24.02.2011 13:30Aðalfundur hestmannafélagins Neista
verður fimmtudagskvöldið 24.
febrúar kl. 20:30 Dagskrá: 1.
Venjuleg
aðalfundarstörf Stjórn hestamannafélagsins Neista Skrifað af selma 22.02.2011 17:45"Strákar" og "stelpur" í prófum í knapamerki 2Fyrstu knapamerkjapróf þessa árs voru í Reiðhöllinni í gær þegar Helga Thoroddsen prófdómari mætti til að taka út 14 nemendur. Í prófið mættu 6 karlar og 8 konur. Nemendur voru, eins gengur og gerist, misstressaðir þegar þeir mættu í próf en kampakátir að því loknu. Til hamingju með það. Hér eru "strákarnir" með Sibbu kennara og Helgu prófdómara...... og "stelpurnar" með Sibbu og Helgu. Skrifað af selma 22.02.2011 12:15Skráning á Ís-landsmót á Svínavatni 5. mars Skráningar berist á netfangið
[email protected] í síðasta lagi þriðjudaginn 1. mars. Ekki verður
tekið við skráningum eftir þann tíma. * Eftirtalið þarf að koma fram: Keppnisgrein, kennitala knapa, og IS númer hests. Keppnisgreinar eru A-flokkur, B-flokkur og
tölt. Skráningargjald eru 3.000. kr. á skráningu. Greiðist inn á reikning 0307 - 13 - 110496, kt. 480269-7139 í síðasta lagi þriðjudaginn 1.mars annars verður viðkomandi ekki settur á ráslista. Sendið kvittun á [email protected] þar sem fram þarf að koma fyrir hvaða knapa og hest er verið að borga. Skrifað af selma 22.02.2011 09:10Ístölt á HnjúkatjörnOpið töltmót á Hnjúkatjörn sunnudaginn 27. febrúar kl. 13.00 ![]() ![]() Skráning er á netfang Neista [email protected] fyrir miðnætti fimmtudag 24. febrúar. Keppt verður í opnum flokki, áhugamannaflokki, unglinaflokki og barnaflokki. Fram þarf að koma; knapi og hestur. Skráningargjald er 1.500 kr fyrir fullorðna en 500 fyrir börn og unglinga. Skráningargjöld þarf að greiða áður en mót hefst inná reikning Neista 0307-26-055624 kt. 480269-7139 og senda kvittun á netfang Neista [email protected] Skrifað af selma 22.02.2011 09:08Lokaskráningardagur í dag í smalann/skeiðið í Sparisjóðs-liðakeppninniSMALI/SKEIÐ er næsta mót liðakeppninnar og mun Neisti sjá um mótið og það verður í Reiðhöllinni Arnargerði laugardaginn 26. febrúar nk. og hefst kl. 16.00 Skráning er á netfang Neista [email protected] fyrir miðnætti þriðjudagskvöld 22. febrúar. Fram þarf að koma nafn knapa, flokkur, hestur, litur, aldur og hvaða liði keppandinn er. Skráningargjöld eru 1.500 kr í smala fyrir fullorðna en 500 fyrir unglinga. Skráningargjöld í skeið eru 1.000 kr og þarf að greiða þau áður en mót hefst inná reikning Neista 0307-26-055624 kt. 480269-7139 og senda kvittun á netfang Neista [email protected] Keppt verður í unglingaflokki (fædd 1994 og seinna), 3. flokki, 2. flokki og 1. flokki. Í 1. og 2. flokki fá 9 hestar að fara brautina aftur en 5 hestar fara brautina aftur í úrslitum í 3. flokki og unglingaflokki. Dagskráin er: Smali: Unglingaflokkur 3. flokkur 2. flokkur 1. flokkur Úrslit riðin svo í sömu röð Skeið Knapar verða að vera í sama flokki og í sama liði allt tímabilið. Í skeiði má hver knapi keppa á eins mörgum hrossum