Færslur: 2008 Júní

22.06.2008 21:07

Neista Jakkar

Nýjir NEISTA jakkar á fullorðna

Neista - jakkar

Nú ætlum við að bjóða Neista-félögum til kaups Soft shell jakka bæði með hettu og án hettu, merki hestamannafélagsins verður aftan á , knapinn í borgarnesi öðru megin að framan en þar ætlum við að versla jakkana og fá um góðan afslátt í staðinn og nafn ykkar hinu megin  ( megið ráða hvort þið viljið hafa nafnið ykkar á jakkanum) og svo ætlar Vélsmiðja AllA að styrkja okkur í þessum kaupum og lógóið hans verður á erminni. Ef þið hafið áhuga á þessu erum við með peysur til mátunar og endilega hafið samband sem fyrst.  Stefnum að því að hafa mátunarkvöld í reiðhöllinni á fimmtudagskvöld frá kl:19-21  (ef þessi tími hentar ekki til mátunar verið þá í símasambandi fyrir þennan tíma)
 


Með von um góð viðbrögð
Bestu kveðjur

Edda 848-3354
          og
Silla  691-8228

19.06.2008 23:41

Félagsmóti Neista frestað

Félagsmóti Neista sem fram átti að fara þann 21. júní n.k. hefur verið frestað til 19. júlí.

19.06.2008 23:13

17. júní

Neisti hafði umsjón með hátíðarhöldunum á Blönduósi 17. júní og var það bara skemmtilegt.
Angelga, Ingi, Selma og Bjartmar mættu fyrir hádegi til að "blása" í blöðrur og binda í þær band svo þær tækju ekki flugið burt. Einnig vorum við með ýmsan varning til sölu svo og andlitsmálun sem krakkarnir úr 9. og 10. bekk sáu um. Það var bara góð mæting og skemmtileg stemming á planinu fyrir framan SAH afurðir þar sem skrúðgangan hófst kl. 13.30.
Neisti sá um skemmtiatriðin á Torginu og stjórnaði Þorgils Magnússon þeim og einnig sá Neisti um kaffisöluna í félagsheimilinu eftir skemmtunina en þar var kaffi, kakó og vöfflur á boðstólnum. Góður hópur fólks sá um að baka og koma öllu fram.
Neisti þakkar öllum kærlega  fyrir hjálpina þennan dag sem og þeim sem komu á hátíðahöldin og í kaffið

Nokkrar myndir voru settar í myndaalbúm en fleiri myndir má sjá á vef
Jóns Sig

18.06.2008 22:59

Primadonnuferð Neista

Prímadonnuferð Neista var farin 14. júní sl. í frábæru veðri
Þemað var köflótt og mættu konur og hestar í köflóttu að sjálfsögðu
Farið var frá Sauðanesi og riðið suður með vatni og áð í skógi vöxnu Nesinu. Frábær staður fyrir menn og hesta en helst of mikil fluga og komu því flugnanetin sem við fengum í upphafi ferðar að góðum notum. Ýmsar góðar veitingar voru bornar í okkur og gerðum við þeim góð skil.
Úr Nesinu hélt hópurinn niður með Laxá en við Langhyl vildi svo einkennilega til að við fundum þar plastpoka  í ánni með  ýmiss konar svaladrykkjum
Haldið var að Mánafossi og áð aftur og síðan haldið niður í Reiðhöll og í grillveislu hjá strákunum.
Frábærlega góð ferð og eiga þær þakkir skildar þær Edda, Ingibjörg og Sonja fyrir skipulagningu og góða ferð. Einnig þökkum við strákunum þeim Gumma Fúsa og Þórði fyrir að grilla og bera í okkur veitingar .
Ekki má gleyma að þakka styrktaraðilunum
Hollt og gott, Kjarnafæði, MS, Vífilfelli og N1 sem gáfu kjöt, salat, gos o.þ.h. Kærar þakkir fyrir.

Myndir hafa verið settar í myndaalbúm en þær voru teknar af Eddu og Selmu.

12.06.2008 22:55

Úrslit Barna og unglingamóts

Úrslit úr barna og unglingamóti

Æskulýðsnefndar Neista

 

Það tóku rúmlega 30 börn þátt í mótinu í blíðskapar veðri í dag.

Viljum þakka krökkunum fyrir frábæra þátttöku og gott mót,

Einnig Óla fyrir dómarastörf, Elínu fyrir ritarastarfið, Angelu fyrir kynninguna og svo öllum hinum sem hjálpuðu okkur á einn eða annan veg.

 Pollaflokkur: ( þar er ekki keppt um sæti)

Sólrún Tinna Grímsdóttir á Funa 18v.

Ásdís Freyja Grímsdóttir  á Pjakk 16v.

Helga María Ingimundardóttir á Sóley 11v.

Halla Steinunn Hilmarsdóttir á Epla 15v.

