08.05.2012 21:21Kynbótasýning hrossa á HvammstangaKynbótasýning hrossa hefst á Hvammstanga miðvikudaginn 23. maí 2012 Dómar verða miðvikudag og fimmtudag og yfirlitssýning á föstudegi. Þetta getur þó breyst ef skráningar verða ekki í samræmi við áætlanir. Best er að senda skráningar á tölvupósti - [email protected] - en einnig má hringja í síma 451 -2602. Síðasti skráningardagur er föstudagur 18. maí. Við skráningu þurfa að koma fram upplýsingar um hrossið, hvort hrossið á að fara í fullnaðardóm eða bara byggingu eða hæfileika, nafn og kennitala sýnanda, nafn og kennitala þess sem greiðir reikning og óskir um tíma ef einhverjar eru. Nafn og kennitala þess sem reikningur skal skrifast á verður að fylgja skráningu ! Gjald er 18.500 kr fyrir fullnaðardóm en 13.500 kr ef bara á að dæma annað hvort byggingu eða hæfileika. Greiðist inn á banka 307-26-2650 (kt 471101-2650) samhliða skráningu og senda kvittun á [email protected] með upplýsingum fyrir hvaða hross er verið að greiða. Kynnið ykkur vel reglur um járningar, spattmyndir, dna ofl . Úr öllum stóðhestum sem koma til dóms svo og foreldrum þeirra þarf að vera búið að taka dna-sýni til staðfestingar á ætterni !! Auk þess þarf að vera búið að spattmynda alla stóðhesta 5 vetra og eldri og taka úr þeim blóðsýni. Nánari upplýsingar og tímasetningar á www.rhs.is þegar nær dregur. Búnaðarsamband Húnaþings og Stranda Skrifað af selma 01.05.2012 20:30Skemmtileg æskulýðssýningÞað var gaman á sýningunni hjá krökkunum í dag en um 30 börn á öllum aldri tóku þátt í henni. Flest hafa þau verið á námskeiðum hjá hestamannafélaginu í vetur. Kennarar í vetur voru Barbara Dittmar, Hafdís Arnardóttir og Ragnhildur Haraldsdóttir. Fyrst var þrautabraut en flest þessara krakka hafa keppt í þrautabraut og er þetta því nokkuð liðlegt hjá þeim og skemmtileg. Þau voru svo mörg að það varð að taka 2 myndir af hópnum .... ![]() Theodóra, Una, Þórdís, Hlíðar og Bjartmar...... Jenný, Ásdís Brynja, Lara, Iðunn, Lilja og Ingibjörg Prinsessurnar alltaf jafn sætar og duglegar og þeim leiðist nú ekki þegar foreldrarnir hlaupa með þær nokkra hringi í höllinni. Alltaf mikið gaman hjá þeim. ![]() Salka Kristín, Inga Rós, Dögun og Sunna Margrét. Þessi flottu ungmenni, Fimm fræknu, sýndu okkur gangtegundir, krossgang og framfótasnúning, virkilega gaman og flott hjá þeim enda öll búin með knapamerki 3. ![]() Haukur Marian, Hákon Ari, Sigurgeir Njáll, Hrafnhildur og Friðrún Fanný. Blátt/rautt gerðu flotta mynsturreið sem Barbara Dittmar útfærði. Þau voru að gera þetta í fyrsta skiptið og hafa verið að æfa þetta uppá síðkastið. Sum þeirra hafa ekki verið á námskeiði í Reiðhöllinni fyrr en í vetur svo margt nýtt en þau gerðu þetta með glæsibrag. ![]() Íris, Ásdís, Guðbjörg, Alma, Sóley, Helga María, Tanja og Hreinn. Sigurður Bjarni, Sigurgeir Njáll, Lilja María og Haukur Marian fengu öll viðurkenningu fyrir framför og góðan árangur í reiðmennsku á árinu 2011. Þau fóru fyrir hönd Neista á Landsmótið á Vinheimamelum og stóðu sig með prýði, einnig tóku þau þátt í mörgum mótum á sl. ári og stóðu sig