og hann vill en getur aðeins fengið stig fyrir einn hest eins og í öðrum greinum. Þessi keppni gefur einungis stig í liðakeppninni en ekki í einstaklingskeppninni. Aðeins keppt í einum flokki og stig eftirfarandi: 1.sæti - 10 stig 2.sæti - 8 stig 3.sæti - 7 stig 4.sæti - 6 stig 5.sæti - 5 stig 6.sæti - 4 stig 7.sæti - 3 stig 8.sæti - 2 stig 9.sæti - 1 stig Reglur smalans: Smalinn dregur nafn sitt af einu mikilvægasta hlutverki íslenska hestsins frá örófi alda. Eiginleikar sem prýða góðan smala og smalahest eru nauðsynlegir ef árangur á að nást, þetta eru þættir eins og hraði, kjarkur, fimi og snerpa. Riðin er braut sem mörkuð er keilum sem ná upp á síður hests. Keilurnar skulu vera þannig útbúnar að þær falli við litla snertingu. Árangurinn ræðst af brautartíma og felldum keilum. Reiknireglur eru þær sömu og í tímabraut torfærunnar. Smalinn er hrein grein í þeirri merkingu að árangurinn er mælanlegur án frávika, þ.e. hann ræðst eingöngu af tíma og felldum keilum en ekki mati dómara. Dómarar eru engu að síður til staðar og meta hvort knapinn fari gegnum öll hlið, telja felldar keilur og hafa eftirlit með reiðmennsku knapa líkt og í öðrum keppnisgreinum. Stigin telja þannig að knapar raðast í sæti eftir besta tímanum, sá sem er fyrstur fær 300 stig, sá næsti 280, 270 o.s.frv. Við hverja fellda keilu dragast frá 14 stig. Fyrir sleppt hlið eru 28 refsistig. Yfir brúnna er ekki leyft að fara á stökki þ.e.a.s allur annar gangur er í lagi. Ef brúnni er sleppt þá er það 4x28 refsistig Gult spjald= gróf reiðmennska 30 refsistig Rautt spjald= MJÖG gróf reiðmennska ÚR LEIK! Aðgangseyrir er 1.000 kr og frítt inn fyrir 12 ára og yngri. Brautin er eins og í fyrra: Skrifað af selma 21.02.2011 09:17Grunnskólamót - úrslitFrábærlega vel heppnað mót í Smala Grunnskólamótsins var í gær. Sráning var mjög mikil og veðrið dásamlegt svo allt var þetta mjög gaman. Þökkum við öllum sem að þessu móti kom á einn eða annan hátt kærlega fyrir. Í ár var þrautabraut fyrir 1.-3. bekk bætt við keppnina og þar tóku 12 börn þátt. Þau stóðu sig öll rosalega vel og var gaman að sjá hvað þau fóru léttilega í gegnum brautina. Dæmd var áseta og stjórnun og fengu 5 hæstu sæti en öll fengu þau viðukenningu fyrir þátttökuna. ![]() Þátttakendur í þrautabraut
![]()
![]()
![]()
Stigin standa svo: 29 Húnavallaskóli 25 Grunnskóli Húnaþings vestra 24 Varmahlíðarskóli 15 Árskóli 14 Grunnskóli austan vatna 11 Blönduskóli Myndir eru komnar í albúm. Hjálmar Ólafsson sendi okkur myndir og þökkum við honum kærlega fyrir þær. Skrifað af selma 18.02.2011 08:24Grunnskólamótið, smali/skeið - ráslistarMinnum á að skráningargjöld eru greidd á staðnum, gott væri ef það væri í peningum, ekki kort.
Skrifað af selma 17.02.2011 10:57Úrslit úr fjórgang í KS-deildinniSpennandi og fjörug keppni í fjórgang fór fram í gærkvöld í KS-deildinni. Nýliðin Eyjólfur Þorsteinsson á Klerki frá Bjarnanesi fór með sigur af hólmi. Áhorfendur voru margir og mikil stemming var á pöllunum.
