær ferð og gaman að sjá hve dugleg þau eru og vel ríðandi. ![]() Eftir reiðtúrinn var grillað og skírteini afhent og öll fengu þau gjöf fyrir hve frábærlega þau eru búin að standa sig í vetur. Flottir krakkar, takk takk fyrir veturinn og sjáumst vonandi aftur næsta vetur. ![]() Eins og gengur gátu ekki allir krakkarnir mætt í dag en á námskeiðum hjá Neista í vetur voru 38 krakkar, 8 af þeim voru í knapamerkjum og luku þau prófum úr knapamerkjum 1, 2 og 3. Æskulýðsnefnd Skrifað af selma 03.06.2012 21:43Blær frá MiðsitjuBlær tekur á móti hryssum í Gröf í Víðidal eftir landsmót. Blær er með 8,65 fyrir hæfileika og 8,48 í aðaleinkunn. Faðir hans er Arður frá Brautarholti og móðir hans er Björk frá Hólum. Verð pr folatoll er 90.000 með girðingargjaldi, hagagöngu og virðisaukaskatti. Upplýsingar hjá Tryggva í síma 898-1057. Skrifað af selma 31.05.2012 20:40Frá ÆskulýðsnefndUppskeruhátíð hjá krökkunum sem voru á námskeiðum hjá Neista í vetur verður sunnudaginn 3. júní. Mæting við Reiðhöllina Arnargerði kl. 14.00. Farið verður í reiðtúr og grillað á eftir. ![]() Æskulýðsnefnd Skrifað af selma 28.05.2012 09:58Kvennareið 2012![]() Skrifað af selma 21.05.2012 07:31Landsmót hestamanna 2012 - vaktir hestamannafélaganna
Vaktir hestamannafélaganna á Landsmóti 2012 eru með sama móti og áður. Helstu störf á þeim vöktum eru eftirfarandi: Hliðvarsla Starfsmenn vaktana skulu hafa náð 18.ára aldri. Starfsmenn hafa aðgang að mótinu á meðan á vöktum þeirra stendur en fá ekki almennan aðgöngumiða. Einnig má nefna að starfsmönnum er skaffaður matur á meðan á vakt stendur. Þeir sem hafa áhuga á því að starfa á þessum vöktum eru beðnir um að hafa samband í gegnum netfangið [email protected] við fyrsta tækifæri og gildir þar reglan að fyrstur kemur fyrstur fær. Mikilvægt er að senda Nafn, kennitölu, nafn hestamannafélags og símanúmer. Mér til aðstoðar verður Ragna Rós Bjarkadóttir og munum við hafa samband í framhaldinu til þess að finna útúr því hvað hentar hverjum og hvernær. Þessar vaktir
tókust mjög vel á síðasta móti og vonumst við til að sunnlendingar standi sig
jafn vel og norðlendingar gerðu á síðasta móti. Koma svo! Hugrún Ósk
Ólafsdóttir Skrifað af selma 17.05.2012 12:40Hesteigendafélagið - fundurFundur verður haldinn í Reiðhöllinni Arnargerði á vegum Hesteigendafélags Blönduóss, fimmtudaginn 17. maí kl. 20.30. Fundarefni, kynnt verður landmat Blönduóssbæjar á beitarhólfum. Fundarmenn hafi með sér landnúmer sín. Stjórnin Skrifað af selma Flettingar í dag: 762 Gestir í dag: 51 Flettingar í gær: 325 Gestir í gær: 18 Samtals flettingar: 925995 Samtals gestir: 88422 Tölur uppfærðar: 31.3.2025 16:35:16 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is