afar vel í alla staði. Til hamingju með þetta. ![]() Með allt á hreinu hét hópurinn sem fór flotta mynsturreið hannaða af Barböru Dittmar. Aldeilis skemmtileg og flott hjá þeim og þau ótrúlega fljót að ná þessu þó það hafi ekki verið margar æfingarnar hjá þeim en greinilega vanir knapar þar á ferð sem hafa gert þetta áður. Virkilega gaman. ![]() Friðrún, Sigurgeir, Hrafnhildur, Magnea, Sigurður, Hákon, Harpa Hrönn og Sólrún. Það er gaman að sjá hvað krökkunum fer fram á hverjum vetri og verða betri og betri reiðmenn. Við megum vera stolt af þessum krökkum og hversu mikið og gott starf er unnið á hverjum vetri í æskulýðsstarfi hjá hestamannafélaginu. Takk takk fyrir frábæra sýningu og skemmtileg samstarf í vetur. Eftir sýninguna var kaffi og "með því" og var fjölmenni, gott og gaman að geta átt notalega stund saman eftir svona skemmtilega sýningu. ![]() ![]() Magnús Ólafsson, Magnús Ólafsson yngri og Ólafur Magnússon Æskulýðsnefndin þakkar öllum þeim sem að þessari sýningu kom á einn eða annan hátt fyrir, án ykkar hefði þessi sýning ekki orðið að veruleika. Gaman að geta átt frábæran og eftirminnilegan dag og fengið að njóta þess að horfa á frábæra krakka á frábærri sýningu. Takk fyrir öll. Skrifað af selma 27.04.2012 08:43Æskulýðssýning Hestamannafélagsins NeistaÞriðjudaginn 1. maí kl. 17:00
verður sýning á vegum Æskulýðsnefndar Neista í reiðhöllinni Arnargerði. ![]() Fram koma um 30 krakkar á öllum aldri sem hafa verið dugleg á námskeiðum í vetur. Hvetjum alla til að koma og sjá þessa fræbæru krakka. Aðgangseyrir 500 kr. (ekki tekið við kortum) fyrir 12 ára og eldri. Innifalið í aðgangseyri er kaffi og með því. Hlökkum til að sjá ykkur. kveðja, Æskulýðsnefnd Neista Skrifað af selma 20.04.2012 14:24Upptaka á söluhrossum
Elka verður stödd í Húnavatnssýslun sunnudaginn 22.apríl nk. til að taka upp söluhross á myndbönd og taka ljósmyndir. Félagar í hrossaræktarsamtökunum geta mætt til myndatöku á eftirtöldum stöðum og tíma: Blönduósi kl. 10:00-14:00 Hvammstanga kl 15:00-19:00 Nánari upplýsingar gefa formenn samtakana Jóhann Albertsson s 869-7992 og Magnús Jósefsson s.897-3486. Skrifað af selma 15.04.2012 19:48Úrslit lokamótsins í Húnvetnsku liðakeppninni
Þá er Húnvetnsku liðakeppninni lokið árið 2012. Lið 3 vann keppnina með miklum yfirburðum og fékk 257 stig. Í öðru sæti varð lið 2 með 184,5 stig í þriðja sæti varð lið 1 með 140,5 stig og í fjórða sæti lið 4 með 122 stig. Koma vonandi myndir frá deginum inn á þytssíðuna í kvöld. Úrslit dagsins urðu: 1. flokkur B-úrslit 5 Pálmi Geir Ríkharðsson / Heimir frá Sigmundarstöðum 6,00
B-úrslit 3. flokkur 3-4 Kjartan Sveinsson / Tangó frá frá Síðu 5,28 B-úrslit Einstaklingskeppnin: 1. flokkur 2. flokkur 3. flokkur Unglingaflokkur
06.04.2012 11:28Húnvetnska liðakeppnin - lokamótið 2012![]() Lokamót Húnvetnsku liðakeppninnar er tölt, keppt verður í 1., 2. og
3. flokki og unglingaflokki í tölti T3 (fegurðartölt í staðinn fyrir
yfirferðartölt). Mótið verður laugardaginn 14. apríl og hefst kl. 13.30
og verður að vera búið að skrá á miðnætti miðvikudagsins 11. apríl.
