13.10.2013 17:41Strákarnir í vegavinnu
Reiðvegafræmkvæmdir á fullu. Myndirnar tala sínu máli.
Það verður gott að fylgjast með Tryggva Björns því hestaumferðin mun liggja um hlaðið hjá honum.
Kampakátir í kaffipásu uppí Reiðhöll. Hjörtur, Sævar, Gunnar, Valdi, Maggi, Valur og Rúnar
Skrifað af selma 11.10.2013 08:15Sýnikennsla með Iben Andersen
Sýnikennsla með reiðkennaranum Iben Andersen verður haldin á Gauksmýri, sunnudaginn nk, 13. október kl. 16.00, reiknað er með að sýningin taki um það bil 3 tíma.
Iben hefur starfað víða við tamningar og þjálfun hrossa, á Íslandi, Þýskalandi, Noregi, Danmörku og hjá andfætlingunum í Ástralíu. Í Ástralíu lærði hún aðferðir við frumtamningar sem eru mjög ólíkar þeim sem tíðkast hér á landi. Iben hefur þróað sínar eigin aðferðir við frumtamningar sem vakið hafa talsverða athygli og margir sótt námskeiðin hennar. Sjón er sögu ríkari ! Allir velkomnir
11.10.2013 08:05Meistaradeild Norðurlands
Nú liggja fyrir dagssetningar á mótadögum Meistaradeildar Norðurlands (KS-deildin) veturinn 2014. Keppnin fer fram á miðvikudagskvöldum og byrjar klukkan 20:00 hvert kvöld. Það er Kaupfélag Skagfirðinga sem er okkar styrktaraðili eins og undanfarin ár. Keppnisdagar eru þessir 29. janúar úrtaka um þau sæti sem laus eru í deildinni. Ákveðið hefur verið að keyra liðakeppni samhliða einstaklingskeppninni. Fyrirkomulag liðakeppninnar verður kynnt þegar nær dregur.
08.10.2013 21:31"Bíó"
Þar sem við komumst yfir disk af Afmælissýningu Neista síðan í vor þá ætlum við að hafa "bíó" og popp og kók fyrir krakkana sem tóku þátt í sýningunni. Miðvikudaginn 9. október kl. 17.30 í Reiðhöllinni. Sýningin (diskurinn) er uþb 1 klst og 30 mín. Allir velkomnir, foreldrar, systkini, ömmur, afar, frænkur, frændur osfrv. :) Diskurinn verður tilbúinn í sölu fljótlega. Endilega hafið samband á [email protected] til að panta. Verð kr. 1.500.
Bestu kveðjur 02.10.2013 17:36Ný heimasíða Knapamerkjanna
Í loftið er komin endurnýjuð og uppfærð heimasíða Knapamerkjanna, knapamerki.is. Á síðunni er að finna ýmsar gagnlegar upplýsingar fyrir þá sem sækja nám í Knapamerkjum eða eru að kenna þau. Þar er meðal annars hægt að skoða og prenta út próf, sjá myndbönd af reiðprófum, nálgast lista yfir reiðkennara og dómara, panta bækur og senda inn fyrirspurnir. Hægt er að komast inn á heimasíðu Knapamerkjanna með því að fara inn á holar.is og finna þar tengil sem heitir Knapamerki eða með því að slá beint inn vefslóðina: www.knapamerki.is
Skemmtileg umfjöllun er um hestamannafélagið Neista á síðunni, endilega kíkið á það:
Skrifað af selma 27.09.2013 08:48Endurbætur reiðvega
Reiðveganefnd hestamannafélagsins Neista situr ekki auðum höndum frekar en fyrri ár en nefndin lagði fram erindi hjá skipulags, byggingar- og veitunefnd Blönduósbæjar í sumar þar sem óskað var eftir afstöðu Blönduósbæjar til lagningar reiðvegar vestan Svínvetningabrautar, framhjá heyrúllusvæðinu, vestur undir hitaveitulögn, til suðurs meðfram hitaveituæð að landamerkjagirðingu við Hjaltabakka og þaðan austur með girðingunni áleiðis að veiðihúsi Laxár á Ásum. Þar kom einnig fram að uppi voru áform að bæta reiðveginn sem liggur frá Svínvetningabraut að landamerkjagirðingu og tengjast þar með þeirri leið sem fjallað er um hér að ofan og að auki að kanna hvort hægt væri að gera reiðleið vestan Svínvetningabrautar frá hesthúsabyggð að áðurnefndri reiðleið. Skipulags-, byggingar- og veitunefndin tók erindi reiðveganefndar fyrir á fundi og samþykkti uppbyggingu þeirra í samræmi við skipulag. Þessar framkvæmdir hafa nú verið hafnar og unnið er að því að reiðvegir liggi til allra átta og vonandi lýkur framkvæmdum fyrir veturinn. Skrifað af selma 13.08.2013 22:00Framkvæmdir á vellinumMiklar framkvædir hafa verið að undanförnu á vellinum en búið er að gera snúningshringi í báðum endum vallarins svo hægt sé að halda kynbótasýningar á vellinum. Fréttaritari fór og hitta strákana Tryggva og Þórð í dag og þeir létu vel af sér, allt klárt fyrir fimmtudag en þá verður síðsumarsýningin.
Tryggva fannst ekkert leiðinlegt að moka möl í völlinn.