B-úrslit 5. Tryggvi 7,03 6. Mette 6,53 7. Hörður 6,50 8. Sölvi 6,50 9. Þórarinn 6,33 Úrslit í forkeppni Knapi Hestur Eink Eyjólfur Þorsteinsson Klerkur frá Bjarnanesi
7,23 Skrifað af selma 16.02.2011 10:00Smalabrautin verður uppiÞað eru smalamót framundan næstu tvær helgar. Smalabrautin verður sett upp miðvikudagskvöld 16. febrúar kl 20:00 fyrir grunnskólamótið sem er 20. febrúar og aftur þriðjudagskvöld 22. feb. kl. 19:30 fyrir Sparisjóðs-liðakeppnina sem er 26. febrúar. Skrifað af selma 16.02.2011 09:36Grunnskólamót - lokaskráningardagur í kvöldMinnum á að skráningarfrestur rennur út á miðnætti í kvöld 16. feb fyrir Grunnskólamót hestamannafélaga á Norðurlandi vestra sem verður í Reiðhöllinni Arnargerði á Blönduósi sunnudaginn 20. febrúar kl: 13:00. Skráningar sendist á netfang Neista: [email protected] Fram þarf að koma: nafn, bekkur og skóli knapa, nafns hests, aldur, litur og keppnisgrein: 1. - 3. bekkur þrautabraut, 4 - 10. bekkur smali, 8. - 10. bekkur skeið. Skráningargjald er 1000 kr. fyrir fyrstu skráningu, 500 kr fyrir næstu skráningar og skal greiða á staðnum áður en mót hefst. Skrifað af selma 16.02.2011 09:31Sparisjóðs-liðakeppnin Smali/skeiðSMALI/SKEIÐ er næsta mót liðakeppninnar og mun Neisti sjá um mótið og það verður í Reiðhöllinni Arnargerði 26. febrúar nk. og hefst kl. 16.00 Skráning er á netfang Neista [email protected] fyrir miðnætti þriðjudagskvöld 22. febrúar. Fram þarf að koma nafn knapa, flokkur, hestur, litur, aldur og hvaða liði keppandinn er. Skráningargjöld eru 1.500 kr í smala fyrir fullorðna en 500 fyrir unglinga. SKráningargjöld í skeið eru 1.000 kr og þarf að gr...eiða þau áður en mót hefst inná reikning Neista 0307-26-055624 kt. 480269-7139 og senda kvittun á netfang Neista [email protected] Keppt verður í unglingaflokki (fædd 1994 og seinna), 3. flokki, 2. flokki og 1. flokki. Í 1. og 2. flokki fá 9 hestar að fara brautina aftur en 5 hestar fara brautina aftur í úrslitum í 3. flokki og unglingaflokki. Knapar verða að vera í sama flokki og í sama liði allt tímabilið. Í skeiði má hver knapi keppa á eins mörgum hrossum og hann vill en getur aðeins fengið stig fyrir einn hest eins og í öðrum greinum. Þessi keppni gefur einungis stig í liðakeppninni en ekki í einstaklingskeppninni. Aðeins keppt í einum flokki og stig eftirfarandi: 1.sæti - 10 stig 2.sæti - 8 stig 3.sæti - 7 stig 4.sæti - 6 stig 5.sæti - 5 stig 6.sæti - 4 stig 7.sæti - 3 stig 8.sæti - 2 stig 9.sæti - 1 stig Reglur smalans: Smalinn dregur nafn sitt af einu mikilvægasta hlutverki íslenska hestsins frá örófi alda. Eiginleikar sem prýða góðan smala og smalahest eru nauðsynlegir ef árangur á að nást, þetta eru þættir eins og hraði, kjarkur, fimi og snerpa. Riðin er braut sem mörkuð er keilum sem ná upp á síður hests. Keilurnar skulu vera þannig útbúnar að þær falli við litla snertingu. Árangurinn ræðst af brautartíma og felldum keilum. Reiknireglur eru þær sömu og í tímabraut torfærunnar. Smalinn er hrein grein í þeirri merkingu að árangurinn er mælanlegur án frávika, þ.e. hann ræðst eingöngu af tíma og felldum keilum en ekki mati dómara. Dómarar eru engu að síður til staðar og meta hvort knapinn fari gegnum öll hlið, telja felldar keilur og hafa eftirlit með reiðmennsku knapa líkt og í öðrum keppnisgreinum. Stigin telja þannig að knapar raðast í sæti eftir besta tímanum, sá sem er fyrstur fær 300 stig, sá næsti 280, 270 o.s.frv. Við hverja fellda keilu dragast frá 14 stig. Fyrir sleppt hlið eru 28 refsistig. Yfir brúnna er ekki leyft að fara á stökki þ.e.a.s allur annar gangur er í lagi. Ef brúnni er sleppt þá er það 4x28 refsistig Gult spjald= gróf reiðmennska 30 refsistig Rautt spjald= MJÖG gróf reiðmennska ÚR LEIK! Aðgangseyrir er 1.000 kr og frítt inn fyrir 12 ára og yngri. Brautin er eins og í fyrra: Skrifað af selma 13.02.2011 21:45Grunnskólamótið á Blönduósi
verður í Reiðhöllinni Arnargerði á Blönduósi Skráningar þurfa að hafa borist fyrir Fram þarf að koma: nafn, bekkur og skóli knapa nafns hests, aldur, litur og keppnisgrein. Keppnisgreinar eru:
og skal greiða á staðnum áður en mót hefst.