Skráning er hjá Kollu á mail: [email protected]. Skráningargjaldið er 2.000 fyrir fullorðna og 1.000 fyrir unglinga 17 ára og yngri og verður að greiða inn á reikning 0159-15-200343 kt. 550180-0499 áður en mót hefst. Aðgangseyrir er 1.000 en frítt fyrir 12 ára og yngri. Mótanefnd Skrifað af selma 04.04.2012 10:46Töltmót NeistaÍ gærkvöldi fór fram lokamót vetrarins hjá Hestmannafélaginu Neista. Keppt var í tölti og gilti mótið einnig til heildarstigasöfnunar fyrir mót vetrarins. Góð þátttaka var og hestakostur mjög góður. Frábært að sjá hversu mikill áhugi er fyrir þessu hjá öllum aldursflokkum. Skrifað af HBE 01.04.2012 11:30Töltmót í Reiðhöllinni ArnargerðiOpið töltmót verður haldið þriðjudagskvöldið 3. apríl kl.20.00 í Reiðhöllinni Arnargerði. Keppt verður í flokki barna, unglinga, áhugamanna og í opnum flokki. Skráningargjald er kr.1.000 fyrir fyrstu skráningu og 500 krónur eftir það. Skráning sendist á netfang [email protected] fyrir miðnætti sunnudagskvöld 1. apríl. Fram þarf að koma knapi og hestur og upp á hvaða hönd skal riðið sem og í hvaða flokki er keppt. Skráningargjöld skal greiða inná reikning Neista 0307-26-055624 kt. 480269-7139 fyrir mót. Mótið er síðasta mótið til stigasöfnunar Neistafélaga en þar er spennan í hámarki. Spurning hverjir vinna ![]() Opinn flokkur stig Víðir Kristjánsson 25 Ægir Sigurgeirsson 24 Ólafur Magnússon 23 Pétur Sæmundsson 17 Eline Manon Schrijver 11 Áhugamannaflokkur stig Selma Svavarsdóttir 20 Magnús Ólafsson 20 Þórólfur Óli Aadnegaard 20 Höskuldur Erlingsson 18 Rúnar Örn Guðmundsson 11 Unglingaflokkur stig Hákon Grímsson 23 Friðrún Fanný 19 Haukur Suska 19 Hanna Ægisdóttir 17 Sigurgeir Njáll Bergþórsson 10 Skrifað af selma 01.04.2012 11:09Vel heppnuð sýningUSAH afmælissýningin tókst vel og þökkum við öllum sem komu, knöpum, foreldrum, áhorfendum og öðrum kærlega fyrir. Þessi sýning átti að vera stutt svo það voru 3 atriði, jafnvægisæfingar hjá yngsta hópnum, þrautabraut hjá eldri krökkunum og mynsturreið hjá þeim elstu. Bara gaman hjáöllum. Þessar ungu dömur tóku sig vel út og eiga örugglega eftir að láta að sér kveða í hestamennskunni í framtíðinni. Salka Kristín Ólafsdóttir Sunna Margrét Ólafsdóttir Inga Rós Suska Hauksdóttir Dögun Einarsdóttir og allir krakkarnir komu inn í lokin og kvöddu áhorfendur ![]() Skrifað af selma 31.03.2012 11:53USAH 100 ára - hátíðardagskrá í dagÍ tilefni af 100 ára afmæli Ungmennasambands Austur-Húnvetninga, verður hátíðardagskrá í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi í dag, laugardaginn 31. mars klukkan 14:00-16:30. Stjórn USAH vonast til þess að sjá unga sem aldna samgleðjast USAH á þessum merku tímamótum. Allir hjartanlega velkomnir. Meðal dagskrárliða má nefna: · Myndasýning úr starfi USAH í 100 ár. · Myndir frá myndasamkeppni 3.-6. bekkjar til sýnis - verðlaun veitt fyrir bestu myndirnar. · Ljóðin í ljóðasamkeppni 7.