Lara Margrét Jónsdóttir á  Símon 28v.

Lilja María Suska á Nafna 9v.

 Þrígangur:

1.sæti Sigurður Bjarni Aadnegard . eink 5,30

2.sæti Hrafnhildur Una Þórðardóttir  eink. 5,10

3.sæti Jón Ægir Skagfjörð eink.4,75

4.sæti Sigurgeir Njáll Bergþórsson eink. 4,65

5.sæti Halldór Skagfjörð  eink.4,55

 Fjórgangur:

1.sæti Harpa Birgisdóttir eink. 6,52

2.sæti Karen Ósk Guðmundsdóttir eink.6,10

3.sæti Stefán Logi Grímsson eink. 5,88

4.sæti Hanna Ægirsdóttir eink.5,52

5.sæti Elín Hulda Harðardóttir 5,16.

 Tölt:

1.sæti Elín Hulda Harðardóttir  eink.6,37

2.sæti  Harpa Birgisdóttir eink. 6,07

3.sæti Steán Logi Grímsson eink.5,00

4.sæti Karen Ósk Guðmundsdóttir eink. 4,63

5.sæti Brynjar Geir Ægirsson eink.4,50
                                                                    
Bestu þakkir og kveðjur
                                                                   Æskulýðsnefnd Neista.

09.06.2008 21:43

Úrslit eftir úrtöku á Kirkjuhvammsvelli fyrir Landsmót

Jæja hér kemur niðurstaða úrtökunnar í gær á Kirkjuhvammsvelli

A - flokkur:
Birta frá Flögu 6v. /knapi Helga Una / einkunn 8,18
eig: Magnús Jósefsson og Tryggvi Björnsson.

Fregn frá Gýgjarhóli 7v. / knapi:Ólafur Magnússon/einkunn 7,86 
eig: Magnús Ólafsson.

B - flokkur:
Gáski frá Sveinsstöðum 10v/knapi:Ólafur Magnússon/
einkunn 8,49
eig: Magnús Ólafsson.

Gola frá Leysingjastöðum 8v / knapi:Þórir Ísólfsson /
einkunn 8,19
eig: Hreinn Magnússon.

Ungmennaflokkur:
Snót frá Sveinsstöðum 6v/ knapi:Anna F. Jonasson /
einkunn 7,86
eig: Anna F Jonasson.

Unglingaflokkur:

Móheiður frá Helguhvammi ll  8v / knapi: Elín Hulda Harðardóttir / einkunn 8,05
eig: Hörður Ríkharðsson.

Kládíus frá Kollaleiru 7v /knapi: Harpa Birgisdóttir /
einkunn 8,04
eig: Harpa Birgisdóttir og Birgir Gestsson.

Barnaflokkur:

Þróttur frá Húsavík 12v / knapi: Aron Orri Tryggvason / meðaleinkunn 8,07
eig: Tryggvi Björnsson.

Óviss frá Reykjum 17v / knapi: Sigurður Bjarni Aadnegard  / einkunn 0
eig: Aðalheiður Einarsdóttir.

Stjórn Neista vil óska ykkur til hamingju með árangurinn og ósk um gott gengi á Landsmóti Hellu 2008.

09.06.2008 18:34

Kvennaferð og Félagsmót

Kvennaferð Neista

Prímadonnuferð Neista verður farin 14. júní nk.
Farið verður frá Sauðanesi kl. 15:00.
Riðið verður fram í Nes og út með Laxá 
og endað í Reiðhöllinni. Ferðin er ca 15 km.
Þemað er köflótt og gjald er kr. 3.500 á prímadonnu

Skráning er fyrir 12. júní  hjá: Ingibjörgu 848-0104,

Eddu 848-3354, Sillu 691-8228 og Sonju 452-7174.

 

Félagsmót Neista

Félagsmót Neista verður haldið laugardaginn 21. júní nk.
Nánar auglýst í næsta Glugga.

07.06.2008 22:30

Barna og unglingamót

  Barna og unglingamót 

Æskulýðsnefndar Neista. 


verður fimmtudaginn 12. júní kl:17.00

á Blönduósvelli, keppt verður í eftirtöldum flokkum/greinum

pollaflokki, þrígang, fjórgang og tölti.

 

Skráning er hjá Jóhönnu á netfangið:

[email protected] eða í síma 452-4012  eða 868-1331

 síðasta lagi  miðvikudaginn 11. júní.

 Fram þarf að koma :nafn knapa og aldur, nafn hests, litur og aldur 
   og í hvaða flokk á að keppa.

Skráningargjald er 500 kr. á barn.

Veitingar á staðnum.

 

Ólafur Magnússon á Sveinsstöðum ætlar að koma á þriðjudagskvöldið og segja þeim til sem vilja,  gott væri að taka það fram við skráningunni ef þið viljið nýta ykkur þetta góða boð og fá nánari uppl. um tímasetningu.

