Færslur: 2007 Desember

22.12.2007 02:27

Gleðileg jól og farsælt komandi ár

Hestmannafélagið Neisti óskar félagsmönnum sem og öðrum landsmönnum gleðilegra jóla með von um farsælt komandi ár !

17.12.2007 10:13

Breytingarnar í reiðhöllinni

Eins og fram hefur komið á vef þessum hafa staðið yfir breytingar á reiðhöllinni.  Búið er að skipta um undirlag á vellinum, setja upp nýjan vegg við áhorfendastæðið og setja saman nýja og fleiri bekki.  Mikil og góð breyting til batnaðar.

 

17.12.2007 10:09

Ákvörðun um Landsmótsstað árið 2010



Stjórn LH hafa borist umsóknir um landsmótshald frá fjórum aðilum um að halda Landsmót hestamanna árið 2010.

Umsóknir  bárust frá eftirtöldum svæðum:

Vindheimamelum,Skagafirði    
Melgerðismelum, Eyjafirði
Gaddstaðaflötum, Hellu
Víðidal, Reykjavík

Stjórn LH mun skipa nefnd á sínum fyrsta stjórnarfundi eftir áramót til þess að sjá um samningaviðræður vegna Landsmótsstaðar fyrir árið 2010.  Nefndinni verður sett tímamörk um að ná samningum við Landsmótshaldara eigi síðar en 1. júni 2008. Ákveðið var að hefja viðræður um Landsmóthald 2010 við rekstraraðila Vindheimamela og skal þeim viðræðum ljúka eigi síðar en 1. mars 2008.

Þetta kemur fram á heimasíðu LH: www.lhhestar.is

03.12.2007 20:45

Vetrarstarf Neista hefst með opnum félagsfundi 4. desember

 

Vetrarstarf Neista hefst með opnum félagsfundi 4. desember

Segja má að veturinn hjá hestamannafélaginu hafi byrjað með pompi og prakt s.l. laugardag þ. 1. desember þegar árshátíð búgreinafélaga og Neista var haldin í félagsheimilinu á Blönduósi. Knapa árssins, Ólafi Magnússyni frá Sveinsstöðum var veitt viðurkenningu fyrir frábæran árangur í keppni á árinu og Höskuldur B. Erlingsson tók á móti viðurkenningu fyrir gerð heimasiðu félagsins, www.neisti.net, og umsjón með henni.

Margt er á döfinni hjá Neista, námskeið, sýningar, unglingastarf og fleira og verður haldinn stór almennur félagsfundur þriðjudaginn 4. desember kl. 20.30 í reiðhöllinni á Blönduósi.

Þar verður kynnt dagskrá vetrar, nefndarmenn verða á staðnum til að svara spurningum og mun vonandi spinnast lífleg umræða um málefni hestamennskunnar yfir kaffibolla og meðlæti.

02.12.2007 21:24

Uppskeruhátið Neista



Uppskeruhátíð Neista var haldin í gærkvöldi ásamt búgreinafélögunum í A-Hún.  Fréttir að hátíðinni koma fljótlega en meðfylgjandi er mynd af Ólafi Magnússyni Sveinsstöðum sem var valinn knapi ársins hjá Neista, þar sem hann veitir viðtöku viðurkenningu fyrir árangur sinn.  Myndin er fengin eins og áður hefur gerst hjá Jóni Sig.  Kærar þakkir Jón.  En það eru komnar myndir af hátíðinni inn á síðuna hjá Jóni á www.123.is/jonsig.

 

 

  • 1
Flettingar í dag: 955
Gestir í dag: 74
Flettingar í gær: 791
Gestir í gær: 56
Samtals flettingar: 433808
Samtals gestir: 51213
Tölur uppfærðar: 26.4.2024 17:48:50

Vafraðu um

Eldra efni

Um hestamannafélagið Neista

Nafn:

Hestamannafélagið Neisti

Afmælisdagur:

1943

Heimilisfang:

540 Blönduós

Staðsetning:

Blönduós

Um:

Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.

Kennitala:

480269-7139

Tenglar

clockhere