-10. bekkjar til sýnis - verðlaun veitt fyrir bestu ljóðin. · Afmælisterta í tilefni dagsins. · Aðildarfélögin með kynningu á starfsemi sinni og má þar m.a. nefna: o Frjálsíþróttamót þar sem börn úr sýslunni etja kappi. o Golfkynning. o Knattspyrnukeppni á sparkvellinum. o Skothittni í íþróttahúsinu. o Keppni í að halda bolta á lofti á sparkvellinum. o Skotfélagið Markviss með sýningu á munum. o Sunddeild Hvatar með kynningu í sundlauginni. o Kynning á starfssemi skíðadeildar Fram. o Hestamannafélagið Neisti með kynningu í reiðhöllinni frá kl. 16:30-17:30. o O.fl. · Húnavökuritin frá upphafi til sýnis. · Fjöltefli í skák. · Klifurveggurinn opinn fyrir gesti. · Júdókynning. · Og margt fleira skemmtilegt.Skrifað af selma 29.03.2012 18:55Hrossabændur - HestaáhugafólkAðalfundur Samtaka Hrossabænda í A- Hún verður haldinn í Reiðhöllinni á Blönduósi mánudaginn 2. apríl 2012 og hefst stundvíslega kl. 20:00. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf - stóðhestahald 2012 ofl. Fræðslufundur hefst kl 21:00 undir yfirskriftinni: "Hvernig er best að lýsa upp íslenska hrossastofninn ? Hann er orðinn 80% dökkur" en þar mun Páll Imsland fjalla í máli og myndum um litahlutföllin í stofninum fyrr og nú og skýra hvers vegna þarf að sporna fótum við þeirri þróun til einslitni sem er í gangi. Þetta er gert í erindi sem síðan er fylgt eftir með myndasýningu þar sem allt mögulegt í litunum og tengslum við litina er dregið fram og umræður geta spunnist um eftir áhuga. Fræðslufundurinn er öllum opinn. Stóðhestar á vegum Samtaka Hrossabænda sumarið 2012: Blær frá Torfunesi verður á Þingeyrum á fyrra gangmáli. Blær er brúnn 13 v alhliðahestur undan Markúsi frá Langholtsparti og Bylgju frá Torfunesi, bygging 8,17; hæfilækar 8,80 og aðaleinkunn 8,55. Verð til félagsmanna 85 þús með öllu. Skýr frá Skálakoti verður á Gauksmýri eftir Landsmót. Skýr er rauðblesóttur 5 v alhliðahestur undan Sólon frá Skáney og Vök frá Skálakoti, bygging 8,41; hæfilækar 8,30 og aðaleinkunn 8,35. Verð til félagsmanna 145 þús með öllu. Pantanir hjá Gunnari á Þingeyrum á [email protected] eða í 895-4365 fyrir 15. apríl Samtök Hrossabænda í A.-Hún. Skrifað af selma 27.03.2012 21:15Hestamenn athugið !Dagana 2. - 7. apríl mun Anja Madsen frá Danmörku koma og hitta íslenska hestamenn, bæði frístunda hestamenn og atvinnumenn. Anja hefur verið með íslenska hesta í Danmörku síðastliðin 10 ár og hefur með mjög góðum árangri notað Aloe Vera vörur frá Forever í hesthúsunum og langar hana að deila þeirri reynslu með okkur. Í dag er Anja með 15 hesta á húsi og hefur á síðustu árum alið upp og selt nokkra hesta frá sér auk þess sem hún hefur sótt hesta hingað til lands. Anja hefur reynslu af mörgum algengustu vandamálunum sem fylgja því að vera með hesta, svo sem múkk, sár, sólbruna, maga og meltingarvandamál. Frábært tækifæri fyrir alla áhugamenn um hesta til að fræðast um hvernig hægt er að nota náttúrulegar aloe vera vörur í daglegri umönnun hestanna og til að leysa ýmis vandamál sem upp kunna að koma. Allir velkomnir! Aðgangseyrir aðeins 500 kr. 2. apríl Hlíðarsmára 17, Kópavogi kl: 20:00 3. apríl í Hlíðskjálf, félagsheimili hestamanna á Selfossi kl: 20:00 4.apríl Hlíðarsmára 17, Kópavogi kl: 20:00 takmarkaður sætafjöldi Einungis fyrir dreifingaraðila. 