Skrifað af selma 02.08.2013 23:19Síðsumarssýning kynbótahrossa á BlönduósiSíðsumarssýning kynbótahrossa verður á Blönduósi dagana 14. til 16. ágúst næstkomandi. Skráning og greiðsla sýningargjalda fer fram í gegnum netið á síðunni www.worldfengur.com þar sem valið er „Skrá hross á kynbótasýningu“. Síðasti skráningar- og greiðsludagur er þriðjudagurinn 6. ágúst. Verð fyrir fullnaðardóm er 18.500,- kr. en fyrir sköpulagsdóm eða hæfileikadóm 13.500,- kr. Endurgreiðslur á sýningargjöldum koma því aðeins til greina að látið sé vita um forföll fyrir kl. 16:00 síðasta virka dag áður en sýningin hefst í síma 516-5000 en einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið [email protected]. Endurgreitt er kr. 11.000,- fyrir hross sem skráð hefur verið í fullnaðardóm og kr. 8.000,- fyrir hross sem aðeins hefur verið skráð í sköpulags- eða hæfileikadóm. Slasist hross eftir að sýning hefst er sama hlutfall endurgreitt gegn læknisvottorði. Allar nánari upplýsingar í síma Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins 516-5000 eða á heimasíðunni www.rml.is þar sem t.d. eru leiðbeiningar um hvernig eigi að skrá hross á sýningu. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netfangið [email protected]. Minnum á að allir stóðhestar verða að vera DNA greindir svo og foreldrar þeirra. Úr stóðhestum fimm vetra og eldri þarf að liggja fyrir blóðsýni og spattmynd í WorldFeng svo hægt sé að skrá þá á sýningu.
04.07.2013 08:16FjórðungsmótAllt gott að frétta af okkar fólki á Fjórðungsmóti og allir standa sig frábærlega vel. Harpa Birgisdóttir og Katla frá Kornsá eru í B-úrslitum í ungmennaflokki með einkunina 8,10 Í B-flokki urðu Gítar frá Stekkjardal og Jakob Víðir Kristjánsson 23. sæti með einkunina 8,33 en sá sem komst í B-úrslit var með einkunina 8.36 svo það má litlu muna.
Sonja Suska sendi okkur myndir af 1. degi á Fjórðungsmóti en slóðin er https://picasaweb.google.com/102650899214421642939/FjorUngsmot 26.06.2013 09:11Æfingar fyrir FjórðungsmótÞessir kappar voru mættir á reiðvöllinn í gærkvöldi til að þjálfa krakkana fyrir Fjórðungsmót.
Skrifað af selma 20.06.2013 16:01Félagsmót 2013Jæja, nú eru komnar inn myndir frá Félagsmóti Neista 2013.
Skrifað af Höski 20.06.2013 15:41Hestaeigendur athugið.Sigríður Elka Guðmundsdóttir vefhaldari fyrir sölusíðuna www.hest.is verður á leið um héraðið seinnipart föstudags þann 21. júní og síðan aftur fyrripart sunnudags þann 23. júní með myndavél og upptökuvél. Bíður hún ykkur þjónustu sína við hrossasölu. Hrossin þurfa að vera þæg og þjál til að eiga erindi inn á sölusíðuna hennar www.hest.is. Á síðunni er hægt að auglýsa kynbótahryssur, stóðhesta, keppnishross og reiðhross.
Skrifað af selma 16.06.2013 13:06Kvennareiðin 2013Nokkrar gagnlegar ábendingar til þeirra kvenna sem ætla með. Lagt verður af stað stundvíslega kl. 16, sunnudaginn 16. júní frá Húnsstöðum. Minnum þátttakendur á að við förum yfir Húnavatn og því er gott að hafa í Minni þær konur sem ætla sér að klæða sig betur áður en farið er yfir Bestu kveðjur, 15.06.2013 21:28Úrslit Félagsmóts NeistaFélagsmót Neista var haldið á Blönduósvelli í dag og tókst með ágætum. Mjög góð þátttaka var á mótið. Glæsilegasta par mótsins, valið af dómurum, voru Jakob Víðir Kristjánsson og Gítar frá Stekkjardal, virkilega flottir. Finnst vonandi mynd af þeim köppum fljótlega til að setja hér inn, en Víðir er hér með verðlaunagripina.
Pollaflokkur:
Þær Sunna Margrét á Stöku, Salka Kristín á Glæsi og Inga Rós á Neista riðu nokkra hringi og skemmtu sér og okkur. Óli var þeim til halds og trausts og þær fengu að sjálfsögðu verðluan :)
Unglingaflokkur:
Barnaflokkur:
A-flokkur:
Tölt:
12.06.2013 22:39Dagskrá og ráslistarDagskrá félagsmóts Neista laugardaginn 15. júní hefst kl. 10.00 á forkeppni B-flokkur Hádegishlé um kl 12.00 í uþb klst. Hægt að fá keypta súpa í Reiðhöllinni. A-flokkur Úrslit verða riðin strax eftir forkeppni í sömu röð, nema í pollaflokki, þau fá sín verðlaun þegar þau hafa lokið keppni. Ráslistar:
Skrifað af selma Flettingar í dag: 702 Gestir í dag: 44 Flettingar í gær: 325 Gestir í gær: 18 Samtals flettingar: 925935 Samtals gestir: 88415 Tölur uppfærðar: 31.3.2025 16:13:44 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is