smalabraut 4. - 10. bekkur þrautabraut 1. - 3. bekkur Reglur keppninnar eru: Grunnskólamót Mótið er hugsað til að efla áhuga á hestaíþróttinni og gefa sem flestum kost á því að taka þátt. Keppt er eftir venjulegum hestaíþróttareglum og dæmt í samræmi við þær, keppni skal stjórnað af þul. Keppendur skulu hneigja sig í upphafi og lok keppni og hlíta fyrirmælum þular í hvívetna. Allir grunnskólanemar á Norðurlandi vestra eiga þátttökurétt. 1. Mótið heitir
Grunnskólamót hestamannafélaga á Norðurlandi vestra. Ø Fegurðarreið 1. - 3. bekkur. Þar eru riðnir 3 hringir og látið fara fallega dæmt skal eftir stjórnun og þokka. 2 - 3 keppendur inná í einu. Ø Tvígangur 4. - 7. bekkur. Riðið brokk eða tölt tveir hringir og fet ½ hringur. Knapi má sýna tölt og brokk og þá er betri gangtegundin dæmd. Áseta og stjórnun dæmd. Ø Fjórgangur 8. - 10. bekkur. Venjuleg íþróttakeppni, riðnir fjórir og hálfur hringur. Einn hringur hægt tölt, einn hringur yfirferðar tölt, ½ hringur fet , einn hringur brokk og einn hringur stökk. Ø Þrautabraut 1. - 3. bekkur. Áseta, stjórnun og færni dæmd. Engin tímataka. Hringurinn 3 metrar í ummál Ø Smali 4. - 7. og 8 .- 10. bekkur. Smalabrautin skal vera skýr og hættulaus og forðast skal allan óþarfa glannaskap. Keppt skal eftir tíma og skal bæta 4 sekúndum við tíma fyrir hverja keilu sem felld er eða sleppt. Ef sleppt er hliði bætast 2x4 sekúndur við. Gult spjald er jafnt og 10 sekúndur og má sýna ef knapi sýnir grófa reiðmennsku og jafnvel víkja keppanda úr sýningu. Ø Tölt 4. - 7. bekkur. Tveir inná í einu, riðið hægt tölt, einn hringur, snúið við og riðið tölt með hraðabreytingum á langhliðum einn hringur og fegurðarreið einn hringur, samtals þrír hringir . Ø Tölt 8. - 10. bekkur. Tveir inná í einu, riðið hægt tölt, einn hringur, snúið við og riðið tölt með hraðabreytingum á langhliðum einn hringur og greitt tölt einn hringur, samtals þrír hringir . Ø Skeið 8. - 10. bekkur mega keppa í skeiði og skal tímataka vera samkvæmt venju á hverjum stað. Fara skal 2 spretti og betri tíminn gildir. v Gult spjald má sýna ef knapi sýnir grófa reiðmennsku og jafnvel víkja keppanda úr sýningu. 3. Keppandi má koma með hest hvaðan sem er, hesturinn(eigandinn)/hesteigandi þarf ekki að vera í hestamannafélagi viðkomandi skólahverfis. 4. Börn í 1. - 3. bekk mega ekki keppa á graðhesti. 5. Foreldrar mega ekki vera inn á keppnisvellinum meðan á keppni stendur. 