 

Vonumst til að sjá ykkur sem flest 

Kveðja stelpurnar í Æskulýðsnefndinni.

 

 

a boð.

 

Vonumst til að sjá ykkur sem flest 

Kveðja stelpurnar í Æskulýðsnefndinni.

 

 

 

 

03.06.2008 23:23

Æskulýðsnefnd Neista

Knapamerki 1 og 2 og reiðskólinn

Hjá hestamannafélaginu Neista hófu í vetur um 50  börn reiðkennslu á hinum ýmsu stigum, í knapamerki 1 voru 14 nemendur og í knapamerki 2 voru 6 nemendur. Þau komu öll í reiðhöllina fimmtudaginn 29.maí, byrjað var á pizzaveislu og drykkjum að því búnu tóku nemendur við prófskirteinum og fengu svo að gjöf ábreiðu fyrir hestinn sinn  með ísaumuðu nafni eiganda, stallmúl og taum allt í stíl. Til hamingju krakkar þið stóðuð ykkur vel.

Nemendur sem hyggjast stunda nám samkvæmt Knapamerkjunum þurfa að vera 12 ára (miðað við fæðingarár) eða eldri. 
Heimilt er að bjóða nemendum að taka stöðupróf á 1. og 2. stigi og fara t.d. beint upp á 2. stig eftir að hafa staðist bóklegt og verklegt stöðupróf á 1. stigi. Ekki er hægt að taka stöðupróf á 3., 4., og 5. stigi.
Verklegi þátturinn gildir 70% en sá bóklegi 30%

Yngri hópur reiðskólans kom svo saman þiðjudaginn 03.júní og byrjuðu þau á að hita sig upp með boltaleikjum svona til að vera klár í pizzaveisluna á eftir og gerðu þau pizzunum góð skil ,að því loknu tóku þau við viðurkenningarskjölum og stallmúl að gjöf
og voru þau svo heppin að Þórunn Marta átti afmæli og splæsti frostpinnum á allann hópinn Takk fyrir það Þórunn Marta og til hamingju með afmælið þitt og að sjálfsögðu var sunginn afmælissöngurinn fyrir skvísuna.
Höfðum við tvo reiðkennara í vetur þær Nadine og Sirrý sem eru búnar að standa sig mjög vel en fljótlega kom í ljós að ekki var allt með felldu því að því að þarna inni einhversstaðar leyndist lítill laumufarþegi hjá Sirrý , við fengum svo að sjá prinsinn í kvöld og hann er svo lítill og sætur til hamingju Sirrý og Jóhann.

Takk Takk krakkar fyrir Stórsýninguna, Æskuna og hestinn, Bæjarstjórasýninguna þið eruð búin að standa ykkur frábærlega vel í vetur verið svo líka dugleg að æfa ykkur í sumar eins og þið vitið þá skapar æfingin meistarann, foreldrar takk fyrir ykkar framlag því án ykkar hefði þetta ekki gerst.

Gleðilegt sumar

Æskulýðsnefnd Neista
Jóhanna, Jakobína, Sonja og Silla

02.06.2008 23:27

Þýska meistaramótið

Hópferð á þýska meistaramótið

Ferðaskrifstofa allra hestamanna, Úrval-Útsýn verður með ferð á þýska meistaramótið 14.-18. ágúst 2008. Aðeins 25 sæti í boði og gildir reglan að fyrstur kemur fyrstur fær. Það er hinn síungi gleðigjafi, Sigurður Sæmundsson sem verður fararstjóri í ferðinni og ætlar að sjá til þess að hláturtaugarnar verði kitlaðar svo um munar.

Verðið er krónur 84.500 (miðað við gengi 2. júni ) á mann í tvíbýli.  

Innifalið er: Flug, skattar, flugvallarakstur erlendis, gisting á 4* hóteli í 4 nætur með morgunmat, akstur frá hóteli á mótssvæði, aðgöngumiði á mótið og íslensk fararstjórn.

Þetta tilboð gildir til 15. júní en eftir það hækkar ferðin um kr. 5.000. Eingöngu er hægt að kaupa ferðina á netinu á slóðinni www.uu.is

 

 

Með bestu kveðju,

Úrval-Útsýn

 

  • 1
Flettingar í dag: 477
Gestir í dag: 37
Flettingar í gær: 791
Gestir í gær: 56
Samtals flettingar: 433330
Samtals gestir: 51176
Tölur uppfærðar: 26.4.2024 06:20:24

Vafraðu um

Eldra efni

Um hestamannafélagið Neista

Nafn:

Hestamannafélagið Neisti

Afmælisdagur:

1943

Heimilisfang:

540 Blönduós

Staðsetning:

Blönduós

Um:

Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.

Kennitala:

480269-7139

Tenglar

clockhere