Færslur: 2021 Mars

25.03.2021 13:34

Fundargerð aðalfundar

 

 

Fundargerð

 

Efni: Aðalfundur Hestamannafélagsins Neista

Staður og dags: Reiðhöllin Arnargerði, 24.03.2021

 

 

 

  1. Fundarsetning. Formaður setti fundinn klukkan 17:00. Magnús Sigurjónsson fundarstjóri og Lisa Halterlein ritar fundargerð.

 

  1. Skýrsla stjórnar.

 

Mótahald: Mótanefnd hélt utan um mót vetrarins og voru þau styrkt af SAH afurðum og voru þau ágætlega sótt, þangað til Covid setti strik í reikninginn og mótahald felt niður.

 

Svínavatnsnefnd ný stjórn þarf að virkja nýja nefnd og koma þessu móti á sinn gamla stall.

 

Námskeið. Almennt námskeið, Pollanámskeið, Knapamerki 1 og 2 allt vel sótt en því miður þurfti að hætta vegna heimsfaraldursins.

 

Knapi ársins 2020 var valinn Lilja Maria Suska en ekki var uppskeruhátið Neista og búgreinafélaganna í A-Hún að þessu sinni. Hún er vel að titlinum komin enda átti hún gott tímabil á skeiðhestinum Viðari frá Hvammi 2, þau eru í 19. Sæti á stöðulista í 100 metra skeiði en áttu best tímann 7,73

 

Snjómokstur. Neisti hefur staðið frammi fyrir kostnaði vegna snjómoksturs á síðustu misserum þó ekki líkt og í fyrra.

 

Worldfengur. Hestamannafélagið keypti  aðgang að myndefni á Worlfeng þannig nú er hægt að skoða myndbönd frá landsmótum

           

Reiðhallarmál voru forgangsmál hestamannafélagsins á síðasta ári og er sú vinna ekki jafn langt komin og vonir stóðu til. Málið er í skoðun hjá Samtökum hrossabænda í A-Hún og sveitarfélögunum en Neisti þarf að beita sér enn frekar fyrir því að málið verði leitt til lykta.Vinnuhelgi og auka dagar fóru í að gera salinn uppi huggulegri en því miður er enn ólokið nokkrum þáttum

 

             Viðburðir: Folaldasýning í janúar auk móta áður en frestað var.

 

17.júní: Neisti sá  ekki um skipulagningu og framkvæmd dagskrár 17. júní líkt og síðustu ár enda hátíðarhöldum frestað

 

 

3.  Ársreikningur.

           

Gjaldkeri fór yfir ársreikning 2020. Hagnaður ársins voru 373.107 kr. sem skýrist að mestu leyti af lottótekjum og styrkjum til vegna ákveðna verkefna. Formarður þakkar gjaldkera fyrir gott starf og skilar stjórnin góðu búi til nýrrar stjórnar

 

Umræður um skýrslu stjórnar og ársreikning.

 

Nokkarar spurningar úr sal er varðar ársreikning sem gjaldkeri svaraði gaumgæfilega

 

 

 

 

  1. Skýrslur nefnda:

 

Vísað í skýrslu stjórnar, farið yfir það góða verk sem hefur verið í nefndum áður en allt lokaði. Reiðveganefnd er ötul að gæta hagsmuna reiðvega og áningastaða í umdæminu.

 

 

 

  1. Inntaka nýrra félaga.

 

Félagsmönnum Neista hefur fækkað um 8 á árinu og eru nú 204.

 

 

  1.        Kosningar í stjórn og nefndir.

 

Reiðveganefnd skipa:

Kristján Þorbjörnsson

Magnús Ólafsson

Jón Árni Magnússon

 

Vallarnefnd skipa:

Páll Þórðarson

Bergþór Gunnarsson

Víðir Kristjánsson

Hjörtur Karl Einarsson

Ásmundur Sigurkarlsson

 

Mótanefnd skipa:

Jón Kristófer Sigmarsson

Halldór Þorvaldsson

Guðmundur Sigfússon

Halla María Þórðardóttir

Fjóla Dögg Björnsdóttir

Arnleif Axelsdóttir

 

 

Æskulýðsnefnd skipa:

Álfheiður Ösp Haraldsdóttir

Magnea Jóna Pálmadótti

Sigurey Ólafsdóttir

  Lára Dagný Sævarsdóttir

            Kristín Jósteinsdóttir.

           

Stjórnarkjör:

 

Kosið er um formann til eins árs og tvö stjórnarsæti til tveggja ára. Lisa Halterlein og Berglind Bjarnadóttir ljúka sínum kjörtímabilum. Kolbrún Ágústa Guðnadóttir gefur ekki kost á sér til áframhaldandi setu en Guðjón Gunnarsson heldur áfram á seinna ár. Magnús Sigurjónsson formaður gefur ekki kost á sér til formanns.  