6. Í tölti og tví- og fjórgangi mega keppendur keppa á fleiri en einum hesti, en í úrslitum verður einungis einn hestur frá hverjum knapa. 7. Ef tveir eru jafnir í 5. og 6. sæti skulu báðir mæta í úrslit og verðlauna bæði sætin sem 5. sæti. 8. Járningar, 10 mm skeifur og 250 gr. hlífar eða 8 mm og botnar. 9. Í smala er ekki leyft að ríða við stangir, annars gilda almennar íþróttakeppnisreglur. Stig Stigatafla fyrir alla greinar nema skeið, Ef allir keppendur í úrslitum eru frá sama skóla fær skólinn einungis stig fyrir efsta sætið, síðan næsti skóli inn í úrslit og svo framvegis. 1. sæti gefur
10 stig til viðkomandi skóla Stigatafla fyrir skeið, öll stigin geta farið á sama skóla, þetta er aukabúgrein. 1. sæti gefur 5 stig Skrifað af selma 13.02.2011 19:41Æskan = gaman samanÞað var aldeilis gaman hjá krökkunum í dag þegar þau komu saman og kepptu í tölti í Reiðhöllinni. Þau voru ekki há í loftinu þau 2 yngstu í pollaflokknum en það er langbest að byrja bara sem fyrst að æfa sig ![]() Hér eru þau sem tóku þátt í pollaflokknum en þau fengu öll að sjálfsögðu verðlaun fyrir hvað þau eru dugleg ![]() ![]() Hlíðar, Einar, Ásdís, Sunna Margrét, Bjartmar Inga Rós með aðstoðmönnum sínum. Það var líka gaman hjá þeim sem tóku þátt í barnaflokknum og stóðu þau sig öll mjög vel. ![]() Úrslit í barnaflokki: 1. Ásdís Brynja Jónsdóttir og Ör 2. Lilja María Suska og Þruma 3. Sigurður Bjarni Aadnegard og Þokki 4. Sólrún Tinna Grímsdóttir og Perla 5. Sigríður Þorkelsdóttir og Hnakkur 6. Lara Margrét Jónsdóttir og Frú Í unglingaflokki gekk allt glimrandi vel líka enda nokkuð vanir unglingar þar á ferð. ![]() Úrslit urðu þessi í unglingaflokki 1. Sigurgeir Njáll Bergþórsson og Hátíð 2. Haukur Marian Suska og Tinna 3. Hanna Ægisdóttir og Skeifa 4. Stefán Logi Grímsson og Gyðja 5. Hákon Ari Grímsson og Hnakkur 6. Friðrún Fanný Guðmundsdóttir og Fantur Eftir keppnina bauð æskulýðsnefndin uppá kökur og kaffi og það var mjög gott að setjast niður með kaffibolla og djús. Að sjálfsögðu voru þeir báðir mættir Magnús Ólafsson eldri og Magnús Ólafsson yngri. Flottir kallarnir. ![]() Krakkarnir höfðu samt ekki fengið nóg og fóru í fótbolta niður í reiðhöll ![]() Mjög vel heppnaður dagur og skemmtilegur ![]() Myndir komnar í myndaalbúm. Skrifað af selma 12.02.2011 09:34Sparisjóðs-liðakeppnin fjórgangur ÚRSLITÞá er fyrsta móti í Sparisjóðs-liðakeppninni lokið.