5. apríl Reiðhöllin á Blönduósi kl: 20:30 6. apríl Mývatnssveit og Húsavík, nánar auglýst þegar nær dregur. 7. apríl Akureyri og nágrenni, nánar auglýst þegar nær dregur. Skrifað af selma 25.03.2012 18:32Grunnskólamót - úrslitÞriðja og síðasta mótið í Grunnskólamótaröðinni var haldið í dag í Reiðhöllinni á Blönduósi. Frábær þátttaka var á mótið, góð stemming og veður gott, þótt það hafi rignt í örstutta stund þá létu krakkarnir það ekki á sig fá. Frábært að sjá hvað krakkarnir eru orðnir liprir reiðmenn hvort sem það er í tölti, fjórgangi, þrautabraut, smala eða skeiði. Æskulýðsnefndir félaganna standa að þessari mótaröð. Þátttökurétt hafa börn og unglingar á grunnskólaaldri á svæðinu og keppa þau í nafni þess skóla sem þau stunda nám við, skólarnir eru alveg ótengdir mótunum að öðru leiti. Varmahlíðarskóli vann stigakeppnina 4. skiptið í röð (allaf unnið) og óskum við þeim innilega til hamingju með það ![]() ![]() Stigakeppnin fór svo: 1. sæti Varmahlíðarskól með 105 stig 2. sæti Grunnskóli Húnaþings vestra með 94 stig 3. sæti Húnavallaskóli með 78 stig 4. sæti Árskóli með 42 stig 5. sæti Blönduskóli með 39 stig 6. sæti Grunnskólinn Austan Vatna 21 stig Einstaklingskeppnina unnu: 1.-3. bekk - Björg Ingólfsdóttir með 30 stig 4.-7. bekk - Ingunn Ingólfsdóttir með 18 stig 8.-10 bekk - Ásdís Ósk Elvarsdóttir með 27 stig Innilega til hamingju með flottan árangur í vetur. Hestamannafélagið Neisti og Æskulýðsnefnd Neista vill þakka öllum keppendum, starfsmönnum, foreldrum og áhorfendum kærlega fyrir skemmtunina og hjálpina og fyrir frábæran dag, án ykkar er þetta ekki framkvæmanlegt. Úrslit í dag urðu þessi: Þrautabraut 1. - 3. bekkur ![]() Björg, Bryndís, Katrín, Olga og Júlía ![]() Iðunn, Bjartmar, Einar og Hlíðar nr. Nafn Skóli bekkur Hestur 1 Björg Ingólfsdóttir Varmahlíðarskóli 3 Skipper frá Enni 2 Bryndis Jóhanna Kristinsdóttir Gr. Húnaþings vestra 2 Raggi frá Bala 3 Katrín Ösp Bergsdóttir Gr. sk. Austan vatna 2 Von frá Hofsstaðaseli 4 Olga María Rúnarsdóttir Húnavallaskóli 3 Fiðringur frá Hnausum 5 Júlía Kristín Pálsdóttir Varmahlíðarskóli 3 Náð frá Flugumýri II 6 Iðunn Eik Sverrisdóttir Húnavallaskóli 2 Fjóla frá Lækjarskógi 7 Bjartmar Dagur Bergþórsson Blönduskóli 3 Fagrajörp 8 Einar Pétursson Húnavallaskóli 2 Jarl frá Hjallalandi 9 Hlíðar Steinunnarson Blönduskóli 3 Blíðfari Smali 4. - 7. bekkur ![]() ![]() Magnea, Sólrún, Ásdís Freyja, Leon og Eysteinn ![]() Lilja, Ásdís Brynja, Viktor, Karítas og Guðmar Nafn Skóli bekkur Hestur tími 1 Magnea Rut Gunnarsdóttir Húnavallaskóli 7 Sigyn frá Litla Dal 36,34 2 Sólrún Tinna Grímsdóttir Húnavallaskóli 6 Frosti frá Flögu 