 

Ný stjórn Hestamannafélagsins Neista skipa:

Ásmundur Óskar Einarsson formaður

Selma Svavarsdóttir (til tveggja ára)

Halla María Þórðardóttir (til tveggja ára)

Ásmundur Sigurkarlsson (til eins árs)

Guðjón Gunnarsson (er á seinna ári kjörtímabils)

 

 

  1.        Önnur mál

 

Spjall um hitt og þetta

 

  1.        Fundi slitið kl. 18:00

 

 

 

25.03.2021 13:29

Fjórgangur úrslit

Pollaflokkur:

Margrét Viðja Jakobsdóttir og Hetta

Kristrún Ýr Jónsdóttir og Kóngur

Viktoría Guðjónsdóttir og Feykir

 

 

Fjórgangur:

1)Guðrún Rut Hreiðarsdóttir Kristall frá Skagaströnd 6,50

2) Jón Kristófer Sigmarsson Lygna frá Lyngholti 6,0

3) Berglind Bjarnadóttir Kvasir frá Steinnesi 5,8

4) Jakob Víðir Kristjánsson Stefnir frá Réttarholti 5,50

5) Aron Halldórsson Melódía frá Óslandi 5,40

 

 

 

 

24.03.2021 13:48

Fjórgangur

Fjórgangur 

Sjáumst klukkan 18:00

 

 

Pollaflokkur:

Margrét Viðja Jakobsdóttir og Hetta

Kristrún Ýr Jónsdóttir og Kóngur

Viktoría Guðjónsdóttir og Feykir

 

 

Fjórgangur:

Guðrún Rut Hreiðarsdóttir Sinfionía frá Krossum

Berglind Bjarnadóttir Ósk frá Steinnesi

Halldór Þorvaldsson Skálmöld frá Óslandi

Kristín Erla Sævarsdóttir Obama frá Dýrfinnustöðum

Hjördís Þórarinsdóttir Smiður frá Ólafsbergi

Jakob Víðir Kristjánsson Stefnir frá Réttarholti

Aron Halldórsson Melódía frá Óslandi

Jón Kristófer Sigmarsson Lygna frá Lyngholti

Guðrún Rut Hreiðarsdóttir Kristall frá Skagaströnd

Berglind Bjarnadóttir Kvasir frá Steinnesi

24.03.2021 10:45

Knapi ársins 2020

Knapi ársins 2020 hjá Hestamannafélaginu Neista 2020 er Lilja Maria Suska Hún er vel að titlinum komin enda átti hún gott tímabil á skeiðhestinum Viðari frá Hvammi 2, þau eru í 19. Sæti á stöðulista í 100 metra skeiði en áttu best tímann 7,73. 

 

23.03.2021 13:39

Fjórgangsmót

Fjórgangsmót Neista - Miðvikudaginn 24. mars klukkan 18:00

 

Skráning á fjórgangsmót er til hádegis 24. mars á netfangið [email protected]. Nafn knapa og hests auk aldurs og lits hestsins

 

Eftirfarandi flokkar í boði

  • Barnaflokkur
  • Unglingaflokkur
  • Ungmennaflokkur
  • 2. flokkur
  • 1. flokkur

Svo er að sjálfsögðu boðið upp á Pollaflokk

Mótanefnd áskilur sér rétt til þess að sameina flokka ef ekki næst næg skráning

Skráningargjöld á að greiða fyrirfram inn á 0307-26-055624 kt. 480269- 7139 (Pollar frítt - börn og  unglingar 1.500 og fullorðnir 2.000) Skráning tekur gildi þegar millifærsla hefur borist.

 

17.03.2021 12:00

Aðalfundur Neista

Aðalfundur Neista fer fram í Reiðhöllinni Arnargerði, þriðjudaginn 23. mars klukkan 17:00

Dagskrá:

 

Venjuleg aðalfundarstörf

 

Stjórn Neista

 

Athugið: Fólk vantar í stjórn og nefndir, áhugasamir sendi tölvupóst á [email protected]

08.03.2021 14:10

Ísmóti aflýst

Ísmóti sem átti að vera á miðvikudaginn er aflýst

  • 1
Flettingar í dag: 134
Gestir í dag: 9
Flettingar í gær: 806
Gestir í gær: 76
Samtals flettingar: 434918
Samtals gestir: 51319
Tölur uppfærðar: 28.4.2024 08:12:16

Vafraðu um

Eldra efni

Um hestamannafélagið Neista

Nafn:

Hestamannafélagið Neisti

Afmælisdagur:

1943

Heimilisfang:

540 Blönduós

Staðsetning:

Blönduós

Um:

Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.

Kennitala:

480269-7139

Tenglar

clockhere