Lið 3 (Víðidalur/Fitjárdalur) sigruðu kvöldið með yfirburðum og eru
komin með 57 stig. Í öðru sæti er lið 2
(Vatnsnes/Línakradalur/Hrútafjörður) með 29 stig, lið 1
(Hvammstangi/Miðfjörður/Hrútafjörður) kemur næst með 21 stig og lið 4
(Austur-Húnavatnssýsla) með 14 stig. Fjórgangur 1. flokkur fork/úrsl A - úrslit ![]() 1. Ingólfur Pálmason / Höfði frá Sauðárkróki 6,43 / 7,13 2. Elvar Einarsson / Ópera frá Brautarholti 6,70 / 7,10 3. Ísólfur Líndal Þórisson / Freymóður frá Feti 6,43 / 7,00 4. Reynir Aðalsteinsson / Sikill frá Sigmundarstöðum 6,57 / 6,83 5. James Bóas Faulkner / Brimar frá Margrétarhofi 6,40 / 6,80 6. Elvar Logi Friðriksson / Stuðull frá Grafarkoti 6,43 / 6,70 7. Tryggvi Björnsson / Blær frá Hesti 6,43 / 6,40 B - úrslit ![]() 7. James Bóas Faulkner / Brimar frá Margrétarhofi 6,40 / 6,63 (fór upp í A-úrslit) 8. Jóhann Magnússon / Þór frá Saurbæ 6,23 / 6,53 9. Ólafur Magnússon / Heilladís frá Sveinsstöðum 6,13 / 6,10 Fjórgangur 2. flokkur fork/úrsl A - úrslit ![]() 1. Sigurbjörg Sigurbjörnsdóttir / Kraftur frá Keldudal 5,80 / 6,83 2. Þóranna Másdóttir / Gátt frá Dalbæ 6,37 / 6,60 3. Vigdís Gunnarsdóttir / Freyðir frá Leysingjastöðum II 6,30 / 6,57 4. Pálmi Geir Ríkharðsson / Greipur frá Syðri - Völlum 6,07 / 6,53 5. Sveinn Brynjar Friðriksson / Synd frá Varmalæk 6,00 / 6,30 B - úrslit ![]() 5. Sigurbjörg Sigurbjörnsdóttir / Kraftur frá Keldudal 5,80 / 6,37 6. Herdís Rútsdóttir / Barði frá Brekkum 5,97 / 6,33 7. Paula Tiihonen / Sif frá Söguey 5,60 / 6,10 8. Kolbrún Stella Indriðadóttir / Vottur frá Grafarkoti 5,60 / 5,97 9. Hallfríður Sigurbjörg Óladóttir / Kolgerður frá Vestri-Leirárgörðum 5,80 / 5,93 10. Halldór Pálsson / Rispa frá Ragnheiðarstöðum 5,80 / 5,90 3. flokkur fork/úrsl ![]() 1. Selma H Svavarsdóttir / Hátíð frá Blönduósi 5,67 / 6,17 2. Sigríður Alda Björnsdóttir / Setning frá Breiðabólsstað 5,23 / 5,90 3. Ragnar Smári Helgason / Loki frá Grafarkoti 5,10 / 5,80 4. Jón Ragnar Gíslason / Víma frá Garðakoti 5,10 / 5,73 5. Sigurbjörg Þ Jónsdóttir / Fróði frá Litladal 5,00 / 5,03 Unglingaflokkur fork/úrsl ![]() 1. Jóhannes Geir Gunnarsson / Þróttur frá Húsavík 5,77 / 6,33 2. Ásdís Ósk Elvarsdóttir / Taktur frá Hestasýn 5,93 / 6,23 3. Fríða Marý Halldórsdóttir / Sómi frá Böðvarshólum 5,77 / 5,90 4. Eydís Anna Kristófersdóttir / Renna frá Þóroddsstöðum 5,27 / 5,80 5. Viktoría Eik Elvarsdóttir / Höfðingi frá Dalsgarði 5,20 / 5,20 Mótanefnd þakkar öllu því frábæra fólki sem kom að mótinu og lið 1 stóð sig ofurvel í að taka til eftir mótið. Myndir frá mótinu komnar inn í myndaalbúmið hjá Þyt. Skrifað af selma 10.02.2011 14:47Klapplið óskastOkkur vantar klapplið ![]() ![]() ![]() ![]() með okkur í liðakeppnina á Hvammstanga á morgun, föstudag 11. feb til að hvetja okkar fólk. Allir að koma ![]() Lið 4 Skrifað af selma Flettingar í dag: 2176 Gestir í dag: 40 Flettingar í gær: 1246 Gestir í gær: 60 Samtals flettingar: 1098718 Samtals gestir: 93449 Tölur uppfærðar: 16.6.2025 15:45:29 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is