38,18 3 Ásdís Freyja Grímsdóttir Húnavallaskóli 4 Kæla frá Bergsstöðum 38,75 4 Leon Paul Suska Húnavallaskóli 7 Neisti frá Bolungarvík 39,21 5 Eysteinn Tjörvi Kristinsson Gr. sk. Húnaþings 4 Raggi frá Bala 42,15 6 Lilja Maria Suska Húnavallaskóli 5 Laufi frá Röðli 42,44 7 Ásdís Brynja Jónsdóttir Húnavallaskóli 7 Ör frá Hvammi 47,96 8 Viktor J. Kristófersson Gr. sk. Húnaþings 7 Flosi frá Litlu-Brekku 48,93 9 Karítas Aradóttir Gr. sk. Húnaþings 7 Gyðja frá Miklagarði 56,4 10 Guðmar Freyr Magnússon Árskóli 6 Frami frá Íbishóli 58,65 Smali 8. - 10. bekkur ![]() Ásdís, Ragna, Rakel, Anna og Gunnar ![]() Friðrún, Fríða, Birna og Hanna Nafn Skóli bekkur Hestur tími 1 Ásdís Ósk Elvarsdóttir Varmahlíðarskóli 8 Tenór frá Syðra-Skörðugili 34,96 2 Ragna V. Vésteinsdóttir Varmahlíðarskóli 9 Blesi frá Litlu-Tungu II 36,21 3 Rakel Ósk Ólafsdóttir Gr.sk. Húnaþings v 10 Rós frá Grafarkoti 36,78 4 Anna B. Vagnsdóttir Varmahlíðarskóli 8 Móalingur frá Leirubakka 36,85 5 Gunnar Freyr Gestsson Varmahlíðarskóli 10 Styrnir f Hallgeirseyjarhjáleigu 38,31 6 Friðrún Fanný Guðmundsdóttir Húnavallaskóli 10 Kalli 38,37 7 Fríða Björg Jónsdóttir Gr.sk. Húnaþings v Ballaða frá Grafarkoti 38,75 8 Birna Olivia Agnarsdóttir Gr.sk. Húnaþings v 10 Funi frá Fremri-Fitjum 43,9 9 Hanna Ægisdóttir Húnavallaskóli 10 Perla frá Reykjum 44,31 Skeið ![]() nr. Nafn skóli bekkur Hestur tími 1 Þórdís Inga Pálsdóttir Varmahlíðarskóli 8 Boði frá Flugumýri II 4,03 2 Kristófer Smári Gunnarsson Gr.sk.Húnaþings v 9 Kofri frá Efri-Þverá 4,21 3 Haukur Marian Suska Húnavallaskóli 10 Tinna frá Hvammi 2 4,34 4 Helga Rún Jóhannsdóttir Gr. sk. Húnaþings v 10 Hvirfill frá Bessastöðum 4,34 5 Eva Dögg Pálsdóttir Gr. sk. Húnaþings vestra 8 Kapall frá Grafarkoti 4,46 Krakkarnir samankomin eftir mótið en einhverjir voru farnir heim. Í heildina voru milli 60-70 krakkar að taka þátt í hverju móti fyrir sig í vetur. Glæsilegur hópur sem við megum vera stolt af. Til hamingju með flottan árangur í vetur. Hlökkum til að sjá ykkur næsta vetur. Það er alltaf gaman saman ![]() ![]() Eins og í fyrra þá voru veðlaunapeningarnir gerðir í FabLab vinnustofunni á Sauðárkróki Þeir eru hannaðir og heimasmíðaðir úr plexigleri en hugmynda af þeim fékk Kristín Brynja Ármannsdóttir ![]() fyrir mótið í fyrra þegar hún heimsótti verknámshús Fjörlbrautarskóla Norðurlands vestra þar sem FabLab vinnustofa er staðsett. Sigríður Ólafsdóttir í Viðidalstungu hannaði hestinn og Kristín vann síðan peninginn í tölvu og skar hann út í FabLab vinnustofunni. Færum við þeim Kristínu og Sigríði bestu þakkir fyrir, aldeilis frábær hugmynd, skemmtileg og öðruvísi. Fleiri myndir í myndaalbúmi og Hjálmar Kárdal sendir okkur myndir fljótlega. Skrifað af selma Flettingar í dag: 702 Gestir í dag: 44 Flettingar í gær: 325 Gestir í gær: 18 Samtals flettingar: 925935 Samtals gestir: 88415 Tölur uppfærðar: 31.3.2